Skoðun

Hversu stór þarf vandinn að vera til að fá hjálp?

Thelma Hilmarsdóttir og Saga Ólafsdóttir Arnholtz skrifa

Erfið reynsla í æsku getur haft víðtæk og langvarandi áhrif á líf einstaklinga. Rannsóknir hafa sýnt fram á að börn sem alast upp við ofbeldi, vanrækslu eða aðrar erfiðar eða óöruggar aðstæður eru í aukinni hættu á að glíma við geðrænan vanda, skert lífsgæði og félagslega erfiðleika síðar á ævinni. Þrátt fyrir aukna þekkingu á langtímaáhrifum erfiðrar reynslu í æsku er mikilvægt að beina sjónum ekki síður að því hvernig hægt er að fyrirbyggja slíkan vanda og tryggja að börn og ungmenni fái viðeigandi stuðning áður en erfiðleikarnir verða umfangsmeiri.

Ný skýrsla Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO), sem kom út árið 2026, varpar ljósi á tengsl erfiðrar reynslu í æsku við heilsu og félagslega stöðu á fullorðinsárum. Skýrslan byggir á rannsókn sem náði til 26.741 einstaklinga á aldrinum 18–30 ára í 29 Evrópulöndum, þar á meðal Íslandi.

Niðurstöðurnar eru umhugsunarverðar og vekja upp spurningar varðandi aðgengi að geðheilbrigðisþjónustu. Meira en tveir þriðju þátttakenda greindu frá því að hafa upplifað að minnsta kosti eina tegund erfiðrar reynslu í æsku og rúmlega einn af hverjum fimm hafði upplifað fjórar eða fleiri. Slík reynsla getur meðal annars falist í ofbeldi, vanrækslu, vímuefnavanda á heimili eða því að verða vitni að heimilisofbeldi.

Rannsóknin sýndi skýr tengsl milli fjölda slíkra reynsluþátta og verri geðheilsu, slakari lífsgæða, fjárhagserfiðleika, námserfiðleika og félagslegra erfiðleika á fullorðinsárum. Því fleiri tegundir erfiðrar reynslu sem þátttakendur höfðu upplifað, þeim mun meiri líkur voru á neikvæðum afleiðingum síðar á lífsleiðinni.

Þegar þörfin er brýn en aðstoðin ekki sjálfgefin

Ein athyglisverðasta niðurstaða skýrslunnar snýr að aðgengi að geðheilbrigðisþjónustu. Meðal þeirra þátttakenda sem höfðu upplifað fjórar eða fleiri tegundir erfiðrar reynslu í æsku töldu 76,3% sig hafa þurft á faglegri aðstoð að halda á síðustu 12 mánuðum. Til samanburðar var hlutfallið 36,7% meðal þeirra sem höfðu ekki upplifað slíka reynslu.

Þeir sem höfðu upplifað meiri erfiðleika voru jafnframt líklegri til að telja sig ekki hafa fengið þann stuðning sem þeir þurftu.

Þessar niðurstöður undirstrika mikilvægi þess að geðheilbrigðisþjónusta sé ekki eingöngu til staðar, heldur einnig aðgengileg þeim sem á henni þurfa að halda. Þar getur lágþröskuldaþjónusta gegnt mikilvægu hlutverki, en hún byggir á því að draga úr þeim hindrunum sem geta komið í veg fyrir að einstaklingar leiti sér aðstoðar.

Hér á landi er Bergið Headspace dæmi um slíka þjónustu. Þar geta ungmenni á aldrinum 12–25 ára leitað sér gjaldfrjálsrar ráðgjafar án tilvísunar, greiningar eða þess að þurfa að skilgreina vanda sinn fyrir fram. Hugmyndafræðin byggir á því að mæta ungu fólki þar sem það er statt, á þeirra forsendum.

Snemmtæk íhlutun snýst einmitt um að bregðast við erfiðleikum áður en þeir magnast. Ekki ætti að þurfa að bíða eftir því að vanlíðan hafi veruleg áhrif á skólagöngu, félagsleg tengsl eða daglegt líf áður en stuðningur stendur til boða.

Mikilvægi tengsla og verndandi þátta

Skýrslan dregur einnig fram mikilvægi seiglu og verndandi þátta í lífi barna og ungmenna. Rannsóknin sýndi jafnframt að það að hafa einhvern fullorðinn til að leita til og treysta á í æsku gat gegnt mikilvægu verndandi hlutverki. Þetta undirstrikar að erfið reynsla í æsku ákvarðar ekki framtíð einstaklinga.

Í þessu samhengi skiptir máli að ungt fólk hafi aðgang að umhverfi þar sem það getur rætt líðan sína án ótta við fordóma eða að vandinn sé ekki talinn nægilega alvarlegur. Þjónusta á borð við Bergið getur skapað slíkt rými og veitt ungmennum tækifæri til að fá stuðning, efla bjargráð sín og takast á við áskoranir áður en þær verða yfirþyrmandi.

Höfum við efni á að bíða?

Niðurstöður WHO minna okkur á að erfið reynsla í æsku getur haft áhrif langt fram á fullorðinsár. Jafnframt sýna þær mikilvægi stuðnings og verndandi þátta sem geta dregið úr neikvæðum afleiðingum slíkrar reynslu.

Snemmtæk íhlutun og aðgengileg þjónusta við börn og ungmenni er því ekki aðeins mikilvægt velferðarmál heldur einnig fjárfesting í framtíðinni. Með því að bregðast tímanlega við vanda má stuðla að bættum lífsgæðum einstaklinga og mögulega draga úr þörf fyrir umfangsmeiri og kostnaðarsamari úrræði síðar.

Því ætti spurningin ekki að vera hvort við höfum efni á að fjárfesta í snemmtækum stuðningi við ungmenni, heldur hvort við höfum efni á að bíða.

Höfundar eru meistaranemar í félagsráðgjöf við Háskóla Íslands og starfsnemar í Berginu Headspace.


Heimild: World Health Organization (2026). Adverse childhood experiences in the European Union, Iceland and Norway: characteristics, consequences and costs.




Skoðun

Sjá meira


×