Sjáðu þig - Hvers vegna skiptir máli að krabbamein greinist snemma? Nanna Margrét Kristinsdóttir skrifar 15. október 2026 06:01 Í Bleiku slaufunni í ár hvetjum við konur til að þekkja líkama sinn, vera vakandi fyrir óvenjulegum eða viðvarandi breytingum og leita til læknis ef einkenni gefa tilefni til. Flest einkenni eiga sér aðrar og meinlausari skýringar en krabbamein, en því fyrr sem krabbamein greinist, því betri eru batahorfur. En hvers vegna eru batahorfurnar betri þegar krabbamein greinist fyrr? Mikilvægt er að hafa í huga að krabbamein eru afar ólík. Sum þeirra valda litlum og ósértækum einkennum og erfitt getur reynst að greina þau áður en þau eru orðin útbreidd. Þegar einkenni eru hins vegar sýnileg geta skjót viðbrögð skipt máli. Þegar krabbamein greinist snemma aukast líkurnar á því að sjúkdómsstigið sé lægra, sem er einn af mörgum þáttum sem hafa áhrif á batahorfur. Horfur betri og meðferð oft umfangsminni Almennt eru lífshorfur betri þegar krabbamein greinist á lægra sjúkdómsstigi, því þá er krabbameinið yfirleitt enn staðbundið og hefur ekki dreifst til nærliggjandi eitla eða annarra líffæra. Greining á lægra sjúkdómsstigi getur einnig þýtt umfangsminni meðferð, minni líkur á endurkomu eða dreifingu sjúkdóms til annarra líffæra og betri lífsgæði eftir meðferð. Brjóstakrabbamein er algengasta krabbameinið meðal kvenna á Íslandi, eða um 28% tilfella, og greinist ýmist í skimun eða vegna breytinga sem einstaklingar taka sjálfir eftir. Þegar brjóstakrabbamein greinist áður en það hefur dreift sér eru horfur almennt betri og meðferð oft umfangsminni. Í gagnvirkri framsetningu upplýsinga úr Krabbameinsskrá á heimasíðu Krabbameinsfélagsins má bera saman meðferð eftir sjúkdómsstigi. Þar sést meðal annars að hlutabrottnám brjósts er að jafnaði um tvöfalt algengara þegar sjúkdómurinn er staðbundinn. Við útbreiddari sjúkdóm getur þurft umfangsmeiri skurðaðgerð, sem getur haft áhrif á bataferli og lífsgæði. Munurinn sést einnig þegar krabbameinslyfjameðferð er skoðuð. Meðal þeirra sem greindust með brjóstakrabbamein árið 2024 fengu um 37% einstaklinga með staðbundinn sjúkdóm krabbameinslyfjameðferð, samanborið við 67% þeirra sem voru með dreifingu til nærliggjandi eitla. Meðferðarval ræðst þó ekki eingöngu af sjúkdómsstigi heldur einnig af eiginleikum æxlis, aldri og almennu heilsufari. Lífsgæði skipta líka máli Fimm ára lífshorfur hafa meira en tvöfaldast á Íslandi frá því að skráning í Krabbameinsskrá hófst. Eftir því sem fleiri lifa lengur eftir greiningu verður sífellt mikilvægara að horfa ekki eingöngu á lífshorfur heldur einnig á lífsgæði eftir greiningu og meðferð. Þess vegna hefur Krabbameinsfélag Íslands, í samstarfi við Landspítala og Háskóla Íslands, staðið fyrir umfangsmikilli rannsókn á lífsgæðum einstaklinga sem greindust með krabbamein á árunum 2014 til 2024. Rannsóknin gefur tækifæri til að skoða hvernig sjúkdómurinn, sjúkdómsstig við greiningu og umfang meðferðar tengjast líðan fólks bæði meðan á meðferð stendur og eftir að henni lýkur. Þótt greining gagna standi enn yfir, benda fyrstu niðurstöður til þess að hærra sjúkdómsstig og að hafa fengið krabbameinslyfjameðferð tengist lakari lífsgæðum. Þátttakendur sem greindust með staðbundinn sjúkdóm virðast almennt búa við betri lífsgæði og betri líkamlega og hugræna virkni en þeir sem höfðu dreifingu til nærliggjandi eitla við greiningu. Þeir greina einnig síður frá ýmsum einkennum og vandamálum líkt og þreytu, verkjum, svefnvandamálum, fjárhagslegum erfiðleikum og heilsutengdum áhyggjum. Þegar lengra er liðið frá meðferð verður líkamsímynd og kynlífstengd virkni betri meðal þeirra sem greindust með staðbundinn sjúkdóm. Niðurstöður rannsóknarinnar eru enn á frumstigi og þarf að túlka þær með varúð þar til frekari greiningum er lokið. Þær eru þó í samræmi við fyrri rannsóknir sem benda til þess að hærra sjúkdómsstig við greiningu og umfang meðferðar geta tengst lakari lífsgæðum og meiri langvarandi einkennabyrði eftir brjóstakrabbamein. Skiptir máli að þekkja eigin líkama Snemmgreining brjóstakrabbameins getur einnig minnkað líkur á endurkomu krabbameins og frekari útbreiðslu sjúkdóms. Innan fimm ára frá greiningu voru bæði staðbundin endurkoma og dreifing krabbameins til annarra líffæra sjaldgæfari hjá þeim sem voru með staðbundið brjóstakrabbamein við greiningu. Munurinn var mestur þegar dreifing krabbameins til annarra líffæra var skoðuð, en hún greindist hjá um 9% þeirra sem upphaflega höfðu staðbundinn sjúkdóm, samanborið við um 26% þeirra sem höfðu dreifingu til eitla við upphaflega greiningu. Tölurnar segja ekki fyrir um hvað gerist hjá hverjum einstaklingi. Krabbamein eru ólík og líffræði æxlisins, meðferð og fjölmargir aðrir þættir hafa áhrif á sjúkdómsferlið. Tölurnar sýna þó hvers vegna það skiptir máli að þekkja eigin líkama og bregðast við breytingum sem eru óvenjulegar eða viðvarandi. Þegar krabbamein greinist á lægra sjúkdómsstigi eru meiri líkur á að hægt sé að beita minna íþyngjandi meðferð og skapa þannig betri forsendur fyrir bata og góð lífsgæði eftir meðferð. Að þekkja eigin líkama og bregðast við breytingum getur þannig haft áhrif langt út fyrir sjálfa greininguna – á meðferðina, bataferlið og lífið sem tekur við. Höfundur er sérfræðingur hjá Rannsóknasetri - Krabbameinsskrá hjá Krabbameinsfélaginu. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Krabbamein Skimun fyrir krabbameini Mest lesið Ég er ekki tilbúin að stökkva Agla Þyri Kristjánsdóttir Skoðun Sjáðu þig - Hvers vegna skiptir máli að krabbamein greinist snemma? Nanna Margrét Kristinsdóttir Skoðun Lífið í Grindavík í dag – þakklæti, óvissa og trú á framtíðina Dagmar Valsdóttir Skoðun Barn fyrir bíl Albína Pálsdóttir,Anna Margrét Ásbjarnardóttir,Brynhildur Bolladóttir,Geir Finnsson,Gísli Marteinn Baldursson,Halldóra Þórsdóttir,Hrafnhildur Ingibjargardóttir Hallsdóttir,Kjartan Sveinn Guðmundsson,Rán Flygenring,Sveinn Þórhallsson ,Viktor Lorange Skoðun Norrænt sambandsríki – næsta skref! Hrannar Björn Arnarsson Skoðun Spilin sem enginn vill fá Sigríður Eva Þorsteinsdóttir Skoðun Ekkert leyniletur heldur íslenskt ritmál – Punktaletur á að vera sjálfsagður hlutur Hjalti Sigurðsson Skoðun Hugsum fram í tímann Berglind Guðmundsdóttir Skoðun Flokkur fólksins klippir á bremsur unga fólksins Óðinn Freyr Baldursson Skoðun Af hverju ekki hún? Thelma Kristín Kvaran Skoðun Skoðun Skoðun Líf með tilgang og gleði, þrátt fyrir heilabilun Elísa Arnars Ólafsdóttir skrifar Skoðun Hvað viðheldur ójöfnuði milli kynslóða á Íslandi? Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Tökum stjórn á framtíðinni Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Sjáðu þig - Hvers vegna skiptir máli að krabbamein greinist snemma? Nanna Margrét Kristinsdóttir skrifar Skoðun Er mikið umframboð á fasteignamarkaði? Ólafur Margeirsson skrifar Skoðun Spilin sem enginn vill fá Sigríður Eva Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Ég er ekki tilbúin að stökkva Agla Þyri Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Viðreisn vill raunverulegar forvarnir gegn nikótínneyslu ungmenna Sandra Sigurðardóttir skrifar Skoðun Vöruverðið á vegum úti Benedikt S. Benediktsson skrifar Skoðun Lífið í Grindavík í dag – þakklæti, óvissa og trú á framtíðina Dagmar Valsdóttir skrifar Skoðun Hugsum fram í tímann Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Nýsköpun er besta byggðastefnan Lilja Björg Ágústsdóttir skrifar Skoðun Til hamingju... með hvað? Einar Jóhannes Guðnason skrifar Skoðun Tíminn sem tapast þegar næringin fylgir ekki æfingaálaginu Lilja Guðmundsdóttir ,Arnar Sölvi Arnmundsson skrifar Skoðun Ekkert leyniletur heldur íslenskt ritmál – Punktaletur á að vera sjálfsagður hlutur Hjalti Sigurðsson skrifar Skoðun Hvað kemur ESB málinu við? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Barn fyrir bíl Albína Pálsdóttir,Anna Margrét Ásbjarnardóttir,Brynhildur Bolladóttir,Geir Finnsson,Gísli Marteinn Baldursson,Halldóra Þórsdóttir,Hrafnhildur Ingibjargardóttir Hallsdóttir,Kjartan Sveinn Guðmundsson,Rán Flygenring,Sveinn Þórhallsson ,Viktor Lorange skrifar Skoðun Flokkur fólksins klippir á bremsur unga fólksins Óðinn Freyr Baldursson skrifar Skoðun Tilvistarkreppa borðstofunnar Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Af hverju ekki hún? Thelma Kristín Kvaran skrifar Skoðun Norrænt sambandsríki – næsta skref! Hrannar Björn Arnarsson skrifar Skoðun Hvers vegna eru niðurstöður PISA leyndarmál? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Ekki er allt gull sem glóir Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Verðmætin verða ekki til af sjálfu sér Hafdís Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvað varð um tillögurnar? Ragnhildur Jónsdóttir skrifar Skoðun Spyrjið okkur hvað við sjáum á TikTok Lena Amirsdóttir Mulamuhic skrifar Skoðun Erum við að borða það sem við höldum að við séum að borða? Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Lyf eru fjárfesting í fólki og framtíðinni Erla Sigríður Skarphéðinsdóttir skrifar Skoðun Mikilvæg niðurstaða fyrir launafólk Finnbjörn A. Hermannsson skrifar Skoðun Valkvætt samhengi Ásdísar svo hún geti teiknað upp réttu fyrirsögnina Eydís Inga Valsdóttir skrifar Sjá meira
Sjáðu þig - Hvers vegna skiptir máli að krabbamein greinist snemma? Nanna Margrét Kristinsdóttir Skoðun
Barn fyrir bíl Albína Pálsdóttir,Anna Margrét Ásbjarnardóttir,Brynhildur Bolladóttir,Geir Finnsson,Gísli Marteinn Baldursson,Halldóra Þórsdóttir,Hrafnhildur Ingibjargardóttir Hallsdóttir,Kjartan Sveinn Guðmundsson,Rán Flygenring,Sveinn Þórhallsson ,Viktor Lorange Skoðun
Ekkert leyniletur heldur íslenskt ritmál – Punktaletur á að vera sjálfsagður hlutur Hjalti Sigurðsson Skoðun
Skoðun Sjáðu þig - Hvers vegna skiptir máli að krabbamein greinist snemma? Nanna Margrét Kristinsdóttir skrifar
Skoðun Viðreisn vill raunverulegar forvarnir gegn nikótínneyslu ungmenna Sandra Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Tíminn sem tapast þegar næringin fylgir ekki æfingaálaginu Lilja Guðmundsdóttir ,Arnar Sölvi Arnmundsson skrifar
Skoðun Ekkert leyniletur heldur íslenskt ritmál – Punktaletur á að vera sjálfsagður hlutur Hjalti Sigurðsson skrifar
Skoðun Barn fyrir bíl Albína Pálsdóttir,Anna Margrét Ásbjarnardóttir,Brynhildur Bolladóttir,Geir Finnsson,Gísli Marteinn Baldursson,Halldóra Þórsdóttir,Hrafnhildur Ingibjargardóttir Hallsdóttir,Kjartan Sveinn Guðmundsson,Rán Flygenring,Sveinn Þórhallsson ,Viktor Lorange skrifar
Skoðun Valkvætt samhengi Ásdísar svo hún geti teiknað upp réttu fyrirsögnina Eydís Inga Valsdóttir skrifar
Sjáðu þig - Hvers vegna skiptir máli að krabbamein greinist snemma? Nanna Margrét Kristinsdóttir Skoðun
Barn fyrir bíl Albína Pálsdóttir,Anna Margrét Ásbjarnardóttir,Brynhildur Bolladóttir,Geir Finnsson,Gísli Marteinn Baldursson,Halldóra Þórsdóttir,Hrafnhildur Ingibjargardóttir Hallsdóttir,Kjartan Sveinn Guðmundsson,Rán Flygenring,Sveinn Þórhallsson ,Viktor Lorange Skoðun
Ekkert leyniletur heldur íslenskt ritmál – Punktaletur á að vera sjálfsagður hlutur Hjalti Sigurðsson Skoðun