Skoðun

Í Singapúr dugði eitt orð

Margrét Reynisdóttir skrifar

„Sól, sól, skín á mig,“ söng ég í huganum. Svo steig ég út.

Nei, takk. Nóg komið.

Í Singapúr er heitt allan ársins hring, rakinn sér um að maður gleymi því ekki og inn á milli rignir af slíkri sannfæringu að íslenskur úði virðist hálfgert metnaðarleysi. Regnhlífin fær því tvöfalt hlutverk. Hér fást regnhlífar með innbyggðri UV-vörn sem verja mann fyrir hellidembu og sólinni þess á milli.

Ég hafði lengi hugsað um sól sem eitthvað sem maður ætti að nýta þegar hún léti sjá sig. Þarna lærði ég að fela mig markvisst fyrir henni.

Á námskeiðum um menningarlæsi fjalla ég um hvernig við túlkum umhverfi okkar og hegðun annarra út frá eigin reynslu. Í Singapúr fékk ég reglulega tækifæri til að skoða mín eigin viðmið. Fyrsta verkefnið var að sætta mig við að skugginn væri eftirsóknarverðasti staðurinn.

Þegar tré er meira en fallegt tré

Ég fór fljótt að kunna að meta yfirbyggðar gönguleiðir sem skýldu fyrir bæði sól og regni. Tré á réttum stað gat ráðið því hvorum megin götunnar ég gekk.

Þegar maður leitar að skugga hættir tré að vera bara fallegt tré.

Gróðurinn vakti athygli mína víða um borgina. Inn á milli háhýsanna voru tré, runnar og blóm sem gerðu gönguferðirnar ánægjulegri. Við gangbrautir gat ég svo fylgst með sekúndunum þar til græni kallinn hyrfi. Ég þurfti aldrei að giska á hvort ég næði yfir.

Þetta voru smáatriði sem ég fór að meta í daglegu lífi. Það er auðvelt að horfa á borg og sjá byggingar. Maður tekur eftir öðrum hlutum þegar maður þarf að ganga um hana í hita og raka.

Stífar herðar og stærðfræði í sömu ferð

Verslunarmiðstöðin nálægt mér var loftkældur heimur út af fyrir sig. Veitingastaðir, verslanir, snyrtistofur og nuddstaðir. Á efri hæðinni var líka boðið upp á aukakennslu fyrir börn. Það má greinilega sinna bæði stífum herðum og stærðfræðikunnáttu fjölskyldunnar í sömu ferð.

Ég fór að skilja hvers vegna fólk sækti þangað til að eiga stund saman. Sundlaugarnar okkar komu mér í hug. Aðstæðurnar eru ólíkar en þörfin fyrir samveru kunnugleg.

Í íbúðinni þar sem ég gisti voru tvær hellur, ofn og vinnupláss sem krafðist töluverðrar skipulagshæfni. Ef ég eldaði hitnaði inni og þá þurfti að auka loftkælinguna. Eldavélin og kælikerfið unnu samviskusamlega hvort gegn öðru.

Sem betur fer var hægt að borða annars staðar.

Borgarlífið við matarborðið

Matarhallir svokölluð hawker centres, voru meðal þess sem mér fannst skemmtilegast í Singapúr. Þar mátti velja úr fjölbreyttum réttum á viðráðanlegu verði, setjast við sameiginleg borð og fylgjast með mannlífinu.

Kínverskar og indverskar matarhefðir voru meðal þess sem mátti kynnast. Fólk kom til að borða, hittast og halda svo áfram með daginn. Þarna var auðvelt að sitja aðeins lengur en maður hafði ætlað sér.

Það sem greip mig fyrst var þó það sem fólk skildi eftir á borðunum. Ég sá gesti leggja frá sér persónulega muni til að taka frá sæti meðan þeir fóru að panta. Síminn lá eftir á borðinu á meðan eigandinn fór að panta hádegismatinn.

Þetta gaf mér sterka tilfinningu fyrir öryggi. Samt var eftirlitið líka sýnilegt. Við hjólastæði á einum veitingastað stóð einfaldlega á stóru skilti: „We are watching you.“ Það þurfti að minnsta kosti ekki að velkjast í vafa um skilaboðin.

Reglurnar giltu líka um ávaxtaskálina

Skýr skilaboð voru raunar víða. Í almenningssamgöngum sá ég áminningar um tillitssemi og um að gefa öldruðum sæti og hafa ekki hátt. Í rúllustigum tók ég eftir því hvað fólk hélt sig samviskusamlega vinstra megin og gaf þeim sem vildu ganga hraðar pláss hægra megin.

Sjálf þurfti ég stundum persónulega leiðsögn. Eitt sinn gekk ég með ávaxtaskál í neðanjarðargöngum þegar öryggisvörður benti mér vinsamlega á að þar mætti ekki borða. Þarna stóð ég með ávextina mína og hugsaði: Þetta er nú varla stórmál. Fyrir mér var þetta ávaxtaskál. Fyrir honum var þetta regla sem gilti líka um ávaxtaskálar.

Atvikið rifjaði upp setningu sem við heyrum stundum á vinnustöðum: „Þetta ætti nú að vera augljóst.“ En hverjum? Starfsmanninum sem hefur verið þar í tíu ár? Nýja samstarfsfélaganum sem kemur úr öðru starfsumhverfi? Gestinum sem er að koma í fyrsta sinn? Við höfum oft skýrar væntingar um hegðun annarra án þess að hafa sagt þær upphátt. Svo verðum við hissa þegar fólk kann ekki reglurnar. Nýr starfsmaður ætti ekki að þurfa að uppgötva allar óskráðu reglurnar með því að brjóta þær fyrst.

Draugurinn í lyftunni

Mínar eigin venjur komu skýrast í ljós í lyftunni. Á ferðalagi mínu um Ástralíu hafði ég vanist því að fólk næði frekar augnsambandi við mig og auðvelt væri að spjalla við ókunnuga. Í húsinu þar sem ég dvaldi í Singapúr gekk fólk oft fram hjá mér án þess að heilsa eða ná augnsambandi. Á göngunum, í lyftunni og á leiðinni út. Stundum leið mér eins og ég væri draugur. Ég var greinilega á staðnum en enginn virtist þurfa að staðfesta það.

Ég tók sérstaklega eftir þessu af því að ég var vön öðru. En hvað sagði það mér í raun um fólkið sem ég mætti? Í sjálfu sér ósköp lítið. Þarna reyndi á mikilvægan þátt í menningarlæsi: að greina á milli þess sem við sjáum og þess sem við ályktum. Ég sá fólk ganga fram hjá án þess að heilsa. Tengdist það venjum um að gefa fólki næði, feimni, annríki eða einfaldlega því hvernig dagurinn hafði verið?

Ég gat ekki lesið hugsanir nágranna minna. Ég ákvað þess vegna einn daginn að hefja samtal í lyftunni. Við urðum ekki bestu vinir. En það varð þó samtal.

Heilt svar í einu orði

Önnur kennslustund kom þegar ég óskaði eftir að færa bókun um tvo klukkutíma. Svarið var:

„Can.“

Það var allt og sumt.

Ég beið næstum eftir framhaldinu. „Já, ekkert mál.“ „Það er sjálfsagt.“ En framhaldið kom ekki enda hafði ég þegar fengið svarið. Í Singapúr eru fjögur opinber tungumál en enska er helsta samskiptatungumálið. Þar er töluð staðbundin útgáfa af ensku, oft kölluð Singlish, þar sem stutt svör á borð við „Can.“ eru bæði algeng og fullnægjandi.

Kannast þú við að fá stutt svar frá samstarfsfélaga og velta fyrir þér hvort hann sé pirraður? Þá þekkirðu hvernig við getum lesið heilmikið í örfá orð.

Sama tungumál, ólíkar væntingar

Þetta á beint erindi inn á íslenska vinnustaði. Við ráðum fólk sem talar ensku, tökum á móti gestum á ensku og gerum svo ráð fyrir að samskiptin séu leyst. En sameiginlegt tungumál tryggir ekki sameiginlegan skilning á kurteisi. Sum okkar orða svör óbeint en önnur vilja koma sér beint að efninu.Sum sýna áhuga með spurningum, önnur með því að hlusta án þess að grípa fram í.

Þegar ég vinn með fyrirtækjum að samskiptum og þjónustu skiptir þessi aðgreining máli. Vitum við að starfsfólk skilji væntingarnar okkar? Túlkum við þögn sem samþykki? Gerum við ráð fyrir að gestur sem orðar beiðni á annan hátt en við eigum að venjast sé óánægður? Menningarlæsi minnir okkur á að okkar túlkun er ekki alltaf sú rétta. Stutt svar þarf til dæmis ekki að merkja að viðkomandi sé pirraður. Stundum er best að spyrja frekar en að giska.

Venjurnar í farteskinu

Ég fór til Singapúr með mínar venjur í farteskinu. Þær reyndust ekki allar jafn nytsamlegar þar og heima. Sólarþráin vék fyrir skuggaleit og ég lærði að eitt orð gat verið fullkomlega kurteist svar.

Við þurfum ekki að kunna allar venjur heimsins. En við getum tekið eftir því þegar okkar eigin venjur eru farnar að stjórna túlkuninni. Við getum orðið forvitnari um það sem við skiljum ekki strax og fljótari að spyrja áður en við dæmum. Það kemur sér jafn vel á vinnustað á Íslandi og í lyftu í Singapúr.

Er hægt að læra það?

Can.


Höfundur er eigandi og ráðgjafi Gerum Betur og sérfræðingur í þjónustu, samskiptum og menningarnæmni.




Skoðun

Sjá meira


×