Ekki sammála Lárusi þá og ekki núna: „Þetta er bara heimskulegt“ Aron Guðmundsson skrifar 6. ágúst 2026 15:31 Lárus Orri og Albert Brynjar störfuðu saman á sínum tíma í Stúkunni. Þeir voru ekki oft sammála um dómgæslu þá og eru það heldur ekki núna þegar sá fyrrnefndi er orðinn þjálfari ÍA í Bestu deildinni Vísir/Samsett Albert Brynjar Ingason segir heimskulegt athæfi Gísla Eyjólfssonar, leikmanns ÍA í leik gegn Víkingi Reykjavík á dögunum, hafa verðskuldað rautt spjald líkt og var raunin.
Leiknum lauk með 2-2 jafntefli en atvikið átti sér stað undir lok leiks þegar að Skagamenn voru einum manni fleiri eftir að Oliver Ekroth, varnarmanni Víkinga, hafði verið vikið af velli. Gísli Eyjólfsson fékk svo rautt spjald fyrir að setja höfuðið í Davíð Örn Atlason. Lárus Orri Sigurðsson, þjálfari ÍA, var langt í frá ánægður með dómgæsluna í leiknum sagði hana hafa kostað ÍA sigur. „Dómararnir verða að fara að verða svolítið klókari. Davíð er klókur og ögrar Gísla og kallar fram viðbrögð frá honum. Það eina sem dómarinn á að gera er að labba að þeim og segja þeim að hætta þessu kjaftæði. Gefa báðum gult og málið dautt,“ sagði Lárus Orri í viðtali eftir leik en lesa má það í heild sinni hér: Var sjaldan sammála Lárusi Rauða spjald Gísla Eyjólfssonar var tekið fyrir í Stúkunni á Sýn Sport í gær. Klippa: Heimskulegt athæfi verðskuldi rautt spjald „Við sátum nú oft hér í Stúkunni, ég og Lárus Orri og vorum aldrei sammála um dóma. Aldrei. Við verðum ekki sammála hérna heldur,“ sagði Albert Brynjar, einn af sérfræðingum Stúkunnar um rauða spjaldið sem að Gísli fékk í leiknum gegn Víkingum. „Gísli hefði aldrei átt að gera þetta. Til hvers er hann að þessu? Við sjáum það líka að honum langaði að kasta boltanum í hann. Einum manni fleiri, reynslumikill leikmaður. Auðvitað er hægt að sleppa þessu en þetta er svo ógeðslega heimskulegt.“ Albert segist sammála Helga Mikael, dómara leiksins, í þessu atviki. „Þetta er bara rautt. Þetta er bara heimskulegt hjá Gísla.“ Umræðuna úr Stúkunni má sjá í spilaranum hér fyrir ofan.
Besta deild karla ÍA Stúkan Mest lesið Óhuganlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Gísli kom af fjöllum þegar talið barst að Ljungberg Sport Fjórtán ára drengur gaf sig fram við lögreglu Sport Þjálfari Hákonar grét eftir leik Fótbolti Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport Fleiri fréttir Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Sjá meira