Árásirnar haldi áfram skili viðræðurnar ekki sínu Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 27. júlí 2026 20:32 Donald Trump Bandaríkjaforseti segir ekkert til í því að vopnabúr Bandaríkjanna sé að minnka. EPA Donald Trump Bandaríkjaforseti segist eiga í góðum viðræðum við stjórnvöld í Íran og að möguleiki sé á samkomulagi í deilum þeirra. Hann hótaði samt sem áður áframhaldandi árásum skili viðræðurnar ekki árangri. „
Við erum að tala saman núna,“ sagði Trump við fréttamenn nú í dag en bætti við að Íranir hefðu óskað eftir viðræðunum vegna mikillar hörku í árásum Bandaríkjanna. „Ég held að það séu góðar líkur á að eitthvað gæti gerst, og ef svo er þá er það gott, ef ekki þá förum við aftur í það sem við vorum að gera fyrir tveimur dögum.“ Eftir um tvær vikur af daglegum árásum Bandaríkjanna á Íran hættu þeir skyndilega. Háttsettur íranskur embættismaður sagði við Reuters að Íranir myndu hætta sínum árásum svo lengi sem sjálfskipað vopnahlé Trump héldi. Hins vegar bárust tilkynningar um drónaárásir Írana í Sádí-Arabíu, Jórdaníu og Írak í dag. Esmail Baghaei, talsmaður íranska utanríkisráðuneytisins, sagði að enn væru skilaboð að berast á milli en að fréttir af því að Íran hefði óskað eftir viðræðum væru uppspuni. Segir engan skort á skotfærum Ráðgjafar forsetans eru sagðir hafa lýst yfir áhyggjum vegna hugmynda Trumps um að auka umfang árása gegn Íran. Það sé meðal annars vegna þess að gengið hefur á birgðir flugskeyta í loftvarnarkerfi Bandaríkjanna, sér í lagi þeirra sem skjóta niður skotflaugar. Trump vísaði því hins vegar á bug að Bandaríkin stæðu frammi fyrir skorti á skotfærum. Herinn væri að endurbyggja birgðir sem hefði verið gengið á vegna sendinga til Úkraínu.
Bandaríkin Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Íran Mest lesið Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Innlent „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Innlent Skafið og saltað Veður „Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ Innlent Hvalfjarðargöng opin á nýjan leik Innlent Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Erlent Musk setti Úkraínumönnum takmörk á tengingar við Starlink Innlent Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Innlent Fleiri fréttir Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Sjá meira