„Þetta kemur okkur mjög á óvart“ Tómas Arnar Þorláksson skrifar 20. júlí 2026 20:01 Sigurður Ágúst Sigurðsson, formaður Félags eldri borgara í Reykjavík. vísir/Getty/vilhelm Formaður Félags eldri borgara segir lögregluna hafa brugðist manni á áttræðisaldri sem leitaði ítrekað hjálpar vegna fjárkúgunar. Hann kallar eftir því að verkferlar verði endurskoðaðir.
Minnst þrír hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald og fleiri handteknir vegna gruns um að hafa kúgað fé af manni á áttræðisaldri. Alls voru hafðar 108 milljónir af manninum með hótunum um ofbeldi en einnig villtu aðilarnir á sér heimildir og sviku út fé í gegnum falska aðganga á netinu. Til skoðunar er hvort að fleiri brotaþolar séu undir í málinu. Fjársvikin hófust í apríl á síðasta ári og stóðu yfir þar til sautjánda júní á þessu ári þegar að sérsveitin var kölluð til á heimili mannsins þar sem honum var ógnað með hníf. Lögmaður mannsins sagði lögregluna hafa dregið á langinn að hefja rannsókn og þannig brugðist í málinu. Maðurinn hafi ítrekað leitað aðstoðar en verið vísað frá. Sigurður Ágúst Sigurðsson, formaður Félags eldri borgara í Reykjavík og nágrenni, segir vinnubrögð lögreglu mikil vonbrigði. „Þetta kemur okkur mjög á óvart, það eru mikil vonbrigði í ljósi þess að við í Félagi eldri borgara í Reykjavík eigum mjög gott samstarf við lögregluna og alla þessa aðila sem koma að þessum málum. Lögreglan hefur verið að upplýsa okkur um þær breytingar sem þau hafa verið að gera. Ég get til dæmis nefnt samfélagslögregluna. Við hefðum bundið miklar vonir við það að það yrði brugðist við í svona tilfellum.“ Hann segir mikla skömm oft hamla eldri borgurum í málum sem þessum. „Fólk veigrar sér við að hringja á lögregluna en þegar það loksins gerir það þá verður að bregðast við með fagmennsku. Það gengur ekki að setja svona mál í einhvern skýrslununka og á meðan er viðkomandi þolandi í hættu. Það getur vel verið að það séu fleiri dæmi en ef svo er þá hlýtur lögreglan að skoða sín vinnubrögð. Þarna hefur eitthvað brugðist, ég trúi ekki öðru.“ Hann segir ofbeldi og hótanir gagnvart eldri borgurum ekki vera nýtt af nálinni. „Já, já, við erum að heyra þetta en upphæðin er komin í þá upphæð að þarna eru aðilar sem eru ábyggilega farnir að hugsa með sér að fela slóðina og taka manninn af lífi. Ég held að það hafi ekki verið langt í það, ég ætla að fullyrða það,“ segir hann og bætir við: „Ég skora á lögregluna að skoða vinnuferla. Við erum búin að ræða þetta þannig að það á að taka svona föstum tökum og við höfum dæmi þar sem var ekki leitað til lögreglu og það farið illa.“
Lögreglumál Eldri borgarar Efnahagsbrot Fjármál heimilisins Mest lesið Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Vilja formlega afsökun frá Selenskí Erlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Erlent Tilkynnt um tvær líkamsárásir Innlent Fleiri fréttir Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Sjá meira