„Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ Agnar Már Másson skrifar 17. júlí 2026 12:10 Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra. Utanríkisráðherra segir það eyða mikilli óvissu að Evrópusambandið vilji framlengja sérlausn Íslands er varðar loftslagsheimildir. Um tímabundna lausn til ársins 2030 er að ræða, en hún vill meina að varanleg lausn yrði eitt af baráttumálum Íslendinga ef þeir hefja samningaviðræður við Evrópusambandið.
Utanríkisráðuneytið tilkynnti í morgun að íslensk stjórnvöld og framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefðu skrifað undir viljayfirlýsingu um að framlengja sérlausn Íslands er varðar losunarheimildir, sem eru þau gjöld sem fyrirtæki borga fyrir hvert tonn af koltvísýringi sem þau leysa út í andrúmsloftið. Gerist þetta í kjölfar þess að ESB boðaði breytingar á löggjöf sinni en í frétt Politico um málið er heimildunum lýst sem einu öflugasta tæki ESB til þess að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda. Sérlausnin gengur út á það að í stað þess að íslensk flugfélög þurfi að bjóða í heimildirnar á uppboði eins og flugfélög annars staðar, fá íslensk stjórnvöld að úthluta þeim ókeypis til flugfélaga. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra segir að íslensk flugfélög fái með þessu loftslagsbætur upp á 1,6 milljarða. „Þetta eyðir mikilli óvissu fyrir flugið okkar og sýnir að mínu mati svart á hvítu að Evrópusambandið er tilbúið til að koma til móts við sérstakar aðstæður þegar þær eru til staðar og það hlustar á markvissa hagsmunagæslu þegar hún er sett fram eins og við gerðum í nákvæmlega þessu.“ Spurð hvers vegna ekki hafi fengist varanleg lausn svarar hún: „Hvort sem okkur líkar það betur eða verr, þá erum við fyrir utan Evrópusambandið. En það sem við náðum þá fram er þessi framlenging sem var ekki sjálfgefin.“ Hún segir að ef Íslendingar kjósi hinn 29. ágúst að hefja aðildarviðræður við ESB á ný verði þetta eitt af áherslumálunum við samningaborðið. „Þá verður þetta auðvitað eitt af okkar áhersluatriðum, að fá varanlega lausn í þágu íslenskra hagsmuna og sem tekur tillit til þeirra aðstæðna sem við búum við og okkar atvinnulífs,“ segir Þorgerður Katrín. Á síðustu árum hafa loftslagsgjöldin reynst mikill kostnaður fyrir íslenska flugfélagið Icelandair, sem hefur á síðustu fjórum árum greitt tæplega 14 milljarða króna í losunar- og kolefniskostnað, sem nemur um fjórföldu því sem tap félagsins hefur verið á sama tímabili. Þannig að maður veltir því fyrir sér: Gengur þessi sérlausn nógu langt? „Við höfum unnið þetta í samvinnu eða samstarfi við hagaðila. Við höfum upplýst um þetta og við erum að hafa það í huga að við erum að fá loftslagsbætur að andvirði 1,6 milljarða og það þýðir að við förum ekki í uppboð á þeim eins og aðrar þjóðir gera, heldur erum við að láta flugfélögin, eða Icelandair, fá þetta til þess einmitt að jafna þetta og gera okkur áfram samkeppnishæf,“ svarar hún. Ekki tókst að semja um undanþágur fyrir skipaflutninga til Íslands í þessari lotu, sem Þorgerur segir bíða áframhaldandi vinnu, þar sem ESB-tillögurnar snerta einnig aðra geira, svo sem sjóflutninga og iðnað.
Flug Icelandair Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Evrópusambandið Mest lesið Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent „Stærsta tölvuinnbrot sögunnar“ hjá rafmyntarisa Viðskipti erlent Getur ekki lengur orða bundist Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Bláa lónið á markað í nóvember Viðskipti innlent Tekjur Nova í hæstu hæðum Viðskipti innlent Svipmyndir úr Hörpu: Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki Gervigreindin: „Fólki fannst eins og ég væri að koma úr framtíðinni“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Sjá meira