Jóhannes Kristinn í FH en „klárlega hluti af framtíðinni í Víkinni“ Sindri Sverrisson skrifar 16. júlí 2026 13:30 Jóhannes Kristinn Bjarnason kom til Víkings í vor en er farinn að láni til FH. Samsett/Víkingur/FH Fótboltamaðurinn Jóhannes Kristinn Bjarnason hefur verið lánaður frá Íslandsmeisturum Víkings til FH út yfirstandandi leiktíð, eftir að hafa komið til Víkinga í vor frá Kolding í Danmörku.
Hjá FH mun Jóhannes leika undir stjórn föðurbróður síns og nafna, Jóhannesar Karls Guðjónssonar. Jóhannes Kristinn, sem er 21 árs gamall, hefur komið við sögu í sex leikjum í Bestu deildinni með Víkingum í sumar en aðeins einu sinni í byrjunarliði. Hann er uppalinn KR-ingur en fór ungur í atvinnumennsku til Norrköping í Svíþjóð, áður en hann sneri aftur til KR og spilaði með liðinu frá 2023-25. Hann hélt svo til Kolding í fyrra en spilaði aðeins tíu leiki fyrir liðið. Nú hefur Jóhannes svo verið lánaður frá Víkingi til FH og kemur til með að hjálpa liðinu í þeirri miklu fallbaráttu sem það stendur í en mun svo snúa aftur í Víkina. „Jóhannes er klárlega hluti af framtíðinni í Víkinni en þarf að fá mínútur og við vonum að hann fái þær hjá FH og hlökkum til að sjá hann aftur Hamingjunni að loknu tímabili,“ segir Kári Árnason, yfirmaður knattspyrnumála hjá Víkingi. Kollegi Kára hjá FH, Davíð Þór Viðarsson, segir: „Jóhannes er búinn að sýna og sanna að hann er toppleikmaður í þessari deild og hann kemur til með að styrkja okkur mikið á lokasprettinum í deildinni.“ Félagaskiptasumarglugginn á Íslandi opnaðist í dag og því er Jóhannes löglegur í næsta leik FH sem er við Breiðablik á mánudagskvöld.
Besta deild karla Víkingur Reykjavík FH Mest lesið „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Íslenski boltinn „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Enski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn 75 prósent látinna NFL-leikmanna með heilaskaða Sport Snýr aftur til keppni eftir saurslysið Sport Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Enski boltinn „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Enski boltinn Engin uppalin spilaði með Fram Íslenski boltinn Var klár í samkeppnina við Ingvar Íslenski boltinn Fleiri fréttir Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Sjá meira