Carroll fær loksins miskabæturnar frá Trump Hólmfríður Gísladóttir skrifar 15. júlí 2026 11:03 Annað mál Carroll gegn Trump, þar sem henni voru dæmdar enn hærri bætur, er enn að þvælast í dómskerfinu. Getty Rithöfundurinn og blaðamaðurinn E. Jean Carroll hefur loks fengið greiddar 5,6 milljón dala miskabætur, sem henni voru dæmdar eftir að kviðdómur komst að þeirri niðurstöðu að Donald Trump Bandaríkjaforseti hefði brotið kynferðislega gegn henni og ófrægt hana.
Dómurinn er frá árinu 2023 en fjármunirnir hafa verið geymdir í sjóði á meðan honum var áfrýjað. Trump hefur alls staðar komið að lokuðum dyrum í dómskerfinu og málinu lauk endalega á dögunum þegar Hæstiréttur neitaði að taka málið fyrir. Dómarinn sem hefur haft umsjón með málinu úrskurðaði í kjölfarið að Carroll skyldu greiddar bæturnar, sem átti sér stað í síðustu viku. Samkvæmt New York Times vísaði Hvíta húsið fyrirspurnum um málalokin á lögmann Trump, sem sagði Bandaríkjamenn standa með forsetanum. Gerði hann því skóna að um væri að ræða nornaveiðar og að málaferli Carroll hefðu verið fjármögnuð af Demókrötum. Carroll höfðaði upphaflega málið á hendur Trump eftir að hann kallaði ásakanir hennar „blekkingar og lygar“ á samfélagsmiðlum. Hann hefur ítrekað neitað því að þekkja Carroll, hvað þá að hafa brotið gegn henni. Annað mál Carroll gegn Trump, einnig meiðyrðamál, er enn í ferli í dómskerfinu eftir að alríkisdómstóll í New York dæmdi henni 83,3 milljónir dala í skaðabætur árið 2024. Trump hyggst einnig freista þess að fá Hæstarétt til að taka það mál fyrir.
Bandaríkin Kynferðisofbeldi Donald Trump Mest lesið Gervigreind hakkaði sig inn á vef stjórnvalda Erlent Bannaði Trump að banna fjölmiðla Erlent Segja upp tveimur sérfræðingum Innlent Dagný Ósk látin Innlent Móðir lagði ríkið í Hæstarétti vegna vanrækslu á EES Innlent Færri þunganir í áhættuhópi með nýrri tegund fósturskimunar Innlent Hélt á myndum af skólabörnum og sakaði Bandaríkin um hryðjuverk Erlent Barnið ekki í viðeigandi öryggisbúnaði Innlent „Mjög stór og mikilvæg niðurstaða fyrir okkur“ Innlent Stíflueyðir og gólfþrif ollu slysinu á Óseyri Innlent Fleiri fréttir Telur kosningasvik ekki hafa áhrif á stjórnarmyndun Høiby skiptir um verjendur Veturinn verði Rússum erfiður Bannaði Trump að banna fjölmiðla Gervigreind hakkaði sig inn á vef stjórnvalda Hélt á myndum af skólabörnum og sakaði Bandaríkin um hryðjuverk Dreifðu óvart piparúða um þinghúsið fyrir leikmun í innflytjendaumræðu Íslensk lögregla hjálpaði við rannsókn á smygli á fólki til Bretlands Polo einn kröftugasti fellibylur sögunnar Segja aðgengi að heimili forsetans forréttindi en ekki rétt Fögnuður varð að fjöldamorði Taívan og mannréttindi rauðar línur fyrir Kínverja Bað Trump um „vetrarpakka“ Segir stóra ákvörðun framundan Xi vill að Trump sleppi takinu á Taívan Þetta er í samkomulaginu um Grænland Halda andstæðingum fjarri Grænlandi með samkomulagi Svona var ræða Trumps: Spurning um „gereyðingu“ og nýtt nafn á gervigreind Í leyfi á meðan kosningasvik eru til rannsóknar Bein útsending: Ræða Trumps á allsherjarþinginu Bretar ætla að aðstoða Sáda gegn Hútum Beita buddunni til að vega á móti óvinsældum Trumps Rétta yfir konu spænska forsætisráðherrans Grunur um alvarlegt kosningasvindl í Svíþjóð Stefna að tveimur nýjum herstöðvum á Grænlandi Sniðganga Hvíta húsið Bað Selenskí um að stöðva árásir á rússneskar olíuvinnslur Höfða mál gegn Trump vegna bannsins Pútín sló öll met Sigurboginn verður leyniskyttuhreiður Sjá meira