ESB boðar aldurstakmörk á samfélagsmiðlum Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 13. júlí 2026 10:29 Af kynningu skýrslunnar. Fyrir miðju er Ursula von der Leyen forseti framkvæmdastjórnar ESB. Til hægri er Maria Melchior og til vinstri er Jörg M. Fegert sem sátu í forsætum nefndarinnar. AP Forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins segir sambandið þurfa að setja aldursmörk á aðgang að samfélagsmiðlum. Nefnd á vegum framkvæmdastjórnarinnar kynnti í dag skýrslu um fylgni notkunar ungmenna á samfélagsmiðlum og vanlíðanar.
Nefndin sem starfaði undir nafninu Sérfræðinefnd um öryggi barna á internetinu birti skýrslu sína í síðasta mánuði og kynnti tillögur sínar fyrir Ursulu von der Leyen forseta framkvæmdastjórnarinnar í morgun. Tillögurnar fela í sér blátt bann við notkun barna undir þrettán ára aldri á samfélagsmiðlum og svo fái börn aukinn aðgang að samfélagsmiðlum að átján ára aldri. „Gögnin sýna staðreyndirnar. Um alla Evrópu eyðir ungt fólk nú fjórum til sex klukkustundum á dag fyrir framan skjá. Sex klukkustundir á hverjum degi – það jafngildir tuttugu árum af lífi þeirra. Á sama tíma hafa næstum 60% ungra barna um alla Evrópu upplifað tilfinningaleg eða sálfélagsleg vandamál á netinu. Og dag og nótt sjá foreldrar afleiðingarnar af þessu: svefnleysi, þunglyndi, kvíði, neteinelti, útsetning fyrir skaðlegu efni,“ er haft eftir Ursulu von der Leyen í tilkynningu. Framleiðendur og eigendur samfélagsmiðla eigi að bera ábyrgð á að valda börnum ekki skaða. „Við ætlumst ekki til þess að börn hanni sín eigin öryggisbelti. Við ætlumst ekki til þess að foreldrar setji upp loftpúða heima hjá sér. Og nákvæmlega það sama verður að gilda um stóru tæknifyrirtækin.“ Þörf sé á aldursmiðuðum takmörkunum á samfélagsmiðlum. „Því meira sem við lærum og því meira sem við sjáum áhrifin á börnin okkar, því sterkari verða rökin fyrir upphafsdagsetningu fyrir samfélagsmiðla. Rétt eins og við gefum börnum okkar ekki bíllykla áður en þau hafa fengið bílpróf eða leyfum þeim að kaupa áfengi fyrr en þau hafa aldur til, þurfum við að setja aldursmörk á það þegar þau geta löglega fengið aðgang að samfélagsmiðlum,“ segir hún. Auk hins fyrrnefnda leggur nefndin til að börn undir þriggja ára aldri hafi engan aðgang að skjám. Á síðasta ári steig Ástralía fyrst landa heimsins það skref að innleiða bann við notkun barna undir sextán ára aldri á samfélagsmiðlum. Í fleiri löndum, svo sem Bretlandi, hafa áform verið uppi um áþekkar aðgerðir.
Samfélagsmiðlar Evrópusambandið Símanotkun barna Börn og uppeldi Mest lesið Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Nóg sé komið af Trump Erlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Fleiri fréttir „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Sjá meira