Körfubolti

Kinu Rochford sagður myrtur

Valur Páll Eiríksson skrifar
Kinu Rochford var lykilmaður í liði Þórs veturinn 2018-19.
Kinu Rochford var lykilmaður í liði Þórs veturinn 2018-19. vísir/vilhelm

Körfuboltamaðurinn Kinu Rochford, sem lék hér á landi á árunum 2018 til 2020, er látinn 35 ára að aldri. Hann er sagður hafa verið skotinn til bana í Harlem í New York.

Bandarískir miðlar og í færslum á samfélagsmiðlum er greint frá því að Rochford hafi verið skotinn til bana er hann var að spila körfuboltaleik í Harlem í New York í gær.

Opinberir aðilar hafa ekki staðfest tíðindin og þess er beðið.

Karfan.is greindi fyrst frá andláti Rochford.

Rochford er minnst með hlýju og samúðarkveðjur hafa streymt á samfélagsmiðla frá skólum hans, Globe Tech og FDU.

„Samúðarkveðjur til fjölskyldu og vina Kinu Rochford, fyrrverandi yfirburðaleikmanns með Globe Tech og FDU um miðjan síðasta áratug. Megi hann hvíla í krafti,“ segir í yfirlýsingu frá aðilum tengdum skólunum tveimur.

Rochford kom til Þórs í Þorlákshöfn haustið 2018 og var á meðal betri leikmanna landsins þann veturinn er Þór féll úr leik í undanúrslitum í úrslitakeppninni. Hann skoraði 19,1 stig að meðaltali í leik og tók 12,2 fráköst að meðaltali og var með flest fráköst allra í deildinni.

Hann var skemmtilegur karakter sem glæddi deildina hér heima miklu lífi með brosmildi sínu og léttleika utan vallar, ekki síður en góðri frammistöðu innan hans.

Veturinn eftir 2019-20 lék hann með Hamri í næst efstu deild.

Rochford var víðförull á ferlinum og spilaði einnig í Sviss, Portúgal, Bretlandi og Kósóvó auk tíma hans á Íslandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×