Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Áróra L Davíðsdóttir og Telma Tómasson skrifa 11. júlí 2026 12:22 Frá Landsmóti hestamanna. LM Tilkynnt var um eina líkamsárás og eitt kynferðisbrot á Landsmóti hestamanna á Hólum í Hjaltadal í nótt. Að öðru leyti var nóttin ágæt, að sögn lögreglu á svæðinu. Hvassviðri er á Norðurlandi vestra og gul viðvörun tekur gildi í fyrramálið. Varað er við því að fólk sé á ferðinni á ökutækjum eða með eftirvagna. Telma Tómasson fréttamaður er á Hólum og hefur fylgst með gangi mála.
Um sex þúsund manns eru stödd á Landsmóti hestamanna á Hólum í Hjaltadal. Mótið hafi gengið fyrir sig “stóráfallalaust að mestu en þó var tilkynnt um eina líkamsárás og eitt kynferðisbrot tilkynnt,“ segir Telma. Bæði málin hafi átt sér stað á mótssvæðinu og eru til rannsóknar hjá lögreglunni á Norðurlandi vestra. Brotaþoli líkamsárásarinnar virðist ekki meiriháttar slasaður. Töluvert hafi verið um ölvun „enda mikil skemmtidagskrá og húllumhæ hérna í gærkvöldi en lögregla segir þó ekki mörg útköll hafa tengst því fyrir utan þessi tvö.“ Gul viðvörun vegna hvassviðris Mótinu verði formlega slitið í kvöld og hápunktar mótsins séu á dagskrá í kvöld. Talsverð umferð sé líkleg þegar fólk haldi heim, bæði í dag og í kvöld. „Fólk ætti að hafa varann á sér. Það hefur svona eitt og annað fokið hér um koll á svæðinu, fánaborgir og grindverk og risaskjárinn sem var uppi, hann er kominn í skjól,“ segir Telma. Tjaldsvæðið við Hóla í Hjaltadal. Vísir/Telma Lögreglan hvetji alla til að meta stöðuna áður en lagt sé af stað og fylgist með á vef Vegagerðarinnar. Þeim tilmælum sé sérstaklega beint til þeirra sem aka bílum sem taka á sig mikinn vind, svo sem þeirra sem séu með eftirvagna. Friðrik Hreinn, varðstjóri hjá lögreglunni á Norðurlandi vestra, segir í samtali við Telmu að umferðarstjórnun og eftirlit með ástandi ökumanna verði hérna á svæðinu, eins og hefur verið alla daga mótsins. Ökumenn séu látnir blása í áfengismæli þegar þeir yfirgefi svæðið en enginn hefur verið kærður fyrir ölvunarakstur.
Hestar Skagafjörður Lögreglumál Mest lesið Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent Kanna hvort Kim eigi son Erlent Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna Innlent „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent Rektorarnir svara fyrir sig Innlent Fleiri fréttir Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar Sjá meira