Boðar fleiri árásir Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 8. júlí 2026 16:01 Trump mætti á blaðamannafund með Úkraínuforseta. EPA Bandaríkjaher ætlar að halda áfram árásunum sínum á Íran í kvöld. Þetta tilkynnti Donald Trump Bandaríkjaforseti á blaðamannafundi á leiðtogafundi Atlantshafsbandalagsins. „
Við gerðum mjög harðar árásir í gær, mjög mjög harðar,“ sagði Trump á fundinum sem Vólodimír Selenskí Úkraínuforseti var einnig viðstaddur. „Ég gaf þeim smá viðvörun, við erum að fara gera mjög harðar árásir aftur í kvöld.“ Aðgerðastjórn Bandaríkjahers (CENTCOM) tilkynnti í gærkvöldi að herinn hefði hafið árásir á nýjan leik á Íran. Um væri að ræða hefndaraðgerð við árásum Írana sem hefðu ráðist á þrjú skip á Hormússundi. Trump sagði einnig á blaðamannafundinum að hann væri ekki ánægður með Írani og ítrekaði áðurnefnda kröfu sína um að Íranir mættu ekki eiga kjarnorkuvopn. Hann hefði þegar unnið hart að því að koma í veg fyrir slíkt. Einnig sagði Trump að Íranir væru ekki lengur eineltisseggir Miðausturlanda heldur væru leiðtogar þeirra „ruglaðir“. Svindlarar og lygarar Aðspurður hvort orð hans um að viðræður um vopnahlé á milli Írans og Bandaríkjanna væru runnin í sandinn þýddu að fram undan væru stórtæk stríðsátök milli ríkjanna tveggja svaraði hann óbeint. Þess í stað sakaði hann Íran um að brjóta gegn vopnahléssamkomulaginu á hverjum degi og að þeir væru bæði að ljúga og svindla. „Þeir munu aldrei byggja kjarnorkuvopn á meðan samningurinn okkar er í gildi, en ég veit ekki hvort við munum ná samkomulagi. Við munum kannski gera það án samnings því þú veist, það er auðveldara,“ sagði forsetinn.
Donald Trump Íran Bandaríkin Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Mest lesið Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Innlent Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Innlent „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Innlent Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Innlent Skafið og saltað Veður Fimm ráðnir aftur eftir uppsagnirnar Innlent „Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ Innlent Hvalfjarðargöng opin á nýjan leik Innlent Fleiri fréttir Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Sjá meira