Trump sparkar í bandamenn í aðdraganda Nató-fundar í Ankara Hólmfríður Gísladóttir skrifar 3. júlí 2026 06:47 Rubio sagði í maí síðastliðnum að óánægja Bandaríkjanna varðandi framgöngu bandamanna í tengslum við Íran yrði rædd á fundinum í júlí. Getty/Anna Moneymaker Donald Trump Bandaríkjaforseti tók sér tíma í gær til að gagnrýna bandamenn á samfélagsmiðlinum Truth Social, þar sem hann sagði meðal annars að Bandaríkin hefðu veitt mun meiri fjármunum til Atlantshafsbandalagsins en nokkuð annað ríki án þess að fá nokkuð fyrir.
Sagði hann þessa stöðu mála fáránlega. Í nótt fór hann enn lengra og sagði ekkert vit í því fyrir Bandaríkin að halda áfram á sömu braut þar sem stuðningurinn væri ekki gagnkvæmur. „Þau voru ekki til staðar fyrir okkur!“ sagði forsetinn og er þar líklega að vísa til þess að önnur bandalagsríki neituðu að taka þátt í aðgerðum Bandaríkjanna og Ísrael gegn Íran, eftir að þær voru hafnar án nokkurs samráðs. Leiðtogar ríkjanna hafa ítrekað bent á að Nató sé jú varnarbandalag og þá er vert að taka fram að eina skiptið sem 5. grein Nató sáttmálans hefur verið virkjuð var í kjölfar árásanna 11. september árið 2001. Greinin fjallar um skuldbindingu aðildarríkja til að koma öðrum ríkjum til aðstoðar þegar á þau er ráðist. Leiðtogar Nató ríkjanna hafa heitið því, undir þrýstingi frá Trump, að auka útgjöld til Nató upp í fimm prósent af vergri þjóðarframleiðslu fyrir árið 2035. Útfærslan verður þó eitthvað mismunandi milli ríkja. Fulltrúar bandalagsríkjanna munu funda í Ankara eftir fjóra daga en Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, hefur sagt fundarhöldin munu verða ein þau mikilvægari í sögu Nató. Óánægja Bandaríkjanna með framgöngu bandamanna í tengslum við Íran yrði meðal annars tekin til umræðu.
Bandaríkin Donald Trump NATO Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Mest lesið Fegursta flugvél Íslands rifin Innlent Óttast að yfir áttatíu hafi farist Erlent Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Innlent Segir Repúblikönum að tala meira um afrek hans Erlent „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Innlent Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Ásakanir á víxl milli leyniþjónusta eftir skothríð í Kænugarði Erlent „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ Innlent Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Innlent Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Innlent Fleiri fréttir Óttast að yfir áttatíu hafi farist Segir Repúblikönum að tala meira um afrek hans Ásakanir á víxl milli leyniþjónusta eftir skothríð í Kænugarði Sakaskrá fjölda glæpamanna óvart hreinsuð Ungmenni drepin og þorp rifið á Vesturbakkanum Hefja síðasta áfanga ferðarinnar til Merkúrs Kviðdómendur fá síðasta séns Trump má enn ekki meina börnum um ríkisborgararétt Kyrrsetja grunsamlegt rússneskt skip á Svalbarða NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Eitraður reykjarmökkur veldur vandræðum í Suðaustur-Asíu Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Sjá meira