Klifu á topp Empire State-byggingarinnar Lovísa Arnardóttir skrifar 1. júlí 2026 20:51 Parið hengdi fána með skilaboðum um ástina á topp byggingarinnar. Vísir/AP Karlmaður og kona voru handtekin í dag eftir að hafa klifið á topp Empire State-byggingarinnar í New York. Maðurinn bað konunnar eftir að þau klifu á toppinn.
Bæði voru þau klædd í svört föt og voru með grímu þegar þau klifruðu upp og hengdu svo á topp byggingarinnar fána sem á stóð: „Þegar kraftur ástarinnar er meiri en ástin á valdi getur heimurinn þekkt frið.“ Í frétt Guardian segir að óljóst sé hvernig parið komst alla leiðina upp á topp skýjakljúfsins sem er 443 metrar. Vitnað er í staðarmiðla um að dróni og þyrla frá lögreglunni í New York hafi verið send á vettvang til að fylgjast með þeim. Í fréttinni kemur jafnframt fram að stuttu eftir hádegi hafi parið klifrað niður á pall fyrir neðan loftnet skýjaklúfsins og þar hafi annað þeirra farið á annað hnéð og það svo virst sem maðurinn væri að biðja konuna um að giftast sér. Parið hafi að því loknu faðmast og kysst. View this post on Instagram A post shared by A N G E L A N I K O L A U (@angela_nikolau) Í frétt Guardian segir að lögreglan hafi ekki staðfest nein nöfn en að fólkið virðist vera Angela Nikolau og Ivan Beerkus. Bæði eru þau frá Rússlandi og eru vön að klifra upp á þök og hafa framkvæmd svipaða hluti í Tianjin í Kína og Los Angeles í Bandaríkjunum. Parið birti myndir af gjörningnum á Instagram og af hringnum sem Beerkus bað hennar með. Fjallað hefur verið um þau í heimildarmynd á Netflix, Skywalkers: A Love Story. Í frétt BBC um málið kemur fram að þau hafi bæði verið handtekin á vettvangi og séu í haldi lögreglunnar en að þau hafi ekki verið kærð. Þar kemur einnig fram að parið hafi verið á toppi byggingarinnar í um tíu mínútur. Þar er einnig haft eftir talsmanni byggingarinnar að þau hafi ekki skapað hættu á meðan gjörningi þeirra stóð. „Það skal áréttað að útsýnispallur Empire State-byggingarinnar, á toppi frægustu byggingar heims í hjarta New York-borgar, býður upp á praktíska leið fyrir eftirminnilegustu bónorðin,“ minnti hann þó á í yfirlýsingu sinni.
Bandaríkin Rússland Ástin og lífið Mest lesið Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Erlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Innlent Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Fleiri fréttir Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Sjá meira