Hvenær ætlum við að taka málefni heimilislausra alvarlega? Erla Björg Sigurðardóttir skrifar 28. júní 2026 08:01 Það hefur verið dapurlegt að fylgjast með umræðunni um húsnæði fyrir kaffistofu Samhjálpar. Í landi sem telur sig vera eitt ríkasta velferðarsamfélag heims ætti það ekki að vera á ábyrgð hjálparsamtaka að tryggja fólki í vanda aðgang að mat, skjóli og mannlegri reisn. Það er hlutverk hins opinbera. Af hverju hefur ekki fyrir löngu verið byggð upp þrepaskipt og samþætt þjónusta fyrir þann sífellt stærri hóp sem fellur á milli kerfa og neyðist til að treysta á góðgerðarsamtök til að fá grunnþörfum sínum fullnægt? Hjálparsamtök sinna ómetanlegu starfi, en þau eiga ekki að gegna hlutverki velferðarkerfisins. Samfélaginu er lögskylt að veita fólki með heilsubrest og félagslegan vanda viðeigandi þjónustu. Stór hluti þeirra sem leitar á kaffistofu Samhjálpar glímir við heimilisleysi. Við vitum að heimilisleysi verður sjaldnast til á einni nóttu. Það er afleiðing samverkandi þátta eins og fátæktar, áfalla, geðræns vanda, vímuefnaröskunar, húsnæðisskorts og félagslegrar einangrunar. Þess vegna er óskiljanlegt að enn skuli ríkja slíkt úrræðaleysi. Um 70% heimilislausra glíma við vímuefnaröskun, sem er meðhöndlanlegur sjúkdómur. Margir búa jafnframt við geðrænan vanda sem einnig er hægt að meðhöndla. Þekkingin er til staðar og hefur verið það í áratugi. Það sem skortir er ekki þekking heldur pólitísk ákvörðun um að samþætta félags- og heilbrigðisþjónustu og byggja upp langtímaúrræði sem styðja fólk til sjálfstæðs lífs. Nú þurfa stjórnvöld að ráðast í fjármagnað átak. Byggja þarf upp þrepaskipta, batamiðaða þjónustu sem mætir einstaklingnum þar sem hann er staddur og tryggir samfelldan stuðning. Þjónustu sem byggir á virðingu, stöðugleika og raunverulegum tækifærum til bata og samfélagsþátttöku. Höfundur er félagsráðgjafi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Málefni heimilislausra Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Sjá meira
Það hefur verið dapurlegt að fylgjast með umræðunni um húsnæði fyrir kaffistofu Samhjálpar. Í landi sem telur sig vera eitt ríkasta velferðarsamfélag heims ætti það ekki að vera á ábyrgð hjálparsamtaka að tryggja fólki í vanda aðgang að mat, skjóli og mannlegri reisn. Það er hlutverk hins opinbera. Af hverju hefur ekki fyrir löngu verið byggð upp þrepaskipt og samþætt þjónusta fyrir þann sífellt stærri hóp sem fellur á milli kerfa og neyðist til að treysta á góðgerðarsamtök til að fá grunnþörfum sínum fullnægt? Hjálparsamtök sinna ómetanlegu starfi, en þau eiga ekki að gegna hlutverki velferðarkerfisins. Samfélaginu er lögskylt að veita fólki með heilsubrest og félagslegan vanda viðeigandi þjónustu. Stór hluti þeirra sem leitar á kaffistofu Samhjálpar glímir við heimilisleysi. Við vitum að heimilisleysi verður sjaldnast til á einni nóttu. Það er afleiðing samverkandi þátta eins og fátæktar, áfalla, geðræns vanda, vímuefnaröskunar, húsnæðisskorts og félagslegrar einangrunar. Þess vegna er óskiljanlegt að enn skuli ríkja slíkt úrræðaleysi. Um 70% heimilislausra glíma við vímuefnaröskun, sem er meðhöndlanlegur sjúkdómur. Margir búa jafnframt við geðrænan vanda sem einnig er hægt að meðhöndla. Þekkingin er til staðar og hefur verið það í áratugi. Það sem skortir er ekki þekking heldur pólitísk ákvörðun um að samþætta félags- og heilbrigðisþjónustu og byggja upp langtímaúrræði sem styðja fólk til sjálfstæðs lífs. Nú þurfa stjórnvöld að ráðast í fjármagnað átak. Byggja þarf upp þrepaskipta, batamiðaða þjónustu sem mætir einstaklingnum þar sem hann er staddur og tryggir samfelldan stuðning. Þjónustu sem byggir á virðingu, stöðugleika og raunverulegum tækifærum til bata og samfélagsþátttöku. Höfundur er félagsráðgjafi.
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar