Stálu Norðmenn víkingaklappinu af Tólfunni? Andri Broddason skrifar 26. júní 2026 07:33 Einhverjum finnst róður Norðmanna vera stuldur á víkingaklappi íslensku stuðningssveitarinnar. Patrick Smith - FIFA/FIFA via Getty Images Norskir stuðningsmenn hafa vakið heimsathygli vegna fagns í anda víkingaróðurs á heimsmeistaramótinu í fótbolta. Einhverjum finnst róðurinn líkjast víkingaklappi Íslendinga og segja sumir að fagninu sé einfaldlega stolið.
Noregur er búið að tryggja sig í 32-liða úrslit heimsmeistaramótsins í fótbolta fyrir lokaumferð riðlakeppninnar. Noregur er búið að vinna báða sína leiki og mun spila úrslitaleik I-riðils við Frakkland um efsta sæti riðilsins. Björgvin G. Björgvinsson er í stjórn Tólfunnar, stuðningsmannasveitar íslenska karlalandsliðsins í fótbolta, og finnst honum Noregur ekki vera að stela víkingaklappinu. „Þeir eru búnir að setja sinn stíl á þetta. Maður getur fundið hvernig þeim líður þegar maður sér þá þarna úti. Ég er mjög ánægður með þetta og samgleðst þeim að hafa fundið upp á þessu,“ sagði Björgvin um fagn Norðmanna. Björgvin segist endurupplifa ævintýrið á EM 2016 þegar hann sér fréttir af Noregi taka fagnið. „Þetta er orðinn eins og gamall draumur, maður veit ekki hvort að þetta var veruleiki eða ekki. En þegar maður sér þetta hjá þeim þá fær maður gæsahúð í hvert einasta skipti.“ Íslenska karlalandsliðið hefur ekki komist á stórmót í fótbolta síðan á heimsmeistaramótinu í Rússlandi árið 2018. Það er því langt síðan Tólfan hefur fengið að taka víkingaklappið þannig að heimsbyggðin taki öll eftir. Björgvin er þó bjartsýnn á að það muni breytast. „Við tökum víkingaklappið á EM 2028. Ég er alveg klár á því.“ Viðtalið má sjá í heild sinni hér að neðan:
HM 2026 í fótbolta Landslið karla í fótbolta Landslið kvenna í fótbolta Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti Leik lokið: Grindavík-Njarðvík 104-103 | Pargo með sigurkörfuna Körfubolti Uppgjörið: Valur-Ármann 87-84 | Misstu næstum því sigurinn frá sér Körfubolti Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Handbolti „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Réttlætanlegt að beita táragasi á norska stuðningsmannahópa Báðir þjálfararnir fengu rautt í hálfleik í toppslagnum Ísak lagði upp sigurmarkið Hætta við áform um Afríkukeppnina í fótbolta Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Nik Chamberlain rekinn frá Kristianstad „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Grealish í agabanni hjá Everton Emil Atlason á leið í Fram Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ „Enski boltinn er annar heimur“ Nýr heimavöllur í Milan mun koma í stað San Siro „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Engin uppalin spilaði með Fram „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Sjá meira