Fullveldi og almannaheill Ingólfur Sverrisson skrifar 25. júní 2026 09:30 Einhverjir telja að því aðeins geti þjóðin talist sjálfstæð og fullvalda að allar reglur og lög komi frá Íslendingum sjálfum, að innlendir embættismenn (lögfræðingar) sitji einir í dómstólum og skeri úr álitamálum og ákveði refsingar ef svo ber undir. Komi útlendingar að slíkum verkum, jafnvel þó þeir vinni eftir viðurkenndum alþjóðasamþykktum, er það til marks um að fullveldið sé í stórhættu og sjálfstæðið á vonarvöl. Samkvæmt þessari kenningu verði réttlætið aðeins tryggt að Íslendingar einir móti löggjöfina og kveði upp dóma í málum. Það sé einskonar trygging fyrir sanngjörnum lögum, reglum og dómsniðurstöðum auk þess að vera undirstaða fullveldis þjóðarinnar. En hver er reynsla okkar Íslendinga af slíkri einangrun á valdi í gegnum aldirnar; hefur hún reynst vel og tryggt framgang réttvísinnar gagnvart almenningi, félögum og fyrirtækjum? Íhugum það. Fyrir löngu síðan sagði Jón Hreggviðsson í Íslandsklukkunni, eftir reynslu sína af dómi sem hann hlaut hjá íslenskum dómara: „Vont er þeirra ranglæti, verra þeirra réttlæti.” Þessi litla setning segir margt um ástandið í þessum efnum fyrr á öldum þegar þeir sem minna máttu sín voru algjölega undir hæl íslenskra embættismanna sem sendu menn í þrælakistur, fangelsi eða til aftöku í Kaupmannahöfn fyrir afar litlar sakir eins og til dæmis að stela snæri. En Jón barðist hart fyrir sakleysi sínu og hafði loks fullan sigur enda kominn til Kaupmannahafnar að sækja hann og ekki lengur á áhrifasvæði landa sinna. Svo var það annar Jón á Akureyri norður sem neitaði fyrir nokkrum árum að hann þyrfti að lúta dómi frá sama aðila og hafði rannsakað meint umferðarlagabrot hans. Einn og sami maðurinn. Þetta gat Jón rakari Kristinsson ekki sætt sig við en var dæmdur sekur. Hann áfrýjaði málinu til allra dómstiga hér á landi en ekkert gekk þar til hann leitaði að lokum til Mannréttindadómstóls Evrópu. Þar hélt hann því fram að málsmeðferðin hefði brotið í bága við 6. grein Mannréttindasáttmála Evrópu um réttláta dómsmeðferð. Fljótlega varð öllum ljóst að íslenska ríkið myndi tapa málinu í Strassburg og leitaði því sátta. Réttarskipan Íslands var síðan breytt til framtíðar. Þessi sigur var sóttur til útlanda þar sem íslenskir embættismenn þurftu að lúta í gras fyrir Jóni rakara sem hélt áfram að klippa okkur fyrir norðan af sömu ró og festu einsog venjulega. Eftir stóðu enn einu sinni innlendir embættismenn með allt á hælunum þegar búið var að leita til útlanda um réttláta málsmeðferð. Þannig mætti halda áfram að benda á að engin trygging er fyrir því að innlendir embættismenn standi vörð um réttindi borgaranna og raunverulegt fullveldi þjóðarinnar. Því miður. Þessu til viðbótar má benda á að lokasigur í ICESAVE-málinu náðist þegar EFTA dómstóllinn sýknaði Ísland af öllum kröfum Hollands og Bretlands um að íslenska ríkinu hefði borið skylda til að ábyrgjast lágmarkstryggingu innistæðueigenda Landsbankans eftir fall hans um árið. Sem sagt: Vondir útlendingar tryggðu okkur sigur í deilu sem var við það að setja landið í gjaldþrot. Þetta var enn ein staðfestingin á kostum þess að deila hluta fullveldisins með öðrum þjóðum til að tryggja réttlæti hér innanlands. Einhver myndi telja það til heilla fyrir land og lýð. Og nú er spurt hvort við viljum skoða að hefja aftur viðræður við ESB um fulla aðild eða að vera áfram úti á gangi og lúta reglum sem við höfum ekki tekið þátt í að móta. Þá gýs minnimáttarkenndin upp og hamrað á því að við séum aðeins með 5% atkvæða á þessum vettvangi og því áhrifalaus. Reynslan er þó sú, allt frá dögum Jóns Hreggviðssonar, að ef við búum okkur vel undir rökræður við fulltrúa annarra samstarfsþjóða, fylgjum þeim fast eftir og vitnum í alþjóða lög og reglur, höfum við ótal sinnum náð árangri sem velt hefur þungum björgum og styrkt frelsi okkar og sjálfstæði. Virk þátttaka í alþjóðasamstarfi lýðræðisþjóða er og hefur löngum verið bæði landi og þjóð til farsældar og mun gæfulegri en að mjálma sífellt um hvað við erum lítil, smá og áhrifalaus. Þess vegna segjum við já næsta höfuðdag og metum svo stöðuna þegar við getum sjálf lesið samning en þurfum ekki að stóla á sögusagnir, ágiskanir eða hreinan uppspuna. Þannig bregst sjálfstæð þjóð og fullvalda við stórum spurningum. Höfundur er eftirlaunaþegi og fyrrum forstöðumaður samtaka fyrirtækja í málm- og skipaiðnaði. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ingólfur Sverrisson Mest lesið Litla beiðnin kemur fyrst, svo sú stóra. Birna Bragadóttir Skoðun Nei fyrir komandi kynslóðir Ingibjörg H. Sverrisdóttir Skoðun Angan lótusblómsins Meyvant Þórólfsson Skoðun Rétturinn er sá sami – en tækifærið er það ekki Anna Margrét Bjarnadóttir Skoðun Aðildarviðræður eru ekki prufuáskrift Guðbjörg Oddný Jónasdóttir Skoðun Hvernig lækka vextir með upptöku evru? Gauti B. Eggertsson Skoðun Er betra? Sigþrúður Ármann Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson Skoðun Hinn ólánsami Ólafur Ragnar Lúðvík Bergvinsson Skoðun 600 þúsund manna Ísland – ætlum við að byggja það sjálf? Eyjólfur Ingvi Bjarnason Skoðun Skoðun Skoðun Rétturinn er sá sami – en tækifærið er það ekki Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Litla beiðnin kemur fyrst, svo sú stóra. Birna Bragadóttir skrifar Skoðun Nei fyrir komandi kynslóðir Ingibjörg H. Sverrisdóttir skrifar Skoðun Angan lótusblómsins Meyvant Þórólfsson skrifar Skoðun Er ég að bregðast börnunum mínum með því að segja NEI? Monika Margrét Stefánsdóttir skrifar Skoðun Gamli sáttmálinn og sá nýi Aðalsteinn Már Þorsteinsson skrifar Skoðun Er betra? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Útgerðarauðvaldið vill í ESB - ég segi nei Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Gervigreind, gagnaver og tækifæri Íslands Eymundur Sigurðsson skrifar Skoðun Sveitirnar þagna Walter Fannar Kristjánsson skrifar Skoðun Áður en lengra er haldið Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Erum við of fljót að kenna samfélagsmiðlum um? Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Börn læra ekki fyrir framtíð sem þau skynja ekki Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Danir, ESB og staða Íslands Finnur Torfi Magnússon skrifar Skoðun Hvað kostar „þetta reddast“? Guðríður Lára Þrastardóttir skrifar Skoðun Frá öllum til allra með nútímalegum sjúkratryggingum Sigurður H. Helgason skrifar Skoðun Tækifærið er núna Agnar H. Johnson skrifar Skoðun Einelti og samskiptahættir kvenna á Íslandi Vigdís Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun 600 þúsund manna Ísland – ætlum við að byggja það sjálf? Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Hlaupið er búið - en láttu það ekki stoppa þig Sigrún Elva Einarsdóttir skrifar Skoðun Aðildarviðræður eru ekki prufuáskrift Guðbjörg Oddný Jónasdóttir skrifar Skoðun Trump á ekki að vera ástæðan Friðjón R. Friðjónsson skrifar Skoðun Hvernig lækka vextir með upptöku evru? Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson skrifar Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Samkeppniseftirlitið eitt og sér Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Opnum dyr fyrir innviðafjárfestingu um allt land Logi Einarsson skrifar Skoðun Hinn ólánsami Ólafur Ragnar Lúðvík Bergvinsson skrifar Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar Skoðun Skipulag sem má ekki borga sig! Íris Björk Hreinsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar