Skráðum félögum í Nýju Avalon fjölgaði um 575 prósent Birgir Olgeirsson skrifar 24. júní 2026 13:15 Nýjustu tölur Þjóðskrár sýna hreyfingu í skráningum trú- og lífsskoðunarfélaga. Þjóðkirkjan er áfram langfjölmennust en Nýja Avalon tók stærsta hlutfallslega stökkið. Vilhelm Nýja Avalon tók mesta hlutfallslega stökk allra trú- og lífsskoðunarfélaga á landinu á fyrri hluta ársins. Skráðum einstaklingum í félagið fjölgaði úr fjórum í 27 frá 1. desember 2025 til 1. júní síðastliðins.
Það jafngildir 575 prósenta fjölgun. Skýringin er þó jarðbundnari en prósentan gefur til kynna. Eldey Huld Jónsdóttir, forstöðumaður Nýju Avalon-miðstöðvarinnar, segir fjölgunina skýrast af því að Kirkja hins upprisna lífs hafi verið afskráð sem trúfélag um áramótin. „Við afskráðum Kirkju hins upprisna lífs um áramótin sem trúfélag og þeir sem voru þar færðu sig yfir í Nýju Avalon sem er móðurfélagið,“ segir Eldey. Hún segir þetta tilkomið vegna kröfu um að að lágmarki 25 einstaklingar séu skráðir í trúfélag. „Kirkja hins upprisna lífs lifir áfram góðu lífi. Öllum er frjálst að sækja þjónustu þar. Hún var stofnuð árið 1985 en ásóknin hefur minnkað talsvert á seinni tímum,“ segir Eldey. Kirkja hins upprisna lífs er merkt sem lögð niður í nýjustu töflu Þjóðskrár. Þar voru 20 skráðir 1. desember síðastliðinn en enginn skráður fjöldi birtist 1. júní. Kaþólsku kirkjunni fjölgaði mest Þótt Nýja Avalon hafi tekið stærsta hlutfallslega stökkið fjölgaði mest í kaþólsku kirkjunni í hreinum fjölda. Þar fjölgaði skráðum um 131, úr 15.917 í 16.048. Næstmest fjölgaði í Fríkirkjunni í Hafnarfirði, eða um 108 manns. Þjóðkirkjan bætti við sig 102 skráðum einstaklingum, Stofnun múslima á Íslandi fjölgaði um 86 og Félag múslima á Íslandi um 76. Þjóðkirkjan er eftir sem áður langfjölmennasta trú- og lífsskoðunarfélag landsins. Alls voru 224.158 einstaklingar skráðir í þjóðkirkjuna 1. júní síðastliðinn og hafði þeim fjölgað um 102 frá 1. desember. Kaþólska kirkjan var næstfjölmennust með 16.048 skráða og Fríkirkjan í Reykjavík þriðja fjölmennust með 10.055. Ótilgreindum fjölgaði mest allra flokka Alls voru 286.054 einstaklingar skráðir í tiltekið trú- eða lífsskoðunarfélag 1. júní. Þeim fjölgaði um 231 frá 1. desember síðastliðnum. Mesta breytingin í töflu Þjóðskrár er þó ekki hjá einstöku félagi heldur í flokknum ótilgreint. Þar voru 96.714 skráðir 1. júní og hafði þeim fjölgað um 2.068 frá 1. desember. Þjóðskrá skilgreinir ótilgreinda skráningu þannig að viðkomandi hafi ekki tekið afstöðu til skráningar í trú- eða lífsskoðunarfélag. Til samanburðar voru 30.911 skráðir utan trú- og lífsskoðunarfélaga, sem þýðir að viðkomandi hefur tekið afstöðu til þeirrar skráningar. Þeim fækkaði um 20 frá 1. desember. Af virkum trú- og lífsskoðunarfélögum í töflu Þjóðskrár fjölgaði skráðum í 33 félögum, þeim fækkaði í 17 og fjöldinn stóð í stað í fjórum. Tvö félög eru merkt lögð niður í töflunni: Kirkja hins upprisna lífs og Zuism. Staðan hjá öllum félögum: Hér að neðan er yfirlit yfir fjölda skráðra í hverju trú- og lífsskoðunarfélagi 1. júní 2026 og breytingu frá 1. desember 2025: Alþjóðleg kirkja Guðs og embætti Jesú Krists: 192 (+9) Ashutosh-jóga á Íslandi: 70 (+3) Ásatrúarfélagið: 6.282 (+12) Bahá'í-samfélag: 290 (-6) Betanía: 134 (0) Boðunarkirkjan: 117 (-1) Búddistafélag Íslands: 1.035 (-11) Bænahúsið: 25 (+1) Catch The Fire (CTF): 177 (-4) Demantsleið búddismans: 38 (+4) DíaMat: 237 (-3) Endurfædd kristin kirkja: 38 (+16) Eþíópíska Tewahedo-rétttrúnaðarkirkjan: 27 (+1) Farsæld-húmanískt lífsskoðunarfélag: 11 (+11) Félag múslima á Íslandi: 658 (+76) Félag Tíbet-búddista: 51 (+2) Fjölskyldusamtök heimsfriðar og sameiningar: 28 (+11) Fríkirkjan í Hafnarfirði: 8.075 (+108) Fríkirkjan í Reykjavík: 10.055 (+2) Fríkirkjan Kefas: 80 (-4) Fyrsta baptistakirkjan: 72 (+11) Heimakirkja: 54 (+4) Hjálpræðisherinn trúfélag: 260 (-1) Hvítasunnukirkjan á Íslandi: 2.082 (+15) I am Equipping Center: 10 (+10) ICCI: 708 (+20) ISKCON, kristnasamfélag: 150 (+33) Ísland kristin þjóð: 26 (0) Íslenska Kristskirkjan: 219 (-1) Kaþólska kirkjan: 16.048 (+131) Kirkja hins upprisna lífs*: lagt niður (-20) Kirkja Jesú Krists hinna síðari daga heilögu: 118 (-3) Kirkja sjöunda dags aðventista á Íslandi: 548 (-7) Lífspekifélag Íslands: 139 (+4) Loftstofan baptistakirkjan: 125 (+5) Menningarfélag gyðinga: 83 (+4) Nýja Avalon: 27 (+23) Óháði söfnuðurinn: 2.935 (-61) Reykjavíkurgoðorð: 35 (-1) Samfélag ahmadiyya-múslíma á Íslandi: 10 (0) Samfélag trúaðra: 2 (-20) Serbneska rétttrúnaðarkirkjan: 506 (+19) SGI á Íslandi: 148 (-1) Siðmennt: 6.451 (+3) Sjónarhæðarsöfnuðurinn: 33 (-1) Smárakirkja: 327 (-9) Stofnun múslíma á Íslandi: 974 (+86) Söfnuður heilags Bartelómeusar: 33 (+19) Söfnuður Moskvu-Patríarkatsins: 812 (+7) Vegurinn: 404 (-3) Vitund: 6 (+4) Vottar Jehóva: 515 (+1) Wat Phra-búddistasamtökin: 209 (+3) Zen á Íslandi - Nátthagi: 207 (0) Zuism*: lagt niður (-372) Þjóðkirkjan: 224.158 (+102) Ótilgreint: 96.714 (+2.068) Utan trú- og lífsskoðunarfélaga: 30.911 (-20) * Merkt sem lagt niður í töflu Þjóðskrár.
Trúmál Þjóðkirkjan Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Innlent „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Innlent Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Innlent „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Innlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Fjörutíu föngum fylgt úr landi fyrstu níu mánuði ársins Innlent Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Erlent Fleiri fréttir Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Sorg hjá borgarstarfsmönnum og leitaraðgerð í Grindavík Gefur meirihlutanum falleinkunn Hætta skapaðist eftir að límt var fyrir linsu hraðamyndavélar „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Fjörutíu föngum fylgt úr landi fyrstu níu mánuði ársins Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Stakk af frá fargjaldi leigubíls Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Runólfur verður áfram forstjóri Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Deila um sóttkví fer alla leið „Við getum ekki öll búið í Reykjavík“ Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku og svarar gagnrýni Jóns Gnarr Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Enn enginn grunaður um innbrotið Mismunuðu kvenkyns sérfræðilækni Landspítalans Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Djúp lægð úr suðri fer að hafa áhrif í kvöld Umferð gæti tafist á Arnarnesvegi Tóku á móti barni í sjúkrabíl Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Sjá meira