Erlent

Á­fram við­varanir vegna hitasvækju víða um Evrópu

Kjartan Kjartansson skrifar
Kona reynir að kæla sig niður með blævæng og sólhlíf á meðan hún bíður eftir að berja páfa augum á Péturstorgi í Róm í morgun.
Kona reynir að kæla sig niður með blævæng og sólhlíf á meðan hún bíður eftir að berja páfa augum á Péturstorgi í Róm í morgun. AP/Alessandra Tarantino

Áfram er varað við lífshættulegri hitabylgju í Evrópu, allt frá London í vestri til Mílanó í austri, í dag. Líkur eru á að nýtt hitamet fyrir júní verði sett á Englandi.

Rauð hitaviðvörun sem gefin hefur verið út fyrir stóran hluta Mið- og Suður-Englands og Wales í dag er aðeins önnur slík viðvörunin sem bresk yfirvöld hafa nokkru sinni gefið út. Sú fyrsta var í júlí 2022 þegar hiti fór yfir fjörutíu gráður.

Breska veðurstofan spáir allt að 38 stiga hita á sunnanverðu Englandi. Skólum hefur sums staðar verið lokað vegna þess að lestarferðum hefur verið aflýst til þess að draga úr óþarfa ferðalögum á meðan viðvörunin er í gildi, að sögn AP-fréttastofunnar.

Þá hefur Network Rail, fyrirtækið sem rekur breska lestarkerfið, varað við töfum í dag. Hraði lesta er takmarkaður vegna hitans sem getur meðal annars sveigt teina og haft áhrif á rafmagnsvíra.

Hitamælir segir 43 gráður í borginni Rennes í vestanverðu Frakklandi á mánudag. Meginland Evrópu hefur verið þjakað af skæðri hitabylgju undanfarna daga.AP/Jeremias Gonzalez

Dagshitamet var slegið í Frakklandi í gær þegar meðalhiti á þrjátíu veðurathuganastöðvum víðsvegar um landið náði 29,8 gráðum. Opnunartími Eiffel-turnsins og Louvre-safnsins í París var skertur vegna hitans.

Áfram er spáð miklum hita í Frakklandi í dag. Tugir milljóna manna búa við rauðar hitaviðvaranir í Frakklandi, á Spáni og á Ítalíu í dag.

Á Ítalíu hafa rauðar viðvaranir verið gefnar út í sextán borgum, þar á meðal í Róm, Mílanó, Flórens og Tórínó. Hitinn er talinn geta náð allt að 41 gráðu í Flórens og 38 gráðum í Mílanó.


Tengdar fréttir

Rauðar viðvaranir í Bretlandi vegna hita

Veðurstofan í Bretlandi telur líklegt að í dag verði heitasti dagur júnímánaðar frá upphafi mælinga þar í landi. Spáð er því að hitinn fari yfir 35 stig. 

Fjölskylduferð í skemmtigarð tók óvænta stefnu í hitabylgjunni

Mikil hitabylgja geisar í Evrópu og eru rauðar veðurviðvaranir í gildi á stórum svæðum vegna hita. Áhrif hitabylgjunnar hafa verið gríðarlega mikil í Frakklandi. Í suðausturhluta landsins fundust tvö börn, tveggja og fjögurra ára, látin í bifreið í dag. Hitastig á svæðinu mældist 39 gráður á hádegi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×