Útskiptin miklu og svikula elítan Atli Ísleifsson skrifar 22. júní 2026 09:02 Í einföldu máli gengur kenningin um „útskiptin miklu“ út á að hinu kristna samfélagi innfæddra verði skipt út fyrir framandi innflutta múslima með dyggri aðstoð innlendrar stjórnmálaelítu. Getty Samsæriskenningar um „útskiptin miklu“ og svikula innlenda elítu hafa á undanförnum áratug orðið áberandi í stjórnmálaumræðu á Vesturlöndum. Í nýjasta þætti hlaðvarpsins Skuggavaldið kryfja prófessorarnir Hulda Þórisdóttir og Eiríkur Bergmann hvernig þessar hugmyndir hafa færst frá jaðrinum og beint inn í hjarta stjórnmálanna.
Kjarni þessara hugmynda er hin svokallaða Evrarabíu-kenning, sem er evrópsk útgáfa af kenningunni um útskiptin miklu (e. The Great Replacement). Í einföldu máli gengur kenningin út á að hinu kristna samfélagi innfæddra verði skipt út fyrir framandi innflutta múslima með dyggri aðstoð innlendrar stjórnmálaelítu. Evrarabíu-kenningin er samsæriskenning því það er beinlínis vísað til þess að múslimar og elítan á Vesturlöndum sitji á svikráðum við að grafa undan vestrænum gildum. Kenningin gengur því miklu lengra en að vera uggandi yfir samfélagsbreytingum vegna innflytjenda eða lækkandi fæðingartíðni á meðal heimamanna. Gullöldin sem sprakk með olíukreppunni Þó að Evrarabíu-kenningin hafi nýlega náð fullu flugi hefst sagan þó mun fyrr. Eftir seinni heimsstyrjöldina sameinuðust Vesturlönd um frjálslynt lýðræði og alþjóðasamstarf. Þjóðernishyggja var litin hornauga og hún spyrt saman við nasisma og fasisma. Tími alþjóðasamvinnu og friðar leiddi af sér þrjá áratugi af stöðugum hagvexti. Sú gullöld tók hins vegar enda árin 1972 og 1973 þegar olíukreppan skall á. Verðbólga rauk upp, kaupmáttur hríðféll og atvinnuleysi jókst. Samfélagssáttmálinn brast og fólki fannst stjórnvöld hafa sofnað á verðinum. Þetta skapaði frjóan jarðveg fyrir andóf. Gestaboðið sem gleymdist Á uppgangsárunum höfðu ríki Evrópu flutt inn gríðarlegan fjölda farandverkamanna, einkum frá Norður-Afríku og Mið-Austurlöndum. Lítið var þó hugað að aðlögun fólksins að vestrænum aðstæðum, enda gert ráð fyrir að það sneri aftur heim, sem reyndist þó alls ekki alltaf raunin. Þegar efnahagskreppan skall á urðu verkamennirnir að hentugum blórabögglum. „Á augabragði var farið að líta á innflytjendur sem byrði en ekki lengur sem ávinning,“ bendir Hulda á. Gjáin sem myndaðist milli innfæddra og aðfluttra varð að eldsneyti fyrir nýja kynslóð stjórnmálamanna. Listin að hneyksla Fyrsti stjórnmálamaðurinn í Evrópu eftir stríð til þess að hafa veruleg áhrif í gegnum stjórnmálaaðferð sem í dag er kölluð þjóðernispopúlismi var líklega Jean-Marie Le Pen sem stofnaði Þjóðfylkinguna í Frakklandi árið 1972. Hann lærði að nýta sér ögranir, skapa hneykslun og umtal til þess að stýra umræðunni. Á Norðurlöndunum tók popúlisminn á sig aðra mynd í fyrstu. Í Danmörku fór skattalögfræðingurinn Mogens Glistrup mikinn með Framfaraflokknum og stærði sig af skattsvikum. Þegar líða tók á áttunda áratuginn vék skattaandstaðan hins vegar fyrir harðri andúð á innflytjendum. Glistrup líkti múslimum meðal annars við „dropa af arseniki í glasi af tæru þjóðarhafi Dana“. Rasismi í nýjum umbúðum Til að komast hjá því að vera stimplaðir sem fasistar fundu popúlistaflokkar upp nýtt hugtak: kynþáttafjölhyggju. Gamla kynþáttahyggjan hafði byggt á líffræði og yfirburðum sem var óboðlegt eftir helförina. Kynþáttafjölhyggja gengur hins vegar út á að þótt menning þjóða kunni að vera jafngild þurfi að skilja ólíka menningarheima að. Með þessu tókst mönnum á borð við Jörg Haider í Austurríki að koma hræðsluáróðri í spariföt og ryðja brautina fyrir mýkri útgáfur af popúlistaflokkum um alla Evrópu – ferli sem hefur verið kallað „Haider-væðing stjórnmálanna“. Hættan undir yfirborðinu Þótt Vesturlönd hafi fagnað sigri lýðræðisins þegar Berlínarmúrinn féll árið 1989 sýnir sagan okkur að popúlisminn var þá þegar byrjaður að ná skriðþunga. Að sögn Eiríks voru þessi öfl þá þegar reiðubúin að springa út með fullum þunga í þeim miklu menningarátökum sem áttu eftir að einkenna nýja öld. Fyrri þáttur Skuggavaldsins af tveimur um útskiptin miklu er kominn í hlaðvarpsveitur. Að tveimur vikum liðnum kafar Skuggavaldið svo ofan í Evrarabíu-kenningunaí samtímanum.
Skuggavaldið Mest lesið Áslaug Arna mætti með nýja kærastann Lífið Stjörnum prýddur gestalisti og Billie Eilish í glænýju hlutverki Lífið Margrét og Ísak Ernir gengu í það heilaga Lífið „Hræðilegt að sjá ofbeldið sem ég beitti mig“ Lífið Myndaveisla úr gleðinni hjá já-fólkinu Lífið Myndaveisla af stuðinu hjá Áfram Ísland Lífið Krakkatía vikunnar: Skyr, knörr og rauðbrystingur Lífið Dorrit missti aðgang á forrit Lífið Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Lífið Kjósendur á lokasprettinum: „Ég bara gleymdi þessu“ Lífið Fleiri fréttir Stjörnum prýddur gestalisti og Billie Eilish í glænýju hlutverki Áslaug Arna mætti með nýja kærastann Margrét og Ísak Ernir gengu í það heilaga „Hræðilegt að sjá ofbeldið sem ég beitti mig“ Krakkatía vikunnar: Skyr, knörr og rauðbrystingur Myndaveisla úr gleðinni hjá já-fólkinu Myndaveisla af stuðinu hjá Áfram Ísland Kjósendur á lokasprettinum: „Ég bara gleymdi þessu“ Dorrit missti aðgang á forrit Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Dolly skildi eftir sig lag fyrir hundrað ára afmælið Fréttatía vikunnar: Dolly, ESB og malaría Nadía Atla og Arnar Freyr hætt saman Þau sjá um Áramótaskaupið í ár Stórglæsilegt einbýlishús á Arnarnesi til sölu Afmælispartý Bylgjunnar í beinni Hvað kýs fræga fólkið? Bylgjan heiðraði goðsögnina Þorgeir Hvað veistu um… Dolly Parton? Jakob Smári útnefndur bæjarlistamaður Mosfellsbæjar Birta Líf og Gunnar Patrik hætt saman Doppudrottningin Yayoi Kusama er látin Neðanjarðarlestin endalaus uppspretta skrítinna atvika Camilla Rut og Valgeir hafa slitið trúlofuninni „Það færist skuggi yfir manneskju sem endar með því að hann rænir hana lífinu“ Alræmt hús á Túngötu til sölu Leitaði á náðir Dolly Parton á erfiðum tímum Lést í kjölfar krabbameinsgreiningar Sigraði hundahlaupið með hundinn í pössun Flaggar í hálfa stöng í viku til heiðurs Dolly Sjá meira