Skýr mörk fyrir vindorku, sterkari vernd fyrir náttúruna Ása Berglind Hjálmarsdóttir skrifar 19. júní 2026 15:46 Í dag samþykkir Alþingi fyrsta raunverulega lagarammann um vindorku á Íslandi. Umræðan um vindorku hefur verið mikil undanfarin misseri og áhyggjur fólks skiljanlegar. Margir hafa óttast að Ísland gæti farið sömu leið og víða annars staðar þar sem vindmyllur hafa risið í stórum stíl, hömlulítið og breytt ásýnd landsvæða til frambúðar. Frumvörp fyrri ríkisstjórna gengu út á flýtimeðferð fyrir vindmyllur og ýttu undir þá framtíðarsýn að vindmyllur gætu verið víða og náð svo langt sem augað eygir við akstur um hringveginn. Sú sviðsmynd verður ekki að veruleika með þeirri löggjöf sem nú hefur verið samþykkt. Vindorka fær ekki flýtimeðferð. Engar undanþágur verða veittar frá faglegu mati og traustri málsmeðferð. Þvert á móti fellur vindorka nú kyrfilega undir rammaáætlun rétt eins og aðrir stórir orkukostir. Jafnframt eru settar skýrari skorður og mikilvæg viðmið skilgreind í ljósi sérstöðu vindorku, enda er vindurinn ólíkt vatnsafli og jarðhita ekki bundinn við fáa afmarkaða staði heldur getur komið til álita víða um land. Við mat á vindorkuhugmyndum verður sérstaklega horft til áhrifa á fuglalíf, farleiðir fugla, landslag, víðerni og upplifun fólks af náttúrunni. Þá eru ákveðin svæði alfarið utan seilingar, þar á meðal Ramsar-svæði, svæði á náttúruminjaskrá og heimsminjasvæði UNESCO. Rammaáætlun, sem er verkfærið sem notað er til að meta virkjanahugmyndir út frá faglegum forsendum, nær til virkjanahugmynda sem eru 10MW eða meira. Það sama gildir um vindmyllur en í breytingatillögu sem meirihluti umhverfis- og samgöngunefndar setti fram í nefndaráliti sínu þá er kveðið á um að vindmyllur sem eru undanskildar rammaáætlun megi ekki vera hærri en 30 m. og þar með er komið í veg fyrir að tröllháar vindmyllur geti risið um allt land. Við styrkjum verndarflokk rammaáætlunar Önnur mikilvæg breyting sem Alþingi samþykkir í dag snýr að því að styrkja verndarflokk rammaáætlunar. Í meira en áratug hefur verndarflokkur rammaáætlunar fyrst og fremst falið í sér bann við orkuvinnslu á tilteknum svæðum. Það er vissulega mikilvægt, en það er vernd á forsendum orkuvinnslu. Náttúruvernd á að snúast um meira en það og nú verður verndarflokkurinn loksins virkt náttúruverndartæki. Það er umhugsunarefni að þrátt fyrir að Alþingi hafi um árabil tekið ákvarðanir um að ákveðin svæði séu þess virði að vernda hefur verndarflokkurinn ekki þróast í það öfluga náttúruverndartæki sem honum var ætlað að vera. Náttúruvernd hefur of oft takmarkast við yfirlýsingar í stað þess að leiða til raunverulegrar verndar á náttúruverðmætum, með tilheyrandi vöktun, stýringu, eftirliti og skyldu stjórnvalda til að taka tillit til verndarmarkmiða við ákvarðanatöku. Náttúran er það dýrmætasta sem við eigum Ósnortin víðerni, fjölbreytt vistkerfi og sterk náttúruauðkenni landsins eru ekki hindrun fyrir framtíðaruppbyggingu. Þau eru hluti af auðlindum Íslands og skapa verðmæti fyrir ferðaþjónustu, útivist, lýðheilsu og lífsgæði. Þessi náttúruverðmæti eru hluti af þeirri arfleifð sem við fengum að gjöf. Í jarðsögulegu samhengi er tími okkar hér stuttur og því hvílir á okkur rík skylda að varðveita náttúruna og skila áfram í jafngóðu eða betra ástandi til framtíðar kynslóða. Ábyrgð okkar er mikil að finna sjálfbærar leiðir til að nýta auðlindir náttúrunnar sem hún gefur okkur svo rausnarlega hverju sinni. Með reglugerð um óbyggð víðerni, sem var í samráðsferli í vetur og kemur fram á næstu dögum, verður faglegt mat á verndargildum landsvæða styrkt. Með henni fá stjórnvöld og sveitarfélög betri verkfæri til að meta hvaða svæði beri að vernda og hvaða áhrif framkvæmdir geta haft á landslagsheildir og víðerni. Reglugerðin setur skýr viðmið um hvaða landnotkun skerðir óbyggð víðerni. Almennt gildir að hefðbundin mannvirki valda því að svæði innan um 5 km radíus telst ekki lengur til óbyggðra víðerna. Fyrir vindmyllur eru þessi áhrif metin mun víðtækari og skerðingarsvæðið miðast við 10–15 km frá hverri myllu. Það eru skýr skilaboð um áhrif vindorkumannvirkja á víðerni, sérstaklega þegar litið er til þess að frumvarpið kveður á um að gæta skuli að því að vindorkugarðar raski ekki óbyggðum víðernum. Á þingvetrinum sem nú er að ljúka hefur Alþingi loksins samþykkt framkvæmdaáætlun náttúruminjaskrár, þá fyrstu frá gildistöku náttúruverndarlaga fyrir 12 árum. Með henni skapast skylda ráðherratil að hefja friðlýsingarferli á mikilvægum náttúruverndarsvæðum sem hafa beðið árum saman eftir að komast í formlegt ferli. Ríkisstjórnin hefur einnig samþykkt fyrstu heildstæðu stefnu Íslands um líffræðilega fjölbreytni og þegar eru farin að sjást merki um áhrif hennar. Til dæmis með nýlegri ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar um að stækka verndarsvæði í hafi. Þá hefur Ísland lögfest samning Sameinuðu þjóðanna um vernd líffræðilegrar fjölbreytni á úthafinu, svokallaðan BBNJ-samning, sem styrkir vernd lífríkis á hafsvæðum utan lögsögu ríkja. Jafnframt er unnið að endurheimt votlendis á ríkisjörðum og verið að útvíkka stuðningskerfi landgræðslu þannig það styðji líka við vernd, ekki bara endurheimt, sem skiptir máli fyrir kolefnisbindingu og líffræðilega fjölbreytni. Þessi mál búa ekki til stórar fyrirsagnirnar en eru gríðarlega mikilvæg fyrir vernd náttúru og lífríkis. Verkefni stjórnmálanna er að skapa skýran ramma utan um auðlindir okkar. Tryggja að ákvarðanir séu teknar á grundvelli þekkingar, að náttúruverðmæti njóti raunverulegrar verndar og að nýting þeirra fari fram á sjálfbæran hátt. Með nýrri löggjöf um takmörkun vindorkunýtingar og styrkingu verndarflokksins er stigið mikilvægt skref í þá átt. Höfundur er þingmaður Samfylkingarinnar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ása Berglind Hjálmarsdóttir Samfylkingin Vindorka Mest lesið Ekkert plan, engin sleggja Illugi Gunnarsson Skoðun Hvað vilja ólígarkarnir að þú kjósir 29. ágúst?" Jón Þór Ólafsson Skoðun Þegar Ólafur Ragnar Grímsson vísar veginn Einar Páll Svavarsson Skoðun Hvers vegna vil ég sem Austurríkismaður hvetja Íslendinga til að segja NEI þann 29. ágúst? Stephan Zanzerl Skoðun Afhverju ég ætla að segja JÁ Sverrir Páll Einarsson Skoðun Hvað ef þú hefur rangt fyrir þér? Eyþór Eðvarðsson Skoðun Viltu minni verðbólgu og lægri vexti? Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Hvar eru eigendur Icelandair? Kjartan Björgvinsson Skoðun Kaupmáttur þjóðanna í Meistaradeild Evrópu Stefán Ólafsson Skoðun Þetta er líka sagt af mikilli virðingu Ólafur Margeirsson Skoðun Skoðun Skoðun Una 72% evrópubúa sér vel í Evrópusambandinu? Andri Sigurðsson skrifar Skoðun EES-líflínan er tekin að trosna Einar Karl Haraldsson skrifar Skoðun Útlensk skólabörn, íslenska og enska Roza Matijević Ismailovski skrifar Skoðun Lyfjamál og ESB Einar Magnússon skrifar Skoðun Aðilar vinnumarkaðar munu áfram gera kjarasamninga innan ESB Kristján Þórður Snæbjarnarson skrifar Skoðun Lokum ekki dyrum Þorsteinn Ólafsson skrifar Skoðun Vellystingar á yfirdrætti Elías Pétursson skrifar Skoðun Nýsköpun í Evrópu: Heildarmyndin sem Hilmar sleppur Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Langmæðgur vilja sjá – frá Flatey til den Haag Guðrún Marta Jónsdóttir ,Guðrún Marta Ársælsdóttir skrifar Skoðun Það er ekki bara fólkið sem þarf að spila með Andri Reyr Haraldsson skrifar Skoðun Hvað þýðir já fyrir bændur? Stefán Magnússon skrifar Skoðun Ef gervigreind sparar okkur tíma — hver fær hann? Stefán Atli Rúnarsson skrifar Skoðun Hvers vegna vil ég sem Austurríkismaður hvetja Íslendinga til að segja NEI þann 29. ágúst? Stephan Zanzerl skrifar Skoðun Hverjir óttast Evrópusambandið? Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Við erum á plastbát í ólgusjó Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Áskorun til samningsaðila vinnumarkaðarins og stjórnvalda um endurskoðunneysluvísitölu og brottfall húsnæðisliðar úr neysluvísitölu skrifar Skoðun ESB, afsal eða útvíkkun á fullveldi? Karl Andersson Claesson skrifar Skoðun Kaupmáttur þjóðanna í Meistaradeild Evrópu Stefán Ólafsson skrifar Skoðun Nei-fólkið mitt, þið eruð svo sæt þegar þið hlýðið Viktor Ólason skrifar Skoðun Fyrirhuguð hækkun á máltíðum fyrir eldra fólk í Reykjavík Steinunn Bergmann skrifar Skoðun Ekkert plan, engin sleggja Illugi Gunnarsson skrifar Skoðun Þetta er líka sagt af mikilli virðingu Ólafur Margeirsson skrifar Skoðun Afhverju ég ætla að segja JÁ Sverrir Páll Einarsson skrifar Skoðun Hvað vilja ólígarkarnir að þú kjósir 29. ágúst?" Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Hvar er heilbrigðiskerfið mitt? Gunnhildur Erla Davíðsdóttir skrifar Skoðun Hvað ef þú hefur rangt fyrir þér? Eyþór Eðvarðsson skrifar Skoðun Kolkrabbinn, sneiðarnar og eyðing byggðarinnar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Já, fyrir vísindi, nýsköpun og menningu Logi Einarsson skrifar Skoðun Viltu minni verðbólgu og lægri vexti? Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Sirkussleggja forsætisráðherra sló í bjölluna Sveinn Óskar Sigurðsson skrifar Sjá meira
Hvers vegna vil ég sem Austurríkismaður hvetja Íslendinga til að segja NEI þann 29. ágúst? Stephan Zanzerl Skoðun
Skoðun Aðilar vinnumarkaðar munu áfram gera kjarasamninga innan ESB Kristján Þórður Snæbjarnarson skrifar
Skoðun Langmæðgur vilja sjá – frá Flatey til den Haag Guðrún Marta Jónsdóttir ,Guðrún Marta Ársælsdóttir skrifar
Skoðun Hvers vegna vil ég sem Austurríkismaður hvetja Íslendinga til að segja NEI þann 29. ágúst? Stephan Zanzerl skrifar
Skoðun Áskorun til samningsaðila vinnumarkaðarins og stjórnvalda um endurskoðunneysluvísitölu og brottfall húsnæðisliðar úr neysluvísitölu skrifar
Hvers vegna vil ég sem Austurríkismaður hvetja Íslendinga til að segja NEI þann 29. ágúst? Stephan Zanzerl Skoðun