Körfubolti

Viktor tekur við Haukum

Stefán Árni Pálsson skrifar
Viktor fær nú tækifæri sem aðalþjálfari.
Viktor fær nú tækifæri sem aðalþjálfari.

Viktor Marinó Alexandersson er tekinn við sem aðalþjálfari kvennaliðs Hauka í körfubolta. Félagið greinir frá þessu í tilkynningu á samfélagsmiðlum.

 Viktor var aðstoðarmaður Emil Barja síðustu tvö tímabil en sá síðarnefndi færði sig á dögunum um set og tók við sem þjálfari karlaliðs Stjörnunnar.

„Það er mikill heiður að fá tækifæri til að stýra Haukaliðinu á komandi tímabili. Liðið er uppfullt af hæfileikaríkum heimamönnum og leikmönnum sem hafa verið lengi í félaginu. Ég þekki hópinn vel og hef ótrúlega mikla trú á hópnum og verkefninu framundan. Við byrjum snemma og teljum okkur eiga inni frá því fyrra og ég fer fullur tilhlökkunar inn í komandi tímabili,“ segir Viktor í tilkynningunni.

Haukar fóru alla leið í úrslitaeinvígið í ár en tapaði þar gegn Njarðvík. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×