Börn eiga ekki að alast upp inni í símanum Þorvaldur Davíð Kristjánsson skrifar 16. júní 2026 07:32 Skjánotkun barna og ungmenna hefur aukist hratt á undanförnum árum og um leið hafa áhyggjur af líðan, einbeitingu og félagsfærni orðið sífellt meiri. Þetta er ekki lengur jaðarmál heldur eitt brýnasta velferðarmál barna í dag. Flestir foreldrar þekkja þetta af eigin raun. Síminn er kominn inn í nánast hverja stund dagsins. Á leið í skólann, í frímínútum, heima í stofunni og jafnvel uppi í rúmi. Börn eru sífellt oftar tengd skjánum en fólkinu í kringum sig. En þessi þróun snýst ekki aðeins um börnin. Hún snýst líka um okkur fullorðna fólkið. Um okkur sem sitjum með símann við matarborðið eða í sófanum og grípum í hann um leið og þögn myndast. Með því setjum við börnum viðmið, hvort sem okkur líkar betur eða verr. Við getum ekki ætlast til þess að börn temji sér hóf í skjánotkun ef við gerum það ekki sjálf. Viljum við að þau læri að leggja símann frá sér, þá þurfum við að sýna þeim hvernig það er gert. Tæknin er ekki vandamálið í sjálfu sér. Hún er hluti af veruleika okkar og verður það áfram. Vandinn skapast þegar hún verður allsráðandi og tekur yfir það rými sem áður fór í samtöl, leik, samveru og einbeitingu. Þess vegna verðum við að nálgast þetta sem sameiginlegt samfélagsverkefni. Skólar eiga að vera staður þar sem börn geta lært og átt samskipti án stöðugs áreitis frá símanum. Frístundastarf, íþróttir og menning þurfa að vera lifandi valkostur við skjáinn. Foreldrar þurfa stuðning og fræðslu til að setja skýr og raunhæf mörk. Og stjórnvöld þurfa að móta stefnu sem snýst ekki aðeins um tæknina sjálfa, heldur um velferð barna. Við þurfum líka að þora að spyrja stærri spurninga. Hvaða áhrif hafa samfélagsmiðlar á líðan barna og ungmenna? Eru aldursmörkin nógu mikil? Eigum við að ganga lengra í að vernda börn gegn umhverfi sem við vitum að getur haft neikvæð áhrif? Þessar spurningar eru ekki einfaldar. En það er ábyrgðarleysi að forðast þær. Lausnin felst í því að finna jafnvægi, skýrum mörkum og sameiginlegri ábyrgð. Og hún byrjar hjá okkur sjálfum. Ef við ætlum að kenna börnum að slökkva á skjánum þurfum við sjálf að þora að gera það. Ef við viljum efla samskipti þurfum við að leggja símann frá okkur og taka samtalið. Ef við viljum verja barnæskuna þurfum við að vera tilbúin að breyta eigin venjum. Þetta er ekki bara spurning um tækin sjálf. Þetta er spurning um uppeldi og um það hvers konar samfélag við viljum standa fyrir. Börn eiga ekki að alast upp í símanum. En þau læra það sem fyrir þeim er haft, og við berum ábyrgð á því. Höfundur er fulltrúi í Skóla- og frístundaráði Reykjavíkurborgar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Þorvaldur Davíð Kristjánsson Símanotkun barna Börn og uppeldi Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar