Eigi von á tæplega 200 þúsund gestum Áróra L Davíðsdóttir skrifar 12. júní 2026 13:30 Gylfi Ólafsson, nýkjörinn bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar, telur heimamenn almennt jákvæða í garð skemmtiferðaskipanna. Vísir/Anton Brink Íbúar Ísafjarðarbæjar eiga von á tveimur skemmtiferðaskipum í dag með allt að 8000 farþegum. Annað skipanna er það stærsta sem hefur komið til hafnar á Ísafirði en skipið kom þangað í sína fyrstu heimsókn árið 2023. Gylfi Ólafsson, nýkjörinn bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar, segir fjölda bókana vera að taka við sér eftir lækkun innviðagjalds. Bærinn eigi von á tæplega 200 þúsund ferðamönnum í sumar.
Skipin tvö bera heitin MSC Virtuosa og Norwegian Star. Virtuosa er stærsta skip sem hefur komið til Ísafjarðar en það kom í sína fyrstu heimsókn til Ísafjarðar árið 2023. Brúttótonnafjöldi skipsins er 181.541 talsins og er það með um það bil 6000 farþega innanborðs. Norwegian Star er með um það bil 2000 farþega innanborðs. Þetta kemur fram í tilkynningu á Facebook-síðu Ísafjarðarhafnar. „Á morgun, föstudaginn 12. júní verður Ísfirðingum, gestum þeirra og nærsveitungum boðið að taka þátt í stórri æfingu í innri ró, þolinmæði og skapsmunastjórnun,“ segir í tilkynningunni. Gylfi Ólafsson, nýkjörinn bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar, telur heimamenn almennt jákvæða í garð skemmtiferðaskipanna í samtali við Vísi. Hann segir þó ýmis verkefni sem þurfi að huga að í þessum efnum. „Það þarf að finna jafnvægi milli þess að vera með skýrar reglur annars vegar og að veita atvinnurekendum sveigjanleika til þess að prófa sig áfram og veita þjónustu sem eftirspurn er eftir,“ segir hann. Árið 2024 var sett á hámark um gestafjölda á dag í Ísafjarðarbæ. Hámarkið sé 5.500 gestir en tvo daga í sumar verði gestir í bænum fleiri en hámarkið segir til um. Ástæða þess sé að komur skipanna hafi verið bókaðar áður en hámarksgestafjöldi hafi verið samþykktur, segir Gylfi. Fjöldi bókanna sé að taka við sér Nokkuð hafi verið um afbókanir skemmtiferðaskipa í kjölfar innviðagjaldsins sem tók fyrst gildi í byrjun árs 2025. Nú hafi gjaldið verið lækkað og bókanir hafi verið að taka við sér, segir Gylfi. Bærinn eigi von á tæplega 200 þúsund gestum í sumar í 162 komum. Um er að ræða gjald sem greiða þarf á hvern einstakling fyrir hvern sólarhring sem skemmtiferðaskip er á tollasvæði Íslands. Áður þurfti að greiða svokallaðan gistináttaskatt, sem var þúsund krónur fyrir hvern farþega á nótt.
Skemmtiferðaskip á Íslandi Ísafjarðarbær Ferðaþjónusta Hafnarmál Tengdar fréttir Leggja til að lækka innviðagjaldið enn meira Meirihluti efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis leggur til að lækka innviðagjald skemmtiferðaskipa við strendur Íslands enn meira heldur en fjármálaráðherra hugnaðist. Færri skemmtiferðaskip komu til landsins í kjölfar gjaldsins. 7. desember 2025 10:23 Mest lesið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Flúði táragas lögreglu í Nice Innlent Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Innlent Fleiri fréttir Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Sjá meira
Leggja til að lækka innviðagjaldið enn meira Meirihluti efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis leggur til að lækka innviðagjald skemmtiferðaskipa við strendur Íslands enn meira heldur en fjármálaráðherra hugnaðist. Færri skemmtiferðaskip komu til landsins í kjölfar gjaldsins. 7. desember 2025 10:23