Möguleiki á tuttugu stiga hita Lovísa Arnardóttir skrifar 11. júní 2026 07:14 Það munu eflaust margir skella sér í sjóinn í blíðviðrinu í dag og á morgun. Vísir/Vilhelm Í dag er útlit fyrir fremur hæga austlæga eða breytilega átt. Léttskýjað að mestu sunnan- og vestanlands og nokkuð hlýtt, hiti yfirleitt á bilinu 13 til 19 stig og möguleiki á að 20 stig geti mælst á stöku veðurstöð.
Ef af yrði væri það líklega Borgarfjörður sem myndi hreppa það hnoss segir í hugleiðingum veðurfræðings. Þar kemur fram að í kvöld og nótt þykkni upp sunnan- og vestanlands með rigningu um tíma. Norðan- og austanlands í dag verður yfirleitt skýjað og smávegis væta öðru hverju, hiti 7 til 13 stig. Tuttugu stig á höfuðborgarsvæðinu Á morgun er spáð ákveðinni norðan- og norðaustanátt, nokkuð víða á bilinu 8-13 m/s. Það léttir til aftur á Suður- og Vesturlandi og hlýnar. Þá er möguleiki á að 20 stig mælist, helst á Suðurlandi eða á höfuðborgarsvæðinu. Á Norður- og Austurlandi er útlit fyrir þokusúld eða dálitla rigningu og mun svalara veður. Nokkuð greiðfært er um landið allt en á vef Vegagerðarinnar kemur fram að vinna sé við vegaframkvæmdir víða um land og eru vegfarendur því beðnir að fara um með gát á þeim stöðum. Nánar á vef Vegagerðar og um veður á vef Veðurstofu. Veðurhorfur á landinu næstu daga Á föstudag: Norðan og norðaustan 8-13 m/s. Léttir víða til á Suður- og Vesturlandi, en annars skýjað og dálítil rigning um landið norðaustanvert. Hiti 12 til 20 stig, en 6 til 12 stig norðan- og austanlands. Á laugardag: Hæg norðlæg eða breytileg átt. Bjart með köflum, en stöku síðdegisskúrir á Suðurlandi. Hiti 12 til 18 stig, en svalara við norður- og austurströndina. Á sunnudag: Hæg breytileg átt, skýjað með köflum en úrkomulítið. Hiti 8 til 16 stig, hlýjast sunnanlands. Á mánudag: Austlæg átt. Skýjað víða um land og líkur á skúrum sunnantil. Hiti 7 til 16 stig, hlýjast á Vesturlandi. Á þriðjudag og miðvikudag (lýðveldisdagurinn): Ákveðin norðaustan- og norðanátt með vætu norðan- og austanlands, en bjart með köflum sunnan heiða. Hiti 5 til 12 stig, mildast syðst.
Veður Færð á vegum Mest lesið „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Innlent „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Innlent Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Innlent Slasaðist alvarlega við heyskap Innlent Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Innlent Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Innlent Mótorhjól og bíll skullu saman Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Innlent Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Innlent Fleiri fréttir Skýjað með köflum „Góðar líkur“ á því að margir sjái til sólar Rofar til og allt að tuttugu stig suðvestanlands Vara við allhvössum vindi á Snæfellsnesi Sólin gæti litið við í borginni um helgina Gæti kólnað fyrir austan þegar líður á vikuna Hæð langt suður í hafi dælir hlýju lofti til landsins Bongóblíða um nánast allt land og rofar til í borginni um stund Bjart austantil en skýjað og svalt við vesturströndina Líkur á stöku skúrum fyrir austan Viðvaranir vegna hvassviðris Rigning og hvasst öðrum megin en sól og bjart hinum megin Vegfarendur hvattir til að fylgjast með viðvörunum Verður íslenska hitametið slegið á morgun? Ekki að vænta mikilla breytinga í veðri Mest 27 gráður en Reykvíkingar þurfa að bíða Væta vestantil en hlýjast fyrir austan Gular viðvaranir og allt að tuttugu og sjö stig Gular veðurviðvaranir í kortunum Bjart og allt að tuttugu og fimm stig á Austurlandi Eiga von á allt að 35 metrum á sekundu í hviðum Dregur úr vætu síðdegis og hiti að átján stigum Hitatölurnar hækka fyrir austan Varhugaverðar hviður á Suðurlandi Víða allhvass vindur og úrkomubakki nálgast Spá sautján stiga hita á höfuðborgarsvæðinu Allt að sautján stiga hiti Bjart og hlýtt sunnan heiða Siggi stormur spáir góðu veðri um allt land Hlýjast fyrir austan Sjá meira