Hvetur almenning til að vera á varðbergi Tómas Arnar Þorláksson skrifar 10. júní 2026 13:17 Ástríður Jóhannesdóttir, framkvæmdastjóri landskjörstjórnar. vísir/einar Framkvæmdastjóri landskjörstjórnar segir undirbúning hafinn fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við Evrópusambandið. Hún hvetur almenning til að vera vakandi fyrir erlendum aðilum sem reyna að hafa áhrif á umræðuna í aðdraganda kosninganna. Um áhyggjuefni sé að ræða.
Undirbúningur er hafinn hjá landskjörstjórn fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið sem mun fara fram laugardaginn 29. ágúst. Kosningarnar munu að mestu líkjast forsetakosningum samkvæmt landskjörstjórn þar sem kosið verður eftir kjördæmum. Ástríður Jóhannesdóttir, framkvæmdastjóri landskjörstjórnar, segir hlutverk stjórnarinnar svipað og í öðrum kosningum fyrir utan að nú sé unnið að bæklingi og vefsíðu sem mun innihalda kynningarefni fyrir almenning. „Það sem er ólíkt er hins vegar það að landskjörstjórn hefur það lögbundna hlutverk að standa fyrir víðtækri kynningu á því málefni sem kosið er um. Það er unnið að gerð þess efnis.“ Er ekki vandkvæðum bundið að fá hlutlaust mat á þetta allt saman? „Það er auðvitað þetta hlutverk landskjörstjórnar. Þannig að kjósendur fái tækifæri til að kynna sér í rauninni þá spurningu og það málefni sem borið kosið er um og það verður leitast við að útskýra það sem allra best. Við munum leggja áherslu á að það nái sem mestri dreifingu og nýta mismunandi útgáfumöguleika á efni. Við hugum bæði að efni og miðlun efnisins. Við stefnum á að útskýra málið sem best,“ segir hún en stefnt er að því að kynningarefnið verði tilbúið í síðasta lagi sex vikum fyrir kjördag. Greint var frá því á dögunum að erlend áhrif hefðu nú þegar gert vart við sig í umfjölluninni hér á landi í aðdraganda kosninganna. Til að mynda birti hjörð þjarka, eða svokallaðir viðreisnarbottar, ummæli undir tiltekinni Facebook-færslu þar sem formaður Viðreisnar var hlaðin lofi. Ástríður segir ástæðu til að hafa áhyggjur af afskiptum erlendra aðila. „Það er oft talað um upplýsingaóreiðu og að ógnir af ýmsu tagi fari vaxandi hvort sem það er í aðdraganda kosninga eða ekki. Þannig það er alltaf ástæða til að hafa varann á og vera gagnrýnin á það efni sem maður rekst á. Þessum málum ber að taka alvarlega.“ Hún hvetur almenning til að tilkynna það til lögreglu, fjölmiðlanefndar eða Fjarskiptastofnunar ef fólk verður vart við eitthvað misjafnt í umræðunni. „Þau tæki og tól sem við helst höfum til að bregðast við eru í rauninni bara að vera meðvituð og hvetja til gagnrýnnar hugsunar og treysta ekki öllu sem maður sér á netinu. Það verða gefnar út leiðbeiningar til kjósenda einmitt um hvernig á að bregðast við ef þeir verða varir við eitthvað af þessu tagi.“
Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Sætir morðhótunum og óhróðri í vinsælum Facebook-hópi Innlent Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Innlent Bílstjóri horfði á skelfingu lostinn Innlent Tugir tilkynninga í viku: „Þetta var ekki í fyrsta skipti sem þau voru handtekin“ Innlent Gunnar Þórðarson er látinn Innlent „Hún drap börnin“ Erlent Heilum gámi af kampavíni stolið af Ölgerðinni Innlent Okkar McCartney, okkar Bach kveður Innlent Horfðu á bílinn velta niður fjallið Innlent Mosfellsdalur minnti á vígvöll Innlent Fleiri fréttir Borgarísjaka rekur í átt að Skagafirði Stærsta umferðarhelgi ársins hafin Bílstjóri horfði á skelfingu lostinn Meirihluti ætlar að segja já í ágúst Skilningsleysi foreldra mætti litblindum syninum Staðan orðin „þokkalega góð“ Tugir tilkynninga í viku: „Þetta var ekki í fyrsta skipti sem þau voru handtekin“ Okkar McCartney, okkar Bach kveður Vasaþjófar gómaðir á Suðurlandi og minkafár í rénun Fleiri en einn hafi verið að verki Dýralæknafélag Íslands fordæmir skemmdarverk í Dalsbúi Gunnar Þórðarson er látinn Dregur úr ánægju með frammistöðu ríkisstjórnarflokkanna Sex handteknir grunaðir um vasaþjófnað Sætir morðhótunum og óhróðri í vinsælum Facebook-hópi Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Heilum gámi af kampavíni stolið af Ölgerðinni Mosfellsdalur minnti á vígvöll Greinir á um leiðir til að draga úr nikótínneyslu ungmenna Gæsluvarðhald samþykkt yfir Ming Ting „Það er búið að slökkva og húsið er ónýtt“ Gripinn á nánast tvöföldum hámarkshraða Skothljóð og minkafár í Mosfellsdal í beinni Eldur logaði í Stykkishólmi Horfðu á bílinn velta niður fjallið Hvað er í boði um verslunarmannahelgina? „Þeir skulu ekki halda það að þeir geti drepið mig“ Slapp vel þegar bíll hennar valt yfir 200 metra niður Bolafjall Hafdís Huld í bæjarstjórastólinn Allir á hlaupum að reyna fanga minka Sjá meira