Livio skylt að greiða Ingunni 25 milljónir Freyja Þórisdóttir skrifar 4. júní 2026 15:06 Ingunn Jónsdóttir starfaði sem frjósemislæknir hjá Livio en opnaði svo frjósemisstofnuna Sunnu. Landsréttur hefur dæmt frjósemismiðstöðina Livio til þess að greiða fyrrverandi starfsmanni sínum tuttugu og fimm milljónir króna í skaðabætur. Ingunn Jónsdóttir stefndi Livio fyrir að hafa sagt henni upp störfum á ólögmætan hátt.
Dómur Landsréttar þess efnis var kveðinn upp klukkan 15. Hann hefur ekki verið birtur og því liggja forsendur hans ekki fyrir að svo stöddu. Vantar enn tuttugu prósent Ingunn er í dag eigandi frjósemismiðstöðvarinnar Sunnu ásamt eiginmanni sínum Þóri Harðarsyni. Hún starfaði sem frjósemislæknir hjá Livio þar til sumarið 2019 þegar henni var sagt upp störfum. Þá höfðaði hún mál gegn miðstöðinni. Þar krafðist hún þess að Livio yrði gert að greiða henni út 19 prósenta hlut hennar í félaginu. Málinu lauk með sátt en í henni fólst að óháður aðili yrði fenginn til að meta virði hlutarins sem reyndist tæplega 119 milljónir. Þá átti Ingunn að fá áttatíu prósent upphæðarinnar greidd strax en tuttugu prósent, rest fjárins, greidd þremur árum seinna stæði hún við samning við Livio sem átti að tryggja að Ingunn gæti ekki farið í samkeppni við miðstöðina, nælt í viðskiptavini frá Livio eða ráðið starfsfólk þaðan. Samningurinn tók gildi þann 1. febrúar árs 2021. Nafn hennar hvergi að finna Þórir eiginmaður Ingunnar stofnaði félag snemma árs 2023 og svo annað, Evuhús, í desember 2023. Tilgangur fyrra félagsins var sagður heilbrigðisþjónusta og þess síðara var frjósemismiðstöð. Livio taldi að með þessu hefði Ingunn rofið samkomulagið enda töldu þau fullvíst að hún væri með í ráðum við stofnun félaganna. Því ætti hún ekki rétt á tuttugu prósenta greiðslunni sem eftir stóð. Það var fyrst í mars 2024 sem nokkuð birstist um að Ingunn væri þátttakandi í undirbúningi opnunar nýrrar frjósemismiðstöðvar, í færslu á Facebook og frétt á Vísi. Þá var hálfur annar mánuður liðinn frá því að samkeppnishömlurnar liðu undir lok.
Dómsmál Heilsa Frjósemi Vinnumarkaður Heilbrigðismál Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Geri málið tortryggilegt að neita að svara Innlent Fleiri fréttir Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Sjá meira