Nýr El niño gæti orðið sá sterkasti sem sögur fara af Kjartan Kjartansson skrifar 2. júní 2026 10:58 Börn að leik í úrhelli í Yangon í Búrma. El niño-fyrirbrigðið hefur mikil áhrif á úrkomumynstur víða um jörðina, þar á meðal í sunnanverðri Asíu. Vísir/EPA Útlit er fyrir að El niño-veðurfyrirbrigðið sem talið er í uppsiglningu í Kyrrahafi gæti slegið öll fyrri met í styrkleika. Fyrirbrigðið felur í sér aukna hættu á hamfaraveðri og hitasvækju.
El niño er hluti af náttúrulegum breytileika í ríkjandi vindátt og sjávarhita í Kyrrahafinu í hitabeltinu við miðbaug. Almennt fylgir fyrirbrigðinu hærri meðalhiti á jörðinni en ella en það hefur einnig mikil áhrif á úrkomumynstur víða um jörðina, allt frá Norður-Ameríku til Indlands. Alþjóðaveðursfræðistofnunin varaði við því í dag að sá El niño sem nú gerjast í Kyrrahafi gæti orðið einn þeirra sterkasti ef ekki sá sterkasti sem sögur fara af. Nú eru taldar áttatíu prósent líkur á að fyrirbrigðið myndist í sumar og nærri níutíu prósent líkur að það gerist fyrir nóvember. Aukin hlýindi sem fylgja El niño leggjast ofan á þá manngerðu hlýnun sem þegar á sér stað vegna stórfelldrar losunar mannkynsins á gróðurhúsalofttegundum. Heitustu ár mælingasöguna hafa þannig átt sér stað þegar El niño magnar upp hnattræna hlýnun líkt og gerðist árið 1998, 2016 og 2024. Bráð viðvörun Síðasti El niño frá 2023-2024 var einn af þeim fimm öflugustu í mælingasögunni. Árið 2024 er fyrir vikið enn hlýjasta ár sem mælst hefur á jörðinni. „Heimsbyggðin verður að taka þessu sem þeirri bráðu loftslagsviðvörun sem þetta er. El niño mun hella olíu á eldinn í hlýnandi heimi. Áhrifin verða meiri, þau ná lengra og þvert á landamæri með yfirþyrmandi hraða,“ segir Antonio Guterres, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna um tíðindin af yfirvofandi El niño. Antonio Guterres, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, hefur margsinnis varað heimsbyggðina við hættunni af hnattrænni hlýnun en hann hefur að mestu leyti talað fyrir daufum eyrum.Vísir/EPA Celeste Saulo, framkvæmdastjóri WMO, segir að sterkur El niño geti magnað upp þurrka og úrhellisrigningar. Þá verði aukin hætta á hitabylgjum yfir bæði landi og sjó. Metárið 1998 væri svalt í dag Fyrirbrigðið hefur ekki sömu áhrif alls staðar á jörðinni. Almennt er það tengt aukinni úrkomu í sunnanverðri Suður-Ameríku, sunnanverðum Bandaríkjunum, hluta Sómalíuskaga á norðausturhorni Afríku og Mið-Asíu en þurrari aðstæðum yfir Mið-Ameríku, norðanverðri Suður-Ameríku, Karíbahafi, Ástralíu, Indónesíu og hluta Suður-Asíu. Breska ríkisútvarpið hefur eftir Zeke Hausfather, loftslagsvísindamanni hjá Berkeley Earth í Bandaríkjunum, að mjög líklegt sé að 2027 verði hlýjasta árið til þessa fyrir tilstuðlan El niño. Hann rifjar upp sterka El niño-atburðinn sem varð frá 1997 til 1998 sem leiddi til þess að árið 1998 varð methlýtt sem dæmi um hversu mikið menn hafa átt við loftslag hnattarins. „Ef þetta gerðist í dag, væri það ótrúlega svalt ár í samanburði við undanfarna tvo áratugi,“ segir Hausfather um þetta tæplega þrjátíu ára gamla hitamet.
Loftslagsmál Vísindi Veður Hafið Jarðefnaeldsneyti Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent Á spítala eftir misheppnaða aftöku Erlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Flutningabíll valt á Þverárfjallsvegi sem er lokaður Innlent Lét ákærða vita af andlátinu: „Hann var í miklu uppnámi“ Innlent Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Innlent Fleiri fréttir Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Sjá meira