Fjórir menn komnir út úr hellinum í Laos Lovísa Arnardóttir skrifar 30. maí 2026 13:20 Fjórum mönnum var bjargað úr hellinum og álfilma sett yfir þá. Vísir/AP Búið er að koma fjórum af þeim fimm mönnum sem fundust á lífi inni í helli í Laos. Einum var bjargað í gær. Sjö fóru inn í hellinn fyrr í mánuðinum en urðu innlyksa í hellinum á afskekktu fjallasvæði í Xaysomboun-héraði í Laos eftir að skyndiflóð varð þar þann 20. maí.
Þorpsbúarnir fóru inn í hellinn í leit að gulli. Fimm fundust á lífi en tveggja er enn saknað. Víðtæk björgunaraðgerð hefur farið fram síðustu daga. Fjallað er um málið á vef BBC. Hellakerfið, sem teygir sig djúpt neðanjarðar, er einnig afar þröngt og sum hólf eru aðeins um 50 sentímetrar á breidd, að sögn björgunarmanna. Mennirnir voru eðlilega glaðir að vera komnir út. Vísir/AP Samkvæmt færslu á Facebook-síðu taílenskra björgunarkafara tókst að bjarga mönnunum fjórum um klukkan 15:10 að staðartíma á laugardag, um klukkan níu í morgun að íslenskum tíma. Ekki hefur enn verið gefið upp nákvæmlega hvernig mennirnir voru fluttir á öruggan stað. Hér að neðan má sjá myndband sem birt var af björgunarmönnum. Í frétt BBC segir að þegar mennirnir komu út hafi brotist út mikil fagnaðarlæti. Fleiri myndir af björguninni má sjá á Facebook-síðu björgunarmannanna. Þar má sjá að mennirnir voru lagðir á sjúkrabörur og huldir með áli til að hlýja þeim. Reyndu fyrst með öðrum leiðum Björgunin kemur í kjölfar þess að sérfræðingar höfðu upphaflega ætlað að dæla út flóðvatni sem kom í veg fyrir að mennirnir kæmust á öruggan stað. Sú áætlun mistókst í fyrstu og rætt var um þann neyðarúrræðiskost að kenna mönnunum sem voru fastir að kafa með köfunartækjum og synda út. Sérhæfðir kafarar frá löndum eins og Taílandi, Indónesíu, Frakklandi og Ástralíu lentu í Laos til að veita aukna sérfræðiþekkingu. Í frétt BBC segir að björgun mannanna svipi til björgunar taílenska unglingafótboltaliðsins sem var fast í helli í 18 daga árið 2018.
Laos Tengdar fréttir Hellabjörgunarmaður lést af völdum blóðeitrunar Liðsmaður björgunarteymisins sem bjargaði tólf drengjum og fótboltaþjálfara þeirra úr helli í Taílandi á síðasta ári, er látinn af völdum blóðeitrunar sem hann fékk á meðan á björgunaraðgerðum stóð. 28. desember 2019 09:40 Strákar sem voru fastir í hellinum fá ríkisborgararétt Þrír ungir strákar úr hópi fótboltadrengjanna sem fastir voru í helli í taílenska héraðinu Chiang Rai fyrr í sumar hafa ásamt 25 ára þjálfara sínum fengið taílenskan ríkisborgararétt. 8. ágúst 2018 15:06 Fótboltastrákarnir útskrifaðir af spítala degi fyrr en áætlað var Taílensku fótboltastrákarnir tólf og þjálfari þeirra verða útskrifaðir degi fyrr en áætlað var, nánar tiltekið á morgun. 17. júlí 2018 15:13 Mest lesið „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Enn þykknar upp hjá SÁÁ Innlent Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Innlent Látin jafngömul og móðir hennar sem var myrt af föðurnum Erlent „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Innlent „Ekkert sem gat bjargað þessu“ Erlent Guðmundur Ari í varaformanninn Innlent Lokuðu einni mikilvægustu olíuleiðslunni Erlent Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Innlent Fleiri fréttir Lokuðu einni mikilvægustu olíuleiðslunni „Ekkert sem gat bjargað þessu“ Látin jafngömul og móðir hennar sem var myrt af föðurnum Þingkosningar í Svíþjóð: Stjórnin riðar til falls en að mynda nýja gæti reynst erfitt Minnst 44 slasast og ein í lífshættu eftir lestarslys í Frakklandi Systir Haraldar er látin Dönsk kona ákærð fyrir að verða nýfæddum börnum sínum að bana Stefna kanslaranum fyrir meiðyrði um Valkost fyrir Þýskaland Gerðu drónaárásir á verslunarmiðstöð Tók konu hálstaki sem söng með á söngleik 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Kanna hvort Kim eigi son Biður dómara um að hlífa Clancy við öðrum réttarhöldum Miklar hækkanir á olíumörkuðum í dag Reyndi að vara við að flugvélin færi of hratt Tugir látnir í eldsvoða í flutningaskipi í Kína Boðar til skyndikosninga til að lægja öldurnar í Serbíu Ætli að gefa öllum þúsundir dollara ef repúblikanar sigra Játar aðild að einu stærsta Bitcoin-þjófnaðarmáli sögunnar Heitasta sumarið í Vestur-Evrópu Pakistanar sögðu klerkastjórninni að koma böndum á Húta Viðurkenndi efasemdir: „Ég ætla samt ekki að sýkna hana“ Selenskí kíkti á klakann Gaf Harp og tveimur öðrum ráðgjöfum milljónir í jólagjöf Leggur stefnu AfD að jöfnu við þjóðernishreinsanir Farage kemur frönskum skoðanabróður í klandur Banna breskum þingmönnum að koma til Ísraels Haraldur Noregskonungur borinn til grafar Rétta yfir rússneskum skipstjóra sem sleit sæstrengi við Finnland Sjá meira
Hellabjörgunarmaður lést af völdum blóðeitrunar Liðsmaður björgunarteymisins sem bjargaði tólf drengjum og fótboltaþjálfara þeirra úr helli í Taílandi á síðasta ári, er látinn af völdum blóðeitrunar sem hann fékk á meðan á björgunaraðgerðum stóð. 28. desember 2019 09:40
Strákar sem voru fastir í hellinum fá ríkisborgararétt Þrír ungir strákar úr hópi fótboltadrengjanna sem fastir voru í helli í taílenska héraðinu Chiang Rai fyrr í sumar hafa ásamt 25 ára þjálfara sínum fengið taílenskan ríkisborgararétt. 8. ágúst 2018 15:06
Fótboltastrákarnir útskrifaðir af spítala degi fyrr en áætlað var Taílensku fótboltastrákarnir tólf og þjálfari þeirra verða útskrifaðir degi fyrr en áætlað var, nánar tiltekið á morgun. 17. júlí 2018 15:13