Að gera upp á milli barna Ingólfur Sverrisson skrifar 28. maí 2026 23:02 Flestir telja miklu skipta að koma vel fram við börn, tryggja þeim gott atlæti, nóg að býta og brenna og umfram allt að þeim sé ekki mismunað með nokkrum hætti. Þeir foreldrar sem brjóta þá grundvallarreglu eru í besta falli talin ófær að ala upp börn og hafa mikla skömm af. Þegar undirritaður starfaði um áratuga skeið hjá samtökum fyrirtækja í iðnaði var þess vandlega gætt að móta stefnu til framtíðar sem tryggði öllum fyrirtækjum innan samtakanna eðlilega og jafna samkeppnisstöðu. Ekki bara sumum. Minnist þess gjörla að þegar tvísýnt var hvort EES-samningurinn kæmist í gegn um Alþingi risu forystumenn samtaka atvinnulífsins upp á bak við tjöldin sem einn maður og hvöttu þáverandi stjórnarliða á þingi að afgreiða málið en láta ekki úrtölufólk fella það mikla hagsmunamál með ótrúlegum fullyrðingum um að Ísland myndi nánast hverfa af yfirborði jarðar ef það yrði samþykkt. Þessi barátta bar árangur, stjórnarliðar hristu af sér slenið og samþykktu loks þennan ágæta samning sem hefur síðan verið þjóðinni mjög mikils virði og bætt alla samkeppnisstöðu fyrirtækja og lífskjör venjulegs fólks. Um þetta er tæpast deilt í dag. Ef samtökin hefðu ekki risið þarna upp með fulltingi ábyrgra stjórnmálamanna sem skildu ástandið er óvíst að EES-samningurinn hefði komist í gegnum þingið og orðið að veruleika. Slíkt var ruglið orðið á þeim bæ. Margir helteknir af því að sjálfstæði þjóðarinnar og fullveldi væri best tryggt með einangrun frá öðrum þjóðum og einhverskonar sjálfsþurftarbúskap. Hin síðari ár hafa mörg fyrirtæki innan samtakanna náð góðum árangri á grunni EES-samningsins með öflugum útflutningi til Evrópu og gjaldeyristekjum sem munar mikið um. Síðan þróuðust mál á þann veg að mörg útflutningsfyrirtæki gátu nýtt sér þetta nýja starfsumhverfi til að færa bókhald sitt og viðskipti yfir í evrur og dollara. Með því opnaðist leið til að nýta sér þjónustu fjármálafyrirtækja á meginlandinu og fá nú lán og aðra fjármálafyrirgreiðslu á mun hagstæðari kjörum en í boði eru hér í krónuhagkerfinu. Auk þess geta þau fengið töluvert hagstæðari tryggingar en íslensk tryggingarfélög treysta sér til að bjóða. Það er því síst að undra að öll fyrirtæki sem geta færa nú allt sitt í evrum eða dollurum enda til mikils að vinna. Þessi fyrirtæki eru nú orðin hálft þriðja hundrað að tölu og þar á meðal öflugustu sjávarútvegs- og iðnaðarfyrirtæki landsins. Nú ber auðvitað að fagna því að þarna er fundin leið til að lokast ekki inni í krónuhagkerfinu óhagstæða. En þá stendur eftir annar vandi. Hvað um fyrirtækin sem ekki geta farið þessa leið og sitja uppi með allar vaxtahækkanir sem íslensk stjórnvöld leggja á þau ásamt skuldugum einstaklingum, einkum ungt fólk sem er að koma yfir sig húsnæði? Eiga .þessir aðilar ekki rétt á að tekið sé tillit til þeirra aðstæðna? Þeir þurfa einlægt að axla birgðarnar af verðbólgu á meðan evru- og dollarafyrirtæki og við, sem erum skuldlaus, sleppum algjörlega við slíkar álögur enda þótt við eigum ekkert síður hlut í þeirri þenslu sem veldur verðbólgunni. Við þessar aðstæður hefur undirritaður furðað sig mjög á viðbrögðum samtakanna sem ég starfaði hjá um árabil. Nú ber lítið á að þau séu að berjast fyrir hagstæðara starfsumhverfi þeirra eigin aðildarfyrirtækja sem eru lokuð inni í krónuhagkefinu. Frekar að þau einbeiti sér að því að fagna góðu gengi hinna fyrirtækjanna sem er auðvitað eðlilegt í sjálfu sér. En þá eru þessi ágætu samtök fallin í þann fúla forarpytt að gera upp á milli barna sinna; láta sig litlu varða örlög þeirra sem verr standa en hossa hinum sem vel gengur vegna þess að þau búa við mun betra starfsumhverfi. Af þessu öllu hefur þróast vandræðagangur sem á sér fá fordæmi eins og þegar síðasta Iðnþing hamraði á einhverju fyrirbrigði sem kallað var „Finnum samhljóminn.” Enda þótt ég hafi ekki skilið hvernig hægt er að ná út samhljómi allra fyrirtækja innan samtakanna þegar aðstæður þeirra er jafn ólíkar og raun ber vitni gæti verið fróðlegt að heyra þá tónleika jafnvel þó þeir yrðu svolítið sérkennilegir og jafnvel falskir á köflum. Þá er að minnsta kosti hægt að brosa lítillega, vera jákvæður og láta eins og allt hljómi vel í eyrum. En hverju fyrirtækin, sem eru með storminn í fangið yrðu nær með slíku gauli er erfitt að átta sig á. Útburðargrátur er alltaf ömurlegur. Þess vegna ráðlegg ég vinum mínum í samtökunum að halda áfram á brautinni farsælu sem mörkuð var af sömu samtökum fyrir þremur áratugum og tóku virkan þátt í evrópsku samstarfi fyrir öll aðildarfyrirtækin en ekki bara sum. Allt hik í þeim efnum væri til tjóns fyrir börnin sem eru afskipt og ekki síður fyrir íslenska hagsmuni. Höfundur er eftirlaunaþegi og fyrrum forstöðumaður samtaka fyrirtækja í málm- og skipaiðnaði. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ingólfur Sverrisson Mest lesið Litla beiðnin kemur fyrst, svo sú stóra. Birna Bragadóttir Skoðun Nei fyrir komandi kynslóðir Ingibjörg H. Sverrisdóttir Skoðun Angan lótusblómsins Meyvant Þórólfsson Skoðun Rétturinn er sá sami – en tækifærið er það ekki Anna Margrét Bjarnadóttir Skoðun Aðildarviðræður eru ekki prufuáskrift Guðbjörg Oddný Jónasdóttir Skoðun Hvernig lækka vextir með upptöku evru? Gauti B. Eggertsson Skoðun Er betra? Sigþrúður Ármann Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson Skoðun Hinn ólánsami Ólafur Ragnar Lúðvík Bergvinsson Skoðun 600 þúsund manna Ísland – ætlum við að byggja það sjálf? Eyjólfur Ingvi Bjarnason Skoðun Skoðun Skoðun Rétturinn er sá sami – en tækifærið er það ekki Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Litla beiðnin kemur fyrst, svo sú stóra. Birna Bragadóttir skrifar Skoðun Nei fyrir komandi kynslóðir Ingibjörg H. Sverrisdóttir skrifar Skoðun Angan lótusblómsins Meyvant Þórólfsson skrifar Skoðun Er ég að bregðast börnunum mínum með því að segja NEI? Monika Margrét Stefánsdóttir skrifar Skoðun Gamli sáttmálinn og sá nýi Aðalsteinn Már Þorsteinsson skrifar Skoðun Er betra? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Útgerðarauðvaldið vill í ESB - ég segi nei Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Gervigreind, gagnaver og tækifæri Íslands Eymundur Sigurðsson skrifar Skoðun Sveitirnar þagna Walter Fannar Kristjánsson skrifar Skoðun Áður en lengra er haldið Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Erum við of fljót að kenna samfélagsmiðlum um? Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Börn læra ekki fyrir framtíð sem þau skynja ekki Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Danir, ESB og staða Íslands Finnur Torfi Magnússon skrifar Skoðun Hvað kostar „þetta reddast“? Guðríður Lára Þrastardóttir skrifar Skoðun Frá öllum til allra með nútímalegum sjúkratryggingum Sigurður H. Helgason skrifar Skoðun Tækifærið er núna Agnar H. Johnson skrifar Skoðun Einelti og samskiptahættir kvenna á Íslandi Vigdís Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun 600 þúsund manna Ísland – ætlum við að byggja það sjálf? Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Hlaupið er búið - en láttu það ekki stoppa þig Sigrún Elva Einarsdóttir skrifar Skoðun Aðildarviðræður eru ekki prufuáskrift Guðbjörg Oddný Jónasdóttir skrifar Skoðun Trump á ekki að vera ástæðan Friðjón R. Friðjónsson skrifar Skoðun Hvernig lækka vextir með upptöku evru? Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson skrifar Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Samkeppniseftirlitið eitt og sér Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Opnum dyr fyrir innviðafjárfestingu um allt land Logi Einarsson skrifar Skoðun Hinn ólánsami Ólafur Ragnar Lúðvík Bergvinsson skrifar Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar Skoðun Skipulag sem má ekki borga sig! Íris Björk Hreinsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar