Samningsdrög samþykkt en beðið eftir grænu ljósi forsetans Agnar Már Másson skrifar 28. maí 2026 23:02 Donald Trump Bandaríkjaforseti er sagður deila samningsdrögum. EPA Samningamenn Bandaríkjanna og Írans eru sagðir hafa samþykkt frumdrög að samkomulagi sem myndi framlengja vopnahlé þeirra á milli um sextíu daga og hefja samningaviðræður um framtíð kjarnorkuáætlunar Írans. Donald Trump Bandaríkjaforseti á enn eftir að samþykkja samkomulagið en hann er sagður deila samningsdrögum með bandamönnum sínum.
Haft eftir bandarískum embættismönnum í umfjöllun erlendra miðla, þar á meðal New York Times, BBC og Al Jazeera, að samningamenn hafi samþykkt drög upp á 60 daga vopnahlé. Trump eigi aftur á móti eftir að samþykkja þessi áform. Þetta fer aftur á móti á mis við umfjöllun hálfríkisreknu fréttastofunnar Tasnim í Íran, sem hafði eftir heimildarmanni að ekki væri búið að ganga frá samkomulagi. Íranir og Bandaríkjamenn hafa sakað hvorir aðra um að brjóta gegn vopnahléi undanfarna daga. Íranski byltingarvörðurinn sagðist hafa beint árás að bandarískri herstöð á svæðinu í dag eftir að Bandaríkjamenn gerðu aðra árás á suðurhluta Írans í nótt. Í gær greindu íranskir ríkismiðlar frá því sem þeir lýstu sem óopinberum drögum að fjórtán punkta viljayfirlýsingu milli landanna tveggja. Í fréttinni var meðal annars fjallað um afléttingu hafnarbanns Bandaríkjamanna á íranskar hafnir, brottflutning bandarísks herafla úr „nágrenni Írans“ og að opnað yrði aftur fyrir um Hormússund þar sem Íran og Óman hefðu stjórn á umferð og leiðarvali skipa. Hvíta húsið kallaði meint drög hreinan uppspuna. Breska blaðið Guardian greinir aftur á móti frá því að Donald Trump Bandaríkjaforseti hafi deilt samningsdrögum með ráðamönnum í vinaríkjum Bandaríkjanna, þar á meðal Ísrael. Miðillinn segir þau samningsdrög ekki vera svipuð, þó ekki eins nákvæm, og þau sem hafa verið í dreifingu meðal íranskra ráðamanna miðlum. Ísraelsmenn kynnu aftur á móti að vera ósáttir við samningsdrögin, þar sem þar virðist ekki gert ráð fyrir að Íranir gefist upp á kjarnorkuvegferð sinni auk þess sem kveðið er á um vopnahlé í Líbanon jafnt sem í Íran.
Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Donald Trump Bandaríkin Íran Mest lesið Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Innlent „Noregur sökkar“ Erlent Fundu auðgað úran í dánarbúi Erlent Tóku á móti barni í sjúkrabíl Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Mismunuðu kvenkyns sérfræðilækni Landspítalans Innlent Fleiri fréttir Tókst ekki moða miðjuna saman Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Sjá meira