Viðskipti innlent

Gervigreindargjöf til lýð­ræðisins

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Elvar Þormar, eigandi Reon, vonast til þess að verkfærið hjálpi fólki að nálgast heimildir og taka upplýsta ákvörðun.
Elvar Þormar, eigandi Reon, vonast til þess að verkfærið hjálpi fólki að nálgast heimildir og taka upplýsta ákvörðun. Hulda Margrét

Íslenskt hugbúnaðarfyrirtæki hefur hleypt af stokkunum gervigreindarvef um fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu þann 29. ágúst næstkomandi. Sölustjóri segir fólk ekki lengur hafa neina afsökun til að taka upplýsta og meðvitaða ákvörðun. Lagt er upp með að vefurinn sé hlutlaus.

Um er að ræða vefinn jaedanei.is. Að óbreyttu ganga Íslendingar að kjörborðinu þann 29. ágúst þar sem svara á þeirri spurningu hvort halda eigi áfram aðildarviðræðum við Evrópusambandið. 

Í tilkynningu frá Reon segir að vefurinn hafi verið hannaður til að styðja kjósendur við að afla sér upplýsinga og mynda sér skoðun byggða á staðreyndum. Gervigreindarvefurinn sé sjálfstæður og óháður, svari spurningum á íslensku, ensku og pólsku, byggi á alvöru heimildum frá báðum hliðum umræðunnar ásamt opinberum frumheimildum.

Á vefnum má finna algengar spurningar og spjallmenni sem útskýrir bæði grunnatriði og umdeildari álitaefni tengd kosningunni.

„Markmiðið er ekki að segja fólki hvað það eigi að kjósa heldur að gera upplýsingarnar aðgengilegri,“ segir Elvar Þormar, eigandi Reon, í tilkynningu.

„Umræðan um ESB-aðild er flókin og oft mjög tilfinningaþrungin. Við vildum búa til verkfæri sem hjálpar fólki að nálgast heimildirnar sjálfar og mynda sína eigin skoðun á þessu málefni.“

Díana Dögg Víglundsdóttir segir enga afsökun lengur til að taka ekki upplýsta ákvörðun.Hulda Margrét

Heimildasafn vefsins inniheldur meðal annars efni frá Hagfræðistofnun Háskóla Íslands,

Landskjörstjórn, Stjórnarráðinu, Feneyjanefnd Evrópuráðsins, Evrópuhreyfingunni, Heimssýn og fleiri aðilum úr báðum fylkingum umræðunnar. Sérstök áhersla hefur verið lögð á áreiðanleika svara og stuðning við íslensku.

„Nú er engin afsökun til að taka ekki upplýsta og meðvitaða ákvörðun þann 29. ágúst byggða á staðreyndum en ekki tilfinningum,“ segir Díana Dögg Víglundsdóttir, sölustjóri hjá Reon. 

jaedanei.is er gjöf Reon til lýðræðisins. Við vildum sýna hvernig hægt er að nota gervigreind til að auka gagnsæi og einfalda upplýsingamiðlun á flóknu efni.“

Vefurinn er ókeypis í notkun, án auglýsinga og án persónurakninga. Verkefnið er þróað og fjármagnað af Reon án utanaðkomandi styrkja. Reon er íslenskt hugbúnaðarfyrirtæki sem býr til tækni með tilgang og sérhæfir sig í stafrænni vöruþróun og lausnum fyrir íslensk og erlend fyrirtæki.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×