Gular viðvaranir vegna snjókomu Atli Ísleifsson skrifar 28. maí 2026 07:11 Gular viðvaranir vegna snjókomu taka gildi á norðaustanverðu landinu síðar í dag. Veðurstofan Veðurstofan gerir ráð fyrir rigningu, slyddu eða snjókomu norðaustan- og austanlands með kólnandi veðri. Um er að ræða óvenjulegan árstíma fyrir snjókomu og því hafa gular viðvaranir verið gefnar út.
Spáð er norðaustan fimm til tíu metrum á sekúndu á landinu en heldur hvassara norðvestantil og í Öræfum. Rigning með köflum víða um land, en slydda á norðan- og austanverðu landinu og snjókoma til fjalla. Hiti verður tvö til tólf stig og kaldast inn til landsins norðaustantil.Gular viðvaranir taka gildi á Norðurlandi eystra, Austurland að Glettingi, Austfjörðum og Miðhálendi síðar í dag og verða í gildi fram á föstudagskvöld. Ferð á fjallvegum á norðaustanverðu landinu gæti orðið varasöm, einkum fyrir ökutæki á sumardekkjum, og gott væri að kanna ástand á vegum í landi á umferdin.is áður en lagt er af stað. Spákort fyrir klukkan 14.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á föstudag: Norðaustan 8-15 m/s. Þurrt að mestu norðvestan- og vestanlands. Rigning sunnanlands. Slydda eða snjókoma austan- og norðaustantil. Hiti frá frostmarki í innsveitum norðaustanlands, upp í 10 stig á Suðvesturlandi. Á laugardag: Norðaustan 5-13. Rigning sunnanlands, en rigning eða slydda með köflum norðaustan- og austanlands. Bjart að mestu vestan- og norðvestantil. Hiti 2 til 12 stig, hlýjast á Suðvesturlandi. Á sunnudag: Norðaustan 5-13 og dálítil rigning, en lengst af þurrt á Suður- og Vesturlandi. Hiti 3 til 13 stig, svalast í innsveitum norðaustantil. Á mánudag og þriðjudag: Fremur hæg breytileg átt, skýjað og dálítil væta í flestum landshlutum. Hiti 6 til 11 stig. Á miðvikudag: Útlit fyrir norðlæga átt. Skýjað og lítilsháttar rigning norðanlands, en bjart með köflum og stöku skúrir sunnan heiða. Hiti 7 til 12 stig.
Veður Mest lesið Hótar að flytja aftur til Færeyja gangi Ísland í ESB Innlent Mikil ungmennadrykkja á Menningarnótt og tveimur skemmtistöðum lokað Innlent Sakamálið sem skekur Bandaríkin Innlent „Ætlar hann að segja já eða nei?“ Innlent Gagnrýnir viðbragð lögreglu eftir áhlaup ungmenna Innlent Rúmlega hundrað flugferðum aflýst og langar biðraðir Erlent Þrír handteknir eftir árás þar sem eggvopnum og hnúajárni var beitt Innlent „Þeir báðu um of mikið og buðu of lítið“ Erlent Nei eða já frá ólíkum sjónarhornum á Sprengisandi Innlent Báðar þyrlur og flugvél gæslunnar á loft samtímis Innlent Fleiri fréttir Víða skúrir en allt að tuttugu stigum austanlands Stinningskaldi og súld suðvestanlands Blaut og vindasöm Menningarnótt í vændum Lægðardrag fikrar sig nær og bætir í úrkomu í nótt og á morgun Bjart að mestu í dag en lægð nálgast á morgun Bjartviðri í flestum landshlutum Bjart og sólríkt víðast hvar Allt að nítján stiga hiti í dag Bjart víðast hvar á landinu í dag Veður með rólegasta móti um helgina Norðanáttin ríkjandi og hiti að tuttugu stigum sunnantil Allmikil lægð þokast norðaustur Litlar líkur á skýjahulan brotni en líklegast norðvestantil Hiti að átján stigum Bjart og milt í dag og allt að nítján stiga hiti Nýjasta sólmyrkvaspáin gefur ívið betri fyrirheit Talsverð úrkoma á Austurlandi Líkur á skriðuföllum á Norðvestur- og Norðausturlandi Rigning og súld á öllu landinu Vaxandi lægð yfir landinu og rigning í kortunum Von á lægðarsvæði í átt að landinu úr suðvestri Þurrasti júlímánuður á Akureyri í níutíu og sjö ár Bjartviðri sunnan heiða en stöku skúrir vestan til Allt að tuttugu stiga hiti og líkur á síðdegisskúrum Hiti á bilinu sjö til tuttugu stig Vara við snörpum vindhviðum Vara við hvössum vindstrengjum Allt að átján stigum og léttskýjað vestanlands Allt að sautján stigum og mildast á Suður- og Vesturlandi Lægð suður af landinu og hæð yfir Grænlandi Sjá meira