Skipulag, ábyrgð og meirihlutamyndun Marta Rut Ólafsdóttir og Lárus Jónsson skrifa 23. maí 2026 16:30 Í meirihlutaviðræðum eftir kosningar reynir á meira en pólitísk slagorð. Þá kemur í ljós hvernig þau framboð sem í kjöri voru hyggjast raunverulega stjórna sveitarfélagi, hvaða áherslur þeir setja í forgang og hvernig þeir meta ábyrgð sína gagnvart samfélaginu til lengri tíma. Undanfarna viku hafa skipulagsmál verið fyrirferðarmikil í þeim viðræðum sem átt hafa sér stað í Hveragerði. Það er í sjálfu sér ekkert óeðlilegt. Skipulagsmál eru meðal stærstu og mikilvægustu verkefna sveitarfélaga. Þau móta þróun bæjarins, hafa áhrif á þjónustu, innviði og fjárhag sveitarfélagsins um ókomin ár. En einmitt þess vegna þurfa slíkar ákvarðanir að byggjast á ábyrgð, festu og faglegum vinnubrögðum. Í óformlegum viðræðum Framsóknar, Okkar Hveragerðis og Samfylkingarinnar kom skýrt fram að Samfylkingin lagði ríka áherslu á breytingar á skipulagsmálum. Framsókn og Okkar Hveragerði voru tilbúin til samtals og tilbúin að ræða málin af yfirvegun og á faglegum grunni. Hins vegar lögðum við jafnframt áherslu á að sveitarfélagið yrði að gæta að ábyrgri stjórnsýslu, fyrirsjáanleika og þeim skuldbindingum sem felast í samþykktu skipulagi. Það varð að lokum meginástæða þess að þessi framboð náðu ekki saman um meirihluta. Ákvörðun um skipulagsmál snýst nefnilega ekki eingöngu um pólitíska sýn hverju sinni. Hún snýst líka um traust, um það hvort sveitarfélagið standi við eigin samþykktir og hvort íbúar, landeigendur og atvinnulíf geti treyst því að leikreglur breytist ekki skyndilega eftir að ákvarðanir hafa verið teknar. Ef sveitarfélög skapa þá mynd að samþykkt skipulag sé alltaf opið fyrir pólitískum vendingum eftir kosningar getur það haft víðtæk áhrif. Það getur tafið uppbyggingu, skapað fjárhagslega óvissu og í sumum tilfellum aukið áhættu sveitarfélagsins sjálfs. Þess vegna vekur það athygli að Samfylkingin hefur nú hafið formlegar meirihlutaviðræður við D-listann. Eðlilegt er að draga þá ályktun að D-listinn sé tilbúinn að ganga lengra til móts við þær kröfur sem settar voru fram í þessum viðræðum en Framsókn og Okkar Hveragerði töldu ábyrgt að gera. Það er áhugavert í ljósi þess að D-listinn lagði mikla áherslu á það í kosningabaráttunni að standa fyrir ábyrgum rekstri og festu í fjármálum sveitarfélagsins. Ábyrg fjármálastjórn snýst hins vegar ekki aðeins um rekstrartölur á blaði. Hún snýst líka um stöðugleika í stjórnsýslu, trúverðugleika sveitarfélagsins og getu þess til að standa við eigin ákvarðanir. Hveragerði stendur frammi fyrir stórum verkefnum á næstu árum. Til að mæta þeim þarf bæði skýra framtíðarsýn og ábyrg vinnubrögð. Það krefst þess að ákvarðanir séu teknar af festu, yfirvegun og með heildarhagsmuni bæjarins að leiðarljósi - líka þegar pólitískur þrýstingur er mikill. Marta Rut Ólafsdóttir, oddviti Framsóknar í Hveragerði og Lárus Jónsson, oddviti Okkar Hveragerðis. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Hveragerði Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar