Hundrað milljarða loforð Dags Diljá Mist Einarsdóttir skrifar 22. maí 2026 08:34 Dagur B. Eggertsson er kannski hættur að lofa borgarbúum leikskólaplássum fyrir 12 mánaða börn. Hann hefur nú fundið innistæðulausum loforðum sínum farveg á vettvangi Alþingis. Hann lofar því núna, bæði í ræðu og riti, að gangi Ísland í Evrópusambandið muni vextir á heimili landsins lækka um 100 milljarða á ári. Vegna þessa nýja loforðs Dags, er ástæða til að halda nokkrum staðreyndum til haga: 1. Stöðugleiki, lægri vextir og lægri verðbólga í ákveðinn tíma eru skilyrði sem ESB setur fyrir upptöku evru. Það er því ekki afleiðing heldur forsenda þess að við komumst í myntsamstarfið. Ef aðild að ESB og upptaka evru lækkar vexti, af hverju er lækkun vaxta þá inngönguskilyrði? 2. Stöðugleiki í efnahagsmálum er því íslenskt hagstjórnarmál sem aðild að ESB leysir ekki sjálfkrafa. Þannig kemur t.d. fram í skýrslu Hagfræðistofnunar til utanríkismálanefndar að á [stöðugleika]tímabilum muni litlu á vöxtum hér á landi og á evrusvæðinu. 3. Mjög lágir vextir t.d. á evrusvæðinu eru ekki aðeins vísbending um heilbrigt hagkerfi heldur jafnvel stöðnun og mikil vandræði. Í Bandaríkjunum eru t.a.m. viðmiðunarvextir lána sem samsvara stýrivöxtum Seðlabankans 3,63%. Grunnvextirnir sem viðskiptabankar rukka bestu stórviðskiptavini sína um (U.S. Prime Rate) eru 6,75%. 4. Vaxtaprósenta í ESB-ríkjum er eins misjöfn og löndin sem sambandið mynda. Ekki er hægt að setja samamsemmerki milli vaxta, og annarra lánskjara, og aðildar eða myntar. Las Dagur annars ekki skrif dr. Jóns Helga Egilssonar á sinni eigin fésbók? „Vaxtamunur eru ekki rök fyrir því að skipta eigi um gjaldmiðil,“ Jón Helgi benti á að stýrivextir seðlabanka ESB væru 2,15% en 0% í Sviss. Með rökum Dags ætti ESB væntanlega að taka upp svissneska frankann! 5. Áföll verða í ESB-ríkjum eins og á Íslandi, bæði innri (t.d. eldgos) og ytri (t.d. hækkun olíuverðs). Á Íslandi höfum við mætt áföllum með verðbólgu og veikingu krónunnar. Í ESB hafa ríki ekki sjálfstæða peningastefnu og því er áföllum mætt m.a. með auknu atvinnuleysi. Atvinnuleysi er því mun hærra í ESB en á Íslandi. Lágir húsnæðisvextir gagnast þeim lítið sem eru án launa. Og ástandið í húsnæðismálum ungs fólks þar er víti sem ber að forðast. 6. Eins og fram kemur í sömu skýrslu Hagfræðistofnunar mun húsnæðisverð hækka ef vextir lækka á húsnæðislánum líkt og við reyndum þegar vextir voru lækkaðir í covid-faraldrinum. Þetta skiptir máli vegna þess að vextir eru ekki eini kostnaðarliðurinn í húsnæðisútgjöldum. Þegar heildarhúsnæðiskostnaður sem hlutfall af ráðstöfunartekjum er borinn saman milli Íslands og ESB-ríkja kemur fram hjá Hagfræðistofnun að kostnaðurinn er hærri í fjölmörgum ESB-ríkjum, þ.m.t. í öllum norrænu ESB-ríkjunum. Ísland er þar nálægt meðaltali. 7. Hagfræðistofnun bendir á að munur á vaxtastigi geti skýrst af dýru íslensku fjármálakerfi; háum séríslenskum sköttum á fjármálastofnanir og miklum eiginfjárkröfum. Það er staðreynd að verðbólga og þar með háir húsnæðisvextir hafa verið þrálátari hér en í ýmsum löndum sem við berum okkur saman við. Eins og seðlabankastjóri hefur bent á hefur meginorsök hárrar verðbólgu undanfarin ár verið staðan á húsnæðismarkaði. Húsnæðisliðurinn hefur enda verið einn helsti drifkraftur verðbólgu í langflestum mælingum undanfarinn áratug. Þar bera ríkisstjórnarflokkarnir, Samfylking og Viðreisn, auðvitað höfuðábyrgð. Sveltistefna þeirra í lóðamálum, ofuráhersla á þéttingu og óhófleg gjaldtaka á uppbyggingu hefur skert húsnæðisframboð með þessum afleiðingum. Nú horfum við hins vegar fram á bjartari tíma í Reykjavík. Gylliboð Dags Þeir sem staldra við gylliboð Dags og ESB-sinnaðra félaga hans, mættu gjarnan velta eftirfarandi fyrir sér: 1. Hver eru meðallaun á evrusvæðinu frá landi til lands? 2. Hver er verðbólgan á evrusvæðinu frá landi til lands? 3. Hvert er atvinnuleysi á evrusvæðinu frá landi til lands? 4. Hverjar eru skuldir ríkissjóðs á evrusvæðinu frá landi til lands? 5. Hversu margir búa í eigin húsnæði frá landi til lands? Niðurstöðurnar gætu kveikt efasemdir um að 100 milljarða lægri vextir vegna upptöku evru og inngöngu í ESB sé nokkuð sem er of gott til að vera satt. Höfundur er þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Diljá Mist Einarsdóttir Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Leikskólar Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar