Viðskipti innlent

Stjórn­endur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir

Árni Sæberg skrifar
Bera er móðurfélag Ölgerðarinnar.
Bera er móðurfélag Ölgerðarinnar. Vísir/Vilhelm

Sjö stjórnendur hjá Beru, móðurfélagi Ölgerðarinnar, hafa nýtt kauprétti að samtals 12.825.000 nýjum hlutum í félaginu, fyrir alls 83,1 milljón króna. Stærsti eigandi félagsins, Bóksal, hefur þegar keypt alla hlutina af stjórnendunum fyrir alls 194,4 milljónir króna. Þá nýttu sex aðrir kaupréttarhafar kauprétti að 5.737.500 hlutum í félaginu en ekki liggur fyrir hvort þeir hafi selt hluti sína, þótt telja verði það líklegt.

Í tilkynningu Beru til Kauphallar í morgun segir að vegna nýtingar kauprétta þrettán kaupréttarhafa hafi stjórn nýtt heimild sína samkvæmt samþykktum félagsins, til að hækka hlutafé félagsins í þeim tilgangi að mæta nýtingu kaupréttanna. Hlutafé félagsins verði því hækkað um 18.562.500 krónur og muni eftir hækkun standa í 2.884.377.913 að nafnverði, með útgáfu nýrra hluta. Hver hlutur sé að fjárhæð ein króna og hverjum hlut fylgi eitt atkvæði.

Í annarri tilkynningu Beru til Kauphallar er greint frá viðskiptum stjórnenda. Um sé að ræða kaup stjórnenda á grundvelli nýtingar kauprétta annars vegar og hins vegar sölu stjórnenda til Bóksals ehf. Bóksal ehf. er í eigu hjónanna Boga Þórs Siguroddssonar og Lindu Bjarkar Ólafsdóttur og er stærsti eigandi Beru, með rúmlega 11 prósenta hlut.

Samkvæmt tilkynningu keyptu stjórnendur á verðinu 6,48 krónur á hlut og seldu á 15,2 krónur en kaupréttirnir hafi verið veittir árið 2021.

Eftirfarandi stjórnendur hafi keypt 2.250.000 hluti á 14,48 milljónir króna og selt á 34,2 milljónir:

  • María Jóna Samúelsdóttir, framkvæmdastjóri Danól
  • Guðmundur Pétur Ólafsson, sviðsstjóri sölu- og markaðssviðs Ölgerðarinnar
  • Gunnlaugur Einar Briem, sviðstjóri reksturs og vörustýringar Beru
  • Jón Þorsteinn Oddleifsson, forstjóri Beru
  • Óli Rúnar Jónsson, framkvæmdastjóri Ölgerðarinnar

Þá hafi eftirfarandi stjórnendur keypt 787.500 hluti á 5,1 milljón króna og selt á 12 milljónir króna:

  •  Júlía Eyfjörð Jónsdóttir, sviðsstjóri framleiðslu- og tæknisviðs Ölgerðarinnar
  • Óskar Ingi Magnússon, fjármálastjóri Beru





Fleiri fréttir

Sjá meira


×