Mikil og ör fjölgun í hópi ökukennara ár eftir ár. Hver er ávinningurinn? Þuríður B. Ægisdóttir skrifar 18. maí 2026 08:33 „Komdu ferlinum á hreyfingu og sæktu um í dag!” var sagt á síðu Endurmenntunar háskóla Íslands í auglýsingu um ökukennaranám. Einnig var spurt “Langar þig að verða ökukennari?” Á síðustu árum hefur Endurmenntun háskóla Íslands útskrifað hátt í tvö hundruð ökukennara. Síðustu ár höfum við hjá Ökukennarafélagi Íslands haft áhyggjur af þeirri miklu og öru fjölgun sem verið hefur í stétt ökukennara. Við höfum bent á það að nauðsynlegt sé að skoða hver áhrif svo gríðalegrar fjölgunar hefur á umferðaröryggi, umferðarmenningu, faglega þróun ökukennara, gæði ökukennslu og stétt ökukennara í heild en hlustunin hefur verið engin. Við getum verið sammála um það að nauðsynlegt er í nánast öllum störfum að viðkomandi geti og hafi tækifæri til að þróast en ekki síður öðlast færni og reynslu í starfi. Ef horft er til starfsumhverfis ökukennara þá má nefna að að fæðingartíðni í árgöngum sem munu ná bílprófsaldri fækkar um 20% á næstu fimm árum. Ég er því nokkuð hugsi yfir hvatningu til umsækjenda um að koma ferlinum á hreyfingu og að sækja um í dag og velti fyrir mér hvort að kannað hafi verið hvernig nýútskrifuðum ökukennurum síðustu ár hefur vegnað? Námið sjálft kostar á þriðju milljón, nær yfir eitt ár og að því loknu tekur við kostnaður á búnaði og kennslubifreiðum. Því er nokkuð ljóst að þeir sem hyggja á nám til ökukennara verða að hafa það í huga að sá mikli fjöldi fólks sem hefur útskrifast á síðustu árum er viðbót við þann fjölda ökukennara sem fyrir er. Á síðu Endurmenntunar Háskóla Íslands segir að ökukennaranámið geti einnig nýst vel við margvísleg önnur störf á sviði umferðarmála. Áhugavert væri að vita hvaða störf á sviði umferðarmála fyrrum nemendur starfa við og hófu nám eingöngu til að starfa við annað en ökukennslu. Einnig væri áhugavert að vita hvað margir ökukennarar sem útskrifast hafa síðustu ár hafa náð þeim áfanga að hafa ökukennslu sem sitt aðal starf en útlit er fyrir að þeim fer fækkandi sem það geta og þá er einnig ef horft er til þeirra sem hafa starfað við fagið til fjölda ára. Það er mín tilfinning að þeir sem hafa leitað til Ökukennarafélags Íslands hafa horft til þess að starfa sem ökukennari. Því er sárt að horfa til þess að verið sé að búa til væntingar hjá þeim sem mennta sig til ökukennara og enn sárar er þegar nemendur átta sig á þeim fjölda kennara sem fyrir er. Í lokin þá vil ég rifja upp er Ökukennarafélag Íslands ályktaði á aðalfundi sínum þann 19. apríl 1987 til Dómsmálaráðherra og varaði við örri fjölgun ökukennara. Í svarbréfi dóms- og kirkjumálaráðherra segir “Að höfðu samráði við prófnefnd ökukennara hefur ráðuneytið ákveðið að fresta námskeiði til undirbúnings ökukennaraprófi árið 1987”. Fyrir tæpum fjörtíu árum þá var hlustað en ekki vaðið áfram án þess að skoða mögulegar afleiðingar þessarar öru fjölgunar á gæði ökukennslu, þróun ökukennara, en ekki síst umferðaröryggi. Höfundur er formaður Ökukennarafélags Íslands. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Þuríður B. Ægisdóttir Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Sjá meira
„
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar