Tilraun til þess að skilja hægri slagsíðu stjórnmálanna á Íslandi í dag Guðrún Elísa Sævarsdóttir skrifar 17. maí 2026 12:12 Jæja núna eru kosningarnar búnar og fólk getur hætt að lofa upp í ermina á sér og mögulega farið að háma í sig loforðasúpuna. Í morgunsárið hef ég verið að spá og spekúlera um það af hverju Íslendingurinn hagar sér eins og hann hagar sér. Það er freistandi að líta á stjórnmál sem einfalt val milli hægri og vinstri, milli skattastefnu, ríkisafskipta og einstakra kosningaloforða. En stjórnmál mótast ekki aðeins af efnahagslegum hagsmunum heldur einnig af því hvernig samfélag skilur gildi manneskjunnar, samstöðu fólks og hverjir teljast tilheyra samfélaginu. Þess vegna skýrir fylgi íhalds og hægrisinnaðrar orðræðu ekki bara kosningarnar, heldur endurspeglar það dýpra samfélagslegt hugarfar (Inglehart og Norris, 2016). Á Íslandi hefur hugmyndin um að vera sjálfstæður einstaklingur lengi verið hluti af þjóðarsjálfsmyndinni. Samfélag okkar hefur byggst á erfiðum lífsskilyrðum í gegnum tíðina og hefur það gert dugnað, útsjónarsemi og sjálfsbjargarviðleitni að eftirsóknarverðum gildum meðal Íslendinga. Sá sem gat staðið á eigin fótum naut virðingar samfélagsins. Þessi menningararfur lifir enn og hefur mótað hvernig margir líta á ríkið, skatta og sameiginleg velferðarkerfi (Esping-Andersen, 1990). Þegar þessi hugsun verður ráðandi í nútímasamfélagi getur hún einnig þróast yfir í tortryggni gagnvart þeim sem þurfa stuðning eða standa utan hins hefðbundna samfélagsramma. Þá verður hætta á að fátækt, jaðarsetning og mismunun séu túlkuð sem mistök einstaklingsins frekar en afleiðing samfélagslegra aðstæðna. Í svona umhverfi nær hægrisinnuð orðræða fótfestu. Þessi orðræða birtist sjaldnast í opinberu hatri heldur frekar í endurteknum skilaboðum þar sem ákveðnir hópar ógna stöðugleika samfélagsins eða hagsmunum ,,venjulegs fólks” (Mudde, 2007). Orðræðan um að innflytjendur séu sagðir taka of mikið pláss og séu að stela frá ,,hinum sönnu” Íslendingum, réttindabarátta hinsegin fólks talin ganga of langt og krafa minnihlutahópa um jafnrétti túlkuð sem atlaga að meirihlutanum. Þessi ranghugmynd að réttindi ákveðins hóps taki af réttindum annarra er mjög útbreidd á meðal þeirra sem hugsa svona. Slík orðræða byggir síður á staðreyndum en byggir frekar á tilfinningum eins og ótta, óöryggi og þeirri hugmynd að samfélagið sé að breytast hraðar en fólk ræður við (Foucault, 1980; Wodak, 2015). Ef við pælum í þessu þá felst hættan í því hvernig þessi orðræða getur smám saman grafið undan samkenndinni hjá fólki. Þegar fólk hættir að sjá einstaklinga en fer þess í stað að hugsa um hópa sem „vandamál” verður auðveldara að réttlæta útilokun og harðari og ómanneskjulega stefnu. Innflytjandinn verður ekki lengur manneskja með sína lífssögu og upplifun heldur verður að tákni sem samfélagsógn að einhverju tagi eða ferli sem má skilja í ljósi stimplunarkenningar Goffmans (Goffman, 1963). Hinsegin einstaklingar verða ekki nágrannar okkar, vinir eða fjölskyldumeðlimir heldur eitthvað sem er abstrakt og ósnertanlegt fyrirbæri sem fólk hræðist. Ef við skoðum sögu Evrópu sýnir hún hversu virkilega hættulegur sá hugsunarháttur getur orðið þegar samfélög venjast því að afmennska ákveðna minnihlutahópa. Þegar það gerist þá veikist ekki aðeins staða minnihlutans heldur lýðræðið sjálft. Lýðræðið er nefnilega okkar allra, minnihlutahópanna líka. Samt væri of einfalt að skýra fylgi hægrisinnaðra afla með fordómum einum saman. Margir leita í slíka orðræðu vegna óöryggis og ótta við að missa fótfestuna í samfélagi sem breytist hratt. Hækkandi húsnæðiskostnaður, verðbólga og vaxandi ójöfnuður skapa jarðveg fyrir reiði og vanlíðan (Wilkinson & Pickett, 2009). Þá verður auðvelt að beina gremjunni að þeim sem hafa minna vald í stað þess að beina henni að þeim kerfum sem viðhalda ójöfnuðinum. Mögulega er stærsta verkefni samfélagsins því að rækta samkenndina hjá öllum hópum samfélagsins. Fólk þarf mögulega að hætta að fela sig bakvið skjái, hitta fólk í samfélaginu og kynnast því og efla félagsleg tengsl. Samkennd er alls ekki veikleiki heldur mjög mikilvæg til þess að við getum átt heilbrigt samfélag. Samkenndin felst í því að geta sett sig í spor annarra, sem félagsfræðingurinn Max Weber kallaði „Verstehen“ (Weber, 1978). Með því að nota þessa samkenndaraðferð er möguleiki á að sjá líf annarra eins rauverulegt og þitt eigið líf. Samfélag sem ver réttindi minnihlutahópa er ekki samfélag sem tekur eitthvað frá meirihlutanum heldur samfélag sem skilur að mannréttindi eru fyrir öll. Í anda Foucault má skilja slíka orðræðu sem hluta af valdakerfi þar sem ,,sannleikur” og ,,eðlilegt” eru mótuð í gegnum orðræðu sem skilgreinir mörk samfélagsins (Foucault, 1980). Þegar stjórnmál byggjast á ótta þrengist rými samfélagsins og útilokun verður auðveldari. Þegar þau byggjast á samkennd opnast hins vegar möguleiki á að byggja samfélag þar sem fleiri fá að tilheyra og taka þátt á jafnræðisgrundvelli. Jafnrétti annarra felur ekki í sér skerðingu á réttindum einstaklingsins, enda eru réttindi ekki takmörkuð auðlind sem deilist milli fólks. Heimildir: Esping-Andersen, G. (1990). The three worlds of welfare capitalism. Princeton University Press. Foucault, M. (1980). Power/knowledge: Selected interviews and other writings 1972–1977. Pantheon Books. Goffman, E. (1963). Stigma: Notes on the management of spoiled identity. Prentice-Hall. Inglehart, R., & Norris, P. (2016). Trump, Brexit, and the rise of populism. Harvard Kennedy School. Mudde, C. (2007). Populist radical right parties in Europe. Cambridge University Press. Wilkinson, R., & Pickett, K. (2009). The spirit level. Allen Lane. Weber, M. (1978). Economy and society. University of California Press. Wodak, R. (2015). The politics of fear. SAGE. Höfundur er félagsfræðimenntaður kennari. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Þess vegna já Arnór Sighvatsson Skoðun Er Ísland Manchester City og ESB Sheffield United Gauti Eggertsson Skoðun Finnar elska ESB Halldór Jörgen Olesen Skoðun Kúnstin að naga blýanta Hrafnkell Tumi Kolbeinsson Skoðun Varanlegar undanþágur eru möguleiki Per Ekström Skoðun Það er ekki eftir neinu að bíða Trausti Hjálmarsson Skoðun Hverju erum við eiginlega að fórna fyrir „lægra atvinnuleysi“? Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun Erlent vald er vesen Guðmundur Fertram Sigurjónsson Skoðun Þreifað á „pakkanum“ Hlín Leifsdóttir Skoðun Er betra að vita en halda? Óli Rúnar Ástþórsson Skoðun Skoðun Skoðun Þjóðaratkvæðagreiðslan er lýðræðisleg aðferð og lærdómsferli Þorsteinn Gunnarsson skrifar Skoðun Tími varanlegra undanþága er liðinn Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Málefnið liggur á götunni Steindór Þórarinsson skrifar Skoðun Finnska fordæmið – aðlögun að afnámi tollverndar eða umbreytingu stuðningskerfis? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Er betra að vita en halda? Óli Rúnar Ástþórsson skrifar Skoðun Eitt lítið og saklaust skref í einu í átt til Brussel Einar Geir Þorsteinsson skrifar Skoðun Það er ekki eftir neinu að bíða Trausti Hjálmarsson skrifar Skoðun Þess vegna já Arnór Sighvatsson skrifar Skoðun Smá standard, takk Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Erlent vald er vesen Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Hvernig getum við stöðvað innbrotaölduna í Reykjavík? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Finnar elska ESB Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Kúnstin að naga blýanta Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Hverju erum við eiginlega að fórna fyrir „lægra atvinnuleysi“? Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Upplýst lýðræði - Lærdómurinn af einni leiðréttingu Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Fullyrðingar utanríkisráðherra um samningssvigrúm Íslands Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þreifað á „pakkanum“ Hlín Leifsdóttir skrifar Skoðun Er Ísland Manchester City og ESB Sheffield United Gauti Eggertsson skrifar Skoðun Varanlegar undanþágur eru möguleiki Per Ekström skrifar Skoðun Hvernig lögum við vanstillt stjórnmál? Gunnar Már Gunnarsson skrifar Skoðun Gjaldþrotasaga flugfélaga er alvarleg áminning um skaða krónunnar Baldur Pétursson skrifar Skoðun Einfaldasta sagan er ekki alltaf sú sanna Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Það er ekki nóg að tala um geðheilbrigði. Það er kominn tími á aðgerðir Jóna Kristín Einarsdóttir skrifar Skoðun Hver fer í slíkar „samningaviðræður“? Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Sættum okkur ekki við atvinnuleysi Illugi Gunnarsson,Ragnhildur Björt Björnsdóttir skrifar Skoðun Íslenskir vefir á faraldsfæti Birgir Hrafn Birgisson skrifar Skoðun Ég er ekki Evrópusinni Óðinn Freyr Baldursson skrifar Skoðun Hjarðarbólsoddi Oddur Sigurðsson skrifar Skoðun Þetta snýst um aðild Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Skoðun Standast orkufyrirtæki ríkisins grundvallargildi fjármálaráðherra? Embla Einarsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Þjóðaratkvæðagreiðslan er lýðræðisleg aðferð og lærdómsferli Þorsteinn Gunnarsson skrifar
Skoðun Finnska fordæmið – aðlögun að afnámi tollverndar eða umbreytingu stuðningskerfis? Erna Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Hverju erum við eiginlega að fórna fyrir „lægra atvinnuleysi“? Sveinn Atli Gunnarsson skrifar
Skoðun Gjaldþrotasaga flugfélaga er alvarleg áminning um skaða krónunnar Baldur Pétursson skrifar
Skoðun Það er ekki nóg að tala um geðheilbrigði. Það er kominn tími á aðgerðir Jóna Kristín Einarsdóttir skrifar
Skoðun Standast orkufyrirtæki ríkisins grundvallargildi fjármálaráðherra? Embla Einarsdóttir skrifar