Kaus áður Sjálfstæðisflokkinn, nú Pírata Ingibjörg Þóra Haraldsdóttir skrifar 15. maí 2026 21:11 Ég er fædd og uppalin í Reykjavík, ólst upp á bláu heimili og kaus ávallt Sjálfstæðisflokkinn í sveitarstjórnarkosningum vegna þess að ég trúði því að þeir af öllum myndu fara rétt með fjármagn og rekstur borgarinnar. Snemma á háskólaárunum mínum kenndi ég Degi B. Eggertssyni um allt það sem illa fór um í borginni, hver einasta hola í jörðinni var honum að kenna og lét mig dreyma um gömlu sjálfstæðistímana, án þess að vita nákvæmlega hverju ég var að falast eftir. Á sama tíma elskaði ég að taka þátt í könnunum fyrir Hverfið mitt og hvatti alla í kringum mig til að taka þátt. Ég elskaði hvað allt var nálægt í þeim hverfum sem ég hef búið í Reykjavík og hvað menningarlífið var gott í borginni. Mér þótti einnig mjög vænt um að sjá hvað þjónustan var að verða meira og meira rafræn, sem ég fagnaði með því að senda kvörtun um bilaðan ljósastaur í Klambratúninu beint í gegnum netið. Allt þetta sem ég elskaði var Pírötum að þakka. Ég áttaði mig betur á málunum eftir að ég byrjaði að starfa hjá borginni, á Þjónustu-og nýsköpunarsviði sem er svið stofnað af Pírötum. Ég hef starfað við skjalamál og stafræna þróun á því sviði í nær fjögur ár. Öll þessi ár hafa einkennst af orðræðu frá þeim flokki sem ég hef oftast kosið í sveitarstjórn, að þetta svið sé tilgangslaust, of dýrt og að það þurfi að leggja það niður. Mér hefur alltaf sárnað þessi orðræða vegna þess að á þessu sviði er fólk sem vinnur sleitulaust í þágu borgarinnar til að gera bæði rekstur borgarinnar hagstæðari og þjónustuna betri og aðgengilegri íbúum. Hvað gerir Þjónustu- og nýsköpunarsvið? Án þess að fara í of miklar málalengingar þá til að kjarna hvað ÞON gerir er hægt að lýsa því á þennan hátt: ÞON leggur áherslu á að þjónusta við íbúa verði aðgengileg og einföld, að upplýsingar til íbúa séu aðgengilegar og skilvirkar og að kerfi borgarinnar séu örugg, skilvirk og hagstæð og nýtist íbúanum sem best. ÞON hefur unnið gegn áratuga langri tækniskuld með miðlægri stjórnun á tölvukerfum borgarinnar sem gerir vinnu starfsfólks skilvirkari og þar af leiðandi rekstur borgarinnar hagstæðari. Dæmi um verkefni sem ÞON hefur gert eru t.d.: Stafræn þjónustugátt: Mínar síður fyrir íbúa til að eiga bein samskipti við borgina og er vettvangur fyrir íbúa að sækja um styrki og þjónustu. Nýtt skjalakerfi fyrir alla stjórnsýsluna: Áður fyrr var skjalakerfi hjá borginni sem tengdi ekki starfsemi borgarinnar. Nú eru öll stjórnsýsluskjöl borgarinnar á einum stað og unnið er þvert á milli sviða og eininga borgarinnar í slíku kerfi. Gagnsæ stjórnsýsla: Reykjavíkurborg er með bókhaldið sitt opið á netinu sem styrkir gagnsæja stjórnsýslu. Rafræn byggingarleyfi. Þetta er mjög stuttur listi af verkefnum sviðsins en þau styðja við kjarnagildi sviðsins, sem er að setja fólk í fyrsta sætið, að vera einu skrefi á undan og aldrei hætta að þora. Fyrir þessa vinnu hefur sviðið fengið verðlaun, þar á meðal UT-verðlaun Ský fyrir bestu opinberu stafrænu þjónustuna og Nýsköpunarverðlaun hins opinbera þar sem var sérstaklega nefnt framlag sviðsins til notendamiðaðrar þjónustu og einföldunar ferla. Af hverju Píratar þá? Píratar hafa lagt áherslu á eftirfarandi hluti í borginni: Gagnsæi í stjórnsýslu Auka stafræna þjónustu Fjölga hjólastígum Styrkja almenningssamgöngur Styðja við og auka við íbúalýðræði Mannréttindi og fjölbreytileika borgarinnar Þétting byggðar Betra umhverfi fyrir íbúa Hvað hafa þeir afkastað? Píratar hafa innleitt gagnsæi í stjórnsýslu. Þeir hafa aukið stafræna þjónustu í borginni. Þeir hafa fjölgað hjólastígum. Þeir hafa styrkt almenningssamgöngur með áformum um Borgarlínu. Þeir hafa stutt við íbúalýðræði bæði með Hverfið mitt og íbúaráðunum. Þeir hafa staðið vörð um mannréttindi og fjölbreytileika borgarinnar með því að stofna mannréttindaskrifstofu Reykjavíkurborgar. Þeir hafa þétt byggðina og innleitt borgarhönnunarstefnu til að passa upp á að byggð sé heilnæm húsnæði með nóg af sólarljósi og grænum svæðum í kringum sig – ásamt því að passa upp á að öll þjónusta sé í 15 mínútna fjarlægð. Þeir hafa lagt áherslu á að gera borgina grænni með því að fjölga grænum svæðum og innleiða „viljandi villt“ svæði til að styðja við líffræðilega fjölbreytni. Þá lít ég til baka og spyr sjálfa mig… myndi ég kjósa Sjálfstæðisflokkinn í dag, eins og ég hef gert áður? Svarið er nei. Ég veit meira í dag, ég þekki kerfið betur. Ég vil að Reykjavíkurborg bjóði upp á bestu og aðgengilegustu þjónustu sem er hægt að bjóða upp á. Ég vil að íbúar fái valfrelsi í samgöngum. Ég vil að íbúar fái að taka þátt í ákvarðanatöku í borginni. Ég vil að Reykjavíkurborg leggi áfram áherslu á mannréttindi og fjölbreytileika. Ég vil að borgin sé umhverfisvæn, græn og falleg. Ég vil Pírata áfram í borgarstjórn. Hvað vilt þú? Höfundur er varaformaður Pírata og starfsmaður Þjónustu- og nýsköpunarsviðs. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Píratar Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Reykjavík Ingibjörg Þóra Haraldsdóttir Mest lesið Trúum á enn stærra og sterkara Ísland Þórður Snær Júlíusson Skoðun Hollenska húsnæðislánið Arnór Ingi Finnbjörnsson Skoðun Litla beiðnin kemur fyrst, svo sú stóra. Birna Bragadóttir Skoðun Óvissan í alþjóðamálum - Hvað ef Norðmenn verða á undan? Dagur B. Eggertsson Skoðun Sex ýkjur nei-sinna og já-sinna Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Þögnin rofin um þjóðartekjurnar Jón Gunnar Jónsson Skoðun Komið gott Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns Skoðun Hinn ólánsami Ólafur Ragnar Lúðvík Bergvinsson Skoðun Já núna – til að geta sagt nei síðar Friðrik Björgvinsson Skoðun Rétturinn er sá sami – en tækifærið er það ekki Anna Margrét Bjarnadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Þegar ríkið tekur reikninginn Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þögnin rofin um þjóðartekjurnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun Falleinkunn heima, en hugurinn í Brussel Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Tökum slaginn fyrir börnin Tótla I. Sæmundsdóttir,Þorbjörg Helga Þorgilsdóttir skrifar Skoðun Óvissan í alþjóðamálum - Hvað ef Norðmenn verða á undan? Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Hollenska húsnæðislánið Arnór Ingi Finnbjörnsson skrifar Skoðun Borgin þarf ekki kjötexi — hún þarf mælikerfi Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Stríð ESB gegn jöfnuði og velferð Andri Sigurðsson skrifar Skoðun Já núna – til að geta sagt nei síðar Friðrik Björgvinsson skrifar Skoðun Þegar efinn verður þýðingarmeiri en sannleikurinn Guðjón Heiðar Pálsson skrifar Skoðun Sex ýkjur nei-sinna og já-sinna Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Komið gott Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns skrifar Skoðun Sjálfstæð þjóð tekur sér sæti við borðið Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Ræður Evrópusambandið hvort dánaraðstoð verði leyfð á Íslandi? Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun 4.677 nýir vegfarendur á leið í skólann Lára Hrafnsdóttir,Gunnar Geir Gunnarsson skrifar Skoðun Evran lækkar ekki vextina Magnús B. Jóhannesson skrifar Skoðun Trúum á enn stærra og sterkara Ísland Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Rétturinn er sá sami – en tækifærið er það ekki Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Litla beiðnin kemur fyrst, svo sú stóra. Birna Bragadóttir skrifar Skoðun Nei fyrir komandi kynslóðir Ingibjörg H. Sverrisdóttir skrifar Skoðun Angan lótusblómsins Meyvant Þórólfsson skrifar Skoðun Er ég að bregðast börnunum mínum með því að segja NEI? Monika Margrét Stefánsdóttir skrifar Skoðun Gamli sáttmálinn og sá nýi Aðalsteinn Már Þorsteinsson skrifar Skoðun Er betra? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Útgerðarauðvaldið vill í ESB - ég segi nei Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Gervigreind, gagnaver og tækifæri Íslands Eymundur Sigurðsson skrifar Skoðun Sveitirnar þagna Walter Fannar Kristjánsson skrifar Skoðun Áður en lengra er haldið Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Erum við of fljót að kenna samfélagsmiðlum um? Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Börn læra ekki fyrir framtíð sem þau skynja ekki Helgi S. Karlsson skrifar Sjá meira