Áheyrn og árangur í skólamálum í Hveragerði Halldóra Jóna Guðmundsdóttir skrifar 15. maí 2026 19:12 Síðustu vikurnar hafa framboð í sveitarstjórnarkosningunum í Hveragerði kynnt sína stefnu fyrir bæjarbúum. Það málefni sem brennur mest á mér eru skólamál. Við getum líklega öll verið sammála um að við viljum gera betur fyrir börnin okkar og tryggja að þeim líði vel í leik og námi. Börnin okkar eiga skilið skólaumhverfi þar sem þeim líður vel og þau fá að blómstra. Ég hef sjálf fundið fyrir þeim breytingum sem hafa orðið í grunnskólanum síðastliðin fjögur ár. Í dag upplifi ég jákvæðara viðhorf gagnvart því að takast á við verkefni og áskoranir, stór sem smá. Meiri og ríkari áhersla er lögð á samtal, lausnir og velferð nemenda. Ég sé það bæði á mínum drengjum að þeim líður betur og þeir hafa sjálfir tjáð okkur foreldrunum það. Áður fyrr upplifðum bæði ég og synir mínir að ekki væri nægilega vel hlustað á okkur og að mál sem kæmu upp fengju ekki alltaf þann farveg sem þau þyrftu. Við höfum verið afar heppin með umsjónarkennara í gegnum tíðina, en það eitt og sér dugar ekki til. Skólarnir þurfa að styðja vel við kennara sína og bæjaryfirvöld þurfa að standa þétt við bakið á skólunum. Það er lykilatriði að allir vinni saman með velferð barnanna að leiðarljósi. Rödd hvers barns skiptir máli Börn tjá sig á fjölbreyttan hátt, meðal annars með hegðun sinni, óháð aldri. Það er mikilvægt að við, sem fullorðin erum, séum næm á það sem þau reyna að segja okkur, hvort sem það kemur fram í orðum, líðan eða hegðun. Börn þurfa að upplifa að á þau sé hlustað og rödd þeirra hafi raunverulegt vægi þegar ákvarðanir sem snerta þau eru teknar. Ég á barn sem hefur þurft á stuðningi að halda í skólanum. Fyrir nokkrum árum gekk skólagangan mjög erfiðlega þrátt fyrir að barnið væri sterkt námslega. Endurteknir árekstrar í samskiptum við önnur börn og starfsfólk höfðu mikil áhrif á líðan þess og skólaumhverfið varð oft krefjandi. Það skipti sköpum þegar námsverið var opnað og barnið mitt fékk þar aðgang að stuðningi eftir þörfum. Þar starfa fagmenntaðir aðilar sem hafa skapað umhverfi þar sem börn geta fengið aukinn stuðning, ró og leiðsögn þegar á þarf að halda. Munurinn á síðasta skólaári og því skólaári sem nú er að líða er gríðarlegur. Ástæðan er einföld: barnið fékk það svigrúm, þann skilning og þann stuðning sem það þurfti. Í dag þarf það síður að nýta sér námsverið en áður, en öryggið felst í því að vita að úrræðið er alltaf til staðar ef þörf krefur. Þessi reynsla hefur sýnt mér hversu mikilvægt það er að grípa börn snemma, hlusta á þarfir þeirra og mæta þeim af skilningi og fagmennsku. Nemendur sem glíma við námsörðugleika, félagslega eða tilfinningalega erfiðleika, fötlun eða aðrar áskoranir eiga lögum samkvæmt rétt á viðeigandi stuðningi innan skólans. Þessi réttur er síður en svo nýr af nálinni en sem foreldri hef ég fyrst á allra síðustu árum fundið fyrir því að þessi áhersla sé farin að skila sér með markvissum hætti inn í skólastarfið. Það sem skiptir mestu máli núna og í framhaldinu er að ekki sé slegið slöku við. Foreldrar, börn og starfsfólk skólans finna öll að þjónustan hefur tekið jákvæðum breytingum og að stuðningurinn skilar árangri. Nú þarf að halda áfram á þeirri braut, efla þjónustuna enn frekar, klára að fylla upp í þörf stöðugildi fagaðila og tryggja að öll börn fái nauðsynlegan stuðning í takt við þeirra þarfir og hann sé veittur á réttum tíma. Börnin okkar eiga skilið að við séum til staðar fyrir þau, hlustum á þau og byggjum áfram upp skólaumhverfi þar sem velferð þeirra er alltaf í forgrunni. Höfundur skipar 10. sæti á lista Okkar Hveragerðis 2026. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Hveragerði Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar