Byggjum upp íbúðir fyrir ungt fólk og fyrstu kaupendur svo börnin geti flutt að heiman Hildur Rós Guðbjargardóttir skrifar 14. maí 2026 17:13 Það sem einkennt hefur síðustu ár hér á landi eru miklar sveiflur á húsnæðismarkaði. Þessar sveiflur hafa leitt það af sér að hópur fólks hefur setið eftir vegna húsnæðiskostnaðar og búa því við lítið húsnæðisöryggi. Önnur afleiðing er sú að ungt fólk býr lengur í foreldrahúsum og ég held að við þekkjum öll til fjölskyldna þar sem foreldrarnir eru aðstoða börn sín við að komast að heiman og það getur reynst erfitt. Og við því þarf að bregðast og þar hafa sveitarfélögin hlutverki að gegna. Tryggja verður nægt framboð lóða Til þess að bregðast við þessari stöðu sem hefur versnað á síðustu árum þurfa sveitarfélögin að tryggja nægt framboð af lóðum fyrir fjölbreytta húsnæðisuppbyggingu. Hafnarfjörður eins og önnur sveitarfélög verður að stíga sterkt inn og skipuleggja lóðir í samræmi við þarfir ólíkra hópa. Það þarf frekari uppbyggingu hagkvæms húsnæðis sem fellur undir hlutdeildarlán svo að ungt fólki, tekjulægri einstaklingar og fjölskyldur hafi tækifæri til þess að komast inn í húsnæðismarkað sem fyrstu kaupendur. Þess þá heldur þarf að hafa fjölbreytt framboð húsnæðis til leigu hvort sem það er að skipuleggja lóðir til uppbyggingar fyrir stúdenta eða annarra félaga sem eru með óhagnaðardrifin sjónarmið að leiðarljósi. Því það skiptir öllu máli að sveitarfélög taki ábyrgð og skipuleggi uppbyggingu með hagkvæmt húsnæði í fyrirrúmi til þess að ná niður húsnæðisverði fyrir umrædda hópa samfélagsins og tryggja jafnframt húsnæðisöryggi. Hátt kaup- og leiguverð Það sem helst áberandi í þessari sviðsmynd er að það er ungt fólk, einstaklingar og fjölskyldur í lægsta tekjuhópi sem eiga erfitt með að fóta sig á húsnæðismarkaði. Hátt leigu- og kaupverð gerir það nær ómögulegt fyrir umrædda hópa að öðlast húsnæðisöryggi þá er engu að skipta hvort um er að ræða húsnæði til leigu eða fyrstu kaupa. Afleiðingarnar eru þær að ungt fólk býr lengur í foreldrahúsum og tekjulægri einstaklingar og fjölskyldur sem ekki búa í eigin húsnæði eru iðulega á flutningum vegna stuttra leigusamninga. Markvisst samstarf um óhagnaðardrifna uppbyggingu Það hefur sýnt sig að raunhæfasta leiðin til þess að ná niður húsnæðisverði fyrir tekjulægri hópa samfélagsins er markviss uppbygging í samstarfi við óhagnaðardrifin félög. Þess vegna þarf að ráðast í kraftmikla og fjölbreytta húsnæðisuppbyggingu fyrir ungt fólk og fyrstu kaupendur, eldri íbúa, námsmenn og tekjulægri hópa í samfélaginu. Þetta getum við gert með því að fjölga íbúðum sem falla undir skilyrði hlutdeildarlána og með samstarfi við byggingarfélög eldri borgara, stúdenta og óhagnaðardrifin leigufélög á vegum verkalýðshreyfingarinnar. Með þessum aðgerðum geta sveitarfélög tekið þátt í að minnka sveiflurnar á húsnæðismarkaði og skapað frekara húsnæðisöryggi fyrir íbúa sína. Samfylkingin ætlar að tryggja fjölbreytt framboð tryggja fjölbreytt framboð lóða til að stuðla að uppbyggingu húsnæðis fyrir ungt fólk og fyrstu kaupendur sem og til þess byggja upp öruggan leigumarkað. XS - Sterkari saman Höfundur er bæjarfulltrúi og skipar 2. sætið á lista Samfylkingarinnar í Hafnarfirði. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar