Gerum miðbæ Garðabæjar iðandi af lífi og menningu Vilmar Pétursson skrifar 14. maí 2026 12:13 -Hugsum stórt, framkvæmum af skynsemi. Miðbær Garðabæjar þjónar í dag fyrst og fremst því hlutverki að vera staður þar sem íbúar geta sótt ýmiss konar þjónustu. Sem slíkur þjónar miðbærinn hlutverki sínu ágætlega. Flestir sem þangað koma keyra nokkra hringi á torginu í leit að bílastæði klára sín erindi og fara svo aftur. Til að fólk sæki í miðbæinn til að dvelja og njóta þarf í bland við þjónustufyritæki og stofnanir að vera menningarstarfsemi, listasöfn, útisvæði og rými fyrir samveru. Á góðviðrisdögum þarf að vera hægt að setjast niður og njóta, leyfa krökkunum að hlaupa aðeins um án þess að þurfa stöðugt að hafa áhyggjur af bílaumferð. Þar á að vera rými til að vera með uppákomur og bæjarhátíðir bæði utanhúss og innan. Svona miðbæ er hægt að skapa í Garðabæ en til þess þarf að útvíkka miðbæjarsvæðið, hugsa stórt en framkvæma af skynsemi. Hvernig mætti hugsa sér að þetta liti út? Hús lista, menningar og opinberrar þjónustu Fyrirtækin Veritas, Distica og Vistor hafa verið að leita að lóð sem hentar betur undir starfsemi fyrirtækjanna. Æskilegast væri ef Garðabær gæti boðið fyrirtækjunum slíka lóð til að missa ekki þessi öflugu fyrirtæki úr bæjarfélaginu. Við það myndu opnast möguleikar á að nýta núverandi húsnæði og lóð fyrirtækjanna við skipulag og uppbyggingu miðbæjarins. Húsnæðið er fjölbreytt og bíður uppá mikla möguleika með stórum rýmum og góðum gluggum Þar mætti hýsa ýmsa starfsemi á vegum bæjarins s.s. bæjarskrifstofur og bókasafn. Einnig væri þar kjörinn staður fyrir nýsköpunar- og menningarhús og ýmiss konar menningarstarfsemi. Þessi lóð gefur einnig möguleika á að leysa bílastæðaþörf miöbæjarsvæðisins án þess að ganga á græna svæðið. Fyrir utan húsið er stórt grænt svæði sem bíður uppá fjölda möguleika þar mætti t.d. hugsa sér skrúð og listigarð sem yrði sannkölluð vin í miðbænum. Lifandi borgartorg Garðatorgið er í dag eingöngu nýtt sem bílastæði. Með því að leysa bílastæðaþörfina á annan hátt skapast möguleikar til fjölbreyttari nýtingar á torginu. Þar gæti verið lifandi borgartorg með uppákomum og útiveitingum. Nýting torgsins gæti verið mismunandi eftir árstíðum. Tengingar við mannlíf og menningu Tengja þarf saman stærra svæði til að útvíkka og efla miðbæinn. Hugsa má sér sögustíga sem tengja Hofstaði, minningarreitinn, Vídalínskirkju og aðra merka staði í nágrenninu við miðbæinn. Góðar tengingar yfir Vífilstaðaveg myndu gera skólann, sundlaugina, íþróttasvæðin og stoppustöð almenningssamgagnana hluta af miðbænum, miðbæjarlífinu og miðbæjarstemmingunni. Yrði þetta ekki alltof dýrt? Mikilvægt er að skipuleggja svæðið í heild og hugsa til langs tíma. Þá geta rúmast innan þessa skipulags framkvæmdir og fjárfestingar sem hvort sem er yrði farið í. Í ofangreindum hugmyndum má ná uppí kostnað með því að flytja ýmsa starfsemi á vegum bæjarins s.s. bókasafni, bæjarskrifstofum Í Veritas húsið og selja þær eignir. Byggjum mannvænan, lifandi miðbæ. Hugsum stórt framkvæmum af skynsemi. Höfundur skipar 4. sæti á lista Samfylkingarinnar fyrir sveitarstjórnarkosningar í vor. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Sjá meira
-
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar