Heilsársbúseta er hjarta samfélagins Þorgerður Lilja Björnsdóttir skrifar 14. maí 2026 09:22 Þann 16. maí verða sögulegar kosningar í Árneshreppi á Ströndum, listakosning í fyrsta skipti síðan 1958. Tveir listar eru í framboði og því ljóst að framtíðin er björt þegar 20 manns í svona fámennu sveitarfélagi eru tilbúnir að gefa hjarta sitt og sál til að tryggja framtíð á svæðinu. Það er mikið fagnaðarefni. Áherslumál listans Framtíðar Árneshrepps eru skýr og einföld. Við verðum að taka skynsamlegar ákvarðanir í dag svo hér verði áfram byggð eftir 5-10 ár. Heilsársbúseta stendur höllum fæti og verður að vera forgangsmál. Þessu má líkja við fyrstu hjálp, fyrst er athugað hvort það sé hjartsláttur áður en hugað er að brotnum fæti. Heilsársbúseta er hjartað í samfélaginu Árneshreppi og það má bara ekki hætta að slá! Mikilvægast er að einblína á sérstöðu Árneshrepps og hvaða leiðir við getum farið til að fá nýtt fólk til að búa í okkar einstaka sveitarfélagi, í hlýjum faðmi fjalla og kyrrðar. Samgöngur, heilsársstörf og húsnæðismál eru samverkandi þættir og saman skapa þau lausnina. Við þurfum betri veg og tryggari samgöngur til að skapa fleiri heilsársstörf og við þurfum að endurskipuleggja húsnæði eða byggja upp nýtt svo hér sé pláss fyrir fólk að búa. Sauðfjárrækt og ferðaþjónusta eru helstu atvinnuvegir sveitarinnar en við verðum að tryggja framtíðarhorfur þessara greina því saman gera þær Árneshrepp að því samfélagi sem hann er í dag. Sauðfjárrækt í Árneshreppi er hátt skrifuð á landsvísu og einstakur demantur í samfélaginu sem ekki má glata. Nýliðun í sauðfjárrækt er landlægt vandamál og þar þurfa stjórnvöld að grípa inn í og tryggja innlenda matvælaframleiðslu og öryggi svo hægt sé að lifa af því að vera sauðfjárbóndi. Slíkar ráðstafanir hljóma mjög skynsamlega þegar ástandið í heiminum er ótryggt og mikilvægt er að geta verið sjálfum okkur næg. Kjötið sem og mjólkin er víst ekki framleitt í kjörbúðinni. Það er margt sem þarf að ráðast í og til þess þarf drifkraft og trú á framtíðina og það höfum við í Framtíð Árneshrepps svo sannarlega. Því við viljum eiga framtíð hér en við þurfum að skapa hana saman með stuðningi íbúa. Við þurfum nefnilega sjálf að hafa trú á framtíð heilsársbúsetu í Árneshreppi svo við getum sannfært aðra um að koma hingað og njóta hennar með okkur. Kjósum framtíðina! Höfundur skipar 2. sæti á lista Framtíðar Árneshrepps. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Árneshreppur Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar