Leikskóladvöl í Fjarðabyggð er lúxus Ásdís Helga Jóhannsdóttir skrifar 13. maí 2026 20:51 Það er ekki nema gott að heyra af foreldrum sem upplifa öryggi og góða þjónustu í leikskólakerfi Fjarðabyggðar. Öll viljum við að börnin hafi öruggt pláss og að starfsmenn vinni við góðar aðstæður. Spurningin sem blasir nú við er einföld: hver borgar fyrir þetta öryggi? Árið 2024 hækkuðu leikskólagjöld fyrir fulla vistun í Fjarðabyggð um rúmlega 50% og átti þessi hækkun sér stað á sama tíma og blekið þornaði á kjarasamningum þar sem sveitafélögin samþykktu að gjaldskrár skyldu ekki hækka umfram 3% á samningstímanum. Þessi aðgerð var ekki til þess fjármagna leikskólakerfið okkar heldur til þess að ‘hvetja’ (þvinga) foreldra í Fjarðabyggð til þess að nýta þjónustuna í minna magni. Það sem gerir þessa þróun varhugaverða er að hún snýst ekki aðeins um rekstur leikskóla, heldur líka um framtíð samfélagsins okkar. Þegar ungt fólk velur sér búsetu horfir það ekki eingöngu til húsnæðis eða atvinnu, heldur líka til þess hvort samfélagið styðji við fjölskyldulíf. Þar Skipta leikskólamál gríðarlegu máli. Sveitafélag sem gerir foreldrum erfitt fyrir að nýta leikskólaþjónustu er einfaldlega síður samkeppnishæft í baráttunni um að fá unga fólkið okkar aftur heim. Raunin er sú að þegar leikskólagjöld hækka svona mikið verða afleiðingarnar ekki bara hærri reikningar. Fyrir margar fjölskyldur verður niðurstaðan sú að annað foreldrið dregur úr starfshlutfalli vegna þess að leikskólakostnaðurinn étur upp stóran hluta launanna. Fram kom í viðhorfskönnun AFLs að í öllum þeim tilvikum sem foreldrar minnkuðu við sig vinnu voru það konur sem gerðu það. Það hefur áhrif á tekjur heimilanna, starfsþróun og lífeyrisréttindi til framtíðar. Það er ekki jafnréttisstefna að verðleggja fjölskyldur út úr þjónustu sem á að gera fólki kleift að taka þátt á vinnumarkaði. Sterkt leikskólakerfi á ekki að vera lúxus sem aðeins þeir tekjuhæstu hafa efni á að nýta sér til fulls. Það á að vera grunnþjónusta sem gerir fólki kleift að vinna, ala upp börn og byggja framtíð sína í sveitarfélaginu. Ef Fjarðabyggð ætlar að vera aðlaðandi valkostur fyrir ungt fólk þarf sveitarfélagið að fjárfesta í fjölskyldum og ekki verðleggja þær út úr kerfinu. Höfundur skipar 6. sæti á lista Samfylkingarinnar og annars félagshyggjufólks í Fjarðabyggð. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar