Menning er undirstaða öflugs samfélags á Seltjarnarnesi Karen María Jónsdóttir skrifar 13. maí 2026 19:51 Það skiptir máli hvernig það er að búa í sínum bæ. Sveitarfélag er ekki aðeins metið út frá leikskólaplássum, gatnakerfi og skipulagsmálum, heldur líka út frá því hvort þar sé líf, samvera og tilfinning fyrir samfélagi. Bæjarbragur verður ekki til af sjálfu sér. Hann verður til þegar fólk hefur staði til að hittast, vettvang til að skapa og tilefni til að taka þátt. Við viljum gera Seltjarnarnes að hvetjandi menningarsamfélagi með sterka sjálfsmynd og lifandi bæjarbrag. Þótt höfuðborgin sé í næsta nágrenni og þar sé fjölbreytt menningarframboð, má það aldrei verða afsökun fyrir því að byggja ekki upp eigið mannlíf hér heima. Seltjarnarnes á að standa á eigin fótum þegar kemur að menningu, listum og samfélagslífi. Það er ekki nóg að búa nálægt lífinu; við eigum að rækta það í okkar eigin bæ. Menning sem burðarás samfélagsins Menningin er ekki jaðarmál. Hún er ekki eitthvað sem kemur á eftir öðrum verkefnum ef tími og fjármagn leyfa. Menning er hluti af burðarvirki samfélagsins. Hún geymir sögu okkar, mótar sjálfsmynd bæjarins og styrkir tengslin á milli fólks. Hún fléttar saman fortíð, nútíð og framtíð og gefur samfélagi dýpt, lit og samkennd. Þess vegna viljum við setja menningarlíf og bæjarbrag í forgang. Við viljum byggja upp samfélag þar sem fólk finnur að það tilheyrir, þar sem sameiginleg reynsla og samvera skapa sterkari tengsl og aukna þátttöku. Það er ekki aðeins mikilvægt fyrir lífsgæði íbúa heldur líka fyrir sjálfsmynd bæjarins til framtíðar. Félagsheimilið á að iða af lífi Við viljum leggja ríka áherslu á að opna Félagsheimilið okkar allra inn í nýja tíma. Víða um land hafa félagsheimili fengið nýtt hlutverk og orðið að öflugum menningar- og samfélagshúsum. Við teljum að það sama eigi að vera markmiðið á Seltjarnarnesi. Félagsheimilið á ekki að vera vannýtt húsnæði heldur lifandi miðpunktur fyrir tónlist, menningu og samfélagslega nýsköpun. Við viljum að tónlistarskólinn og skólahljómsveitin fái þar fyrsta flokks aðstöðu til æfinga og kennslu. Um leið viljum við styðja betur við frumkvæði íbúa og félagasamtaka til að standa fyrir tónleikum, sýningum og fjölbreyttum viðburðum. Samkomustaðir bæjarins eiga að þjóna íbúunum sjálfum. Þeir eiga að vera vettvangur fyrir hugmyndir, sköpun og þátttöku. Samfélagsmiðja í hjarta bæjarins Við viljum einnig skoða af fullri alvöru fýsileika þess að færa bókasafnið nær félagsheimilinu, sundlauginni og íþróttamannvirkjum Gróttu. Þar gæti orðið til öflug menningarmiðstöð með sameiginlegum rýmum sem tengja saman ólíka starfsemi og ólíka aldurshópa. Slík samfélagsmiðja gæti orðið hjarta bæjarins; staður þar sem fólk stoppar við, dvelur, hittist og nýtur þess að vera saman. Þegar þjónusta, menning og mannlíf mætast á einum stað verða til ný tækifæri. Fjölskyldur, börn, ungmenni og eldri íbúar geta nýtt sama svæði á ólíkan hátt og þannig myndast sterkari samfélagsleg tenging. Það er sú hugsun sem við viljum hafa að leiðarljósi. Hátíðir sem binda bæinn saman Menningarlíf verður ekki aðeins byggt upp með húsnæði. Það verður líka til í hefðum, viðburðum og samveru sem skapa sameiginlegar minningar. Þess vegna viljum við endurvekja hátíðir sem lagst hafa af á síðustu árum, svo sem Listahátíð Seltjarnarness og Bæjarhátíðina á Vallarróló. Slíkir viðburðir skipta máli. Þeir efla samkennd, kalla fram stolta bæjarvitund og styrkja tengsl fólks við staðinn sinn. Við viljum jafnframt tengja Seltjarnarnes betur við fjölbreytt menningarlíf höfuðborgarsvæðisins með viðburðum í tengslum við hátíðir á borð við Safnanótt og Sundlauganótt. Með því skapast fleiri tækifæri fyrir íbúa til að taka þátt, njóta og upplifa. Bærinn á ekki aðeins að vera góður staður til að búa á. Hann á að vera staður þar sem fólk vill lifa, hittast og taka þátt. Skýr sýn fyrir lifandi bæjarbrag Seltjarnarnes hefur alla burði til að verða fyrirmynd þegar kemur að menningu og bæjarbrag. Til þess þarf þó skýra sýn og pólitískan vilja. Við viljum byggja upp samfélag þar sem menning er aðgengileg, sýnileg og virkur hluti af daglegu lífi. Samfélag þar sem sameiginlegir staðir styðja frumkvæði íbúa og þar sem listir og mannlíf fá að njóta sín. Þannig byggjum við ekki aðeins upp sterkara menningarlíf heldur líka hlýrra og samheldnara samfélag. Þannig verður til bær þar sem gott er að búa. Og þannig verður til bæjarbragur sem fólk finnur, upplifir og er stolt af. Höfundur skipar 13. sæti á lista Samfylkingar, Viðreisnar og óháðra á Seltjarnarnesi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar