Gott að eldast á Akureyri Hanna Dóra Markúsdóttir skrifar 13. maí 2026 13:43 Samfylkingin á Akureyri hefur sett það á stefnuskrá sína fyrir kosningarnar 16. maí að innleiða verkefnið „Gott að eldast“ á Akureyri. Verkefnið var innleitt sem tilraunaverkefni í Mosfellsbæ og hefur verið gerður að því góður rómur. Hugmyndafræði verkefnisins þykir okkur góð en í stuttu máli gengur það út á að mæta ört stækkandi og virkari hópi eldri borgara sem er okkur mikils virði. En hvað myndi breytast ef verkefnið „Gott að eldast“ yrði innleitt á Akureyri? „Gott að eldast“ er unnið í samstarfi sveitarfélags sem tekur þátt og tveggja ráðuneyta; félags- og vinnumarkaðsráðuneytis og heilbrigðisráðuneytis. Með slíku samstarfi yrði til samþætt þjónusta og er þar bæði átt við þjónustu við hvern og einn einstakling en einnig að rekstur þjónustunnar yrði á einni hendi, fjármagnaður sameiginlega af ríki og sveit. Sem dæmi þá væri einn aðili að reka samþætta heimaþjónustu á svæðinu, ekki væri lengur um að ræða aðskilda heimahjúkrun og heimaþjónustu. Í verkefninu er lögð áhersla á að vinna gegn einmanaleika og félagslegri einangrun eldra fólks og finna leiðir til að auka virkni og vellíðan íbúa. Í Mosfellsbæ var dagdvalarrýmum fjölgað og einnig sett á fót dagþjálfunarrými fyrir eldra fólk með skerta getu vegna heilabilunarsjúkdóma. Á Akureyri bráðvantar slík úrræði og þörfin brýn á að setja þetta í algeran forgang. Þar var einnig komið á heima-endurhæfingarteymi með stuðningi heilbrigðisráðuneytis, en teymið veitir persónumiðaða þjónustu sem fer fram á heimili viðkomandi notanda. Með þjónustunni fær fólk tímabundna þjálfun og ráðgjöf til að auka færni, virkni og bjargráð í athöfnum daglegs lífs. Þannig mætir þjónustan íbúanum á hans heimavelli. Eldra fólk leggur mikið til samfélagsins sem það byggði upp með það að markmiði og í þeirri von að geta átt áhyggjulaust ævikvöld. Það er afar mikilvægt að stuðla að auknu heilbrigði og betri líðan þessa hóps. Það er löngu tímabært að ALLIR átti sig á mikilvægi eldri borgara, hætti að kasta málefnum þeirra á milli kerfa eins og heitri kartöflu og taka utan um málaflokkinn af virðingu, festu og í góðu samstarfi við eldri borgarana sjálfa. Samfylkingin á Akureyri er tilbúin í það verkefni. Höfundur skipar 2. sæti á lista Samfylkingarinnar á Akureyri. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar