Börn úr símum – inn í samfélagið Tamar Klara Lipka Þormarsdóttir skrifar 13. maí 2026 12:56 Það er ekkert leyndarmál að börn og ungmenni eyða sífellt meiri tíma í símanum. Skjánotkun hefur færst úr því að vera afþreying yfir í að verða aðalvettvangur samskipta, leikja og jafnvel sjálfsmyndar. Á sama tíma hefur dregið úr félagsstarfi og einfaldri útiveru. Þetta er þróun sem við þurfum að taka alvarlega. Ef við viljum að börn læri að umgangast fólk, byggja upp sjálfstraust, þroska, félagsfærni og hreyfa sig reglulega, þá verðum við að skapa raunveruleg tækifæri til þess. Þar kemur Garðabær sterkur inn – eða gæti gert það, ef opnunartími sundlauga væri í takt við þarfir fjölskyldna. Samskipti í eigin persónu eru ekki lúxus heldur grunnþörf Börn læra ekki að lesa svipbrigði, raddblæ eða líkamsmál í gegnum skjá. Þau læra það í sundlauginni, á æfingu, í tónlistartíma, á leikvelli. Þar læra þau líka að bíða eftir röð, leysa ágreining, vinna í hóp og sýna tillitssemi. Þetta eru hæfniþættir sem samfélagið allt byggir á. Sundlaugar Garðabæjar eru frábærar, en loka of snemma Garðabær státar af tveimur vinsælum sundlaugum: Ásgarðslaug og Álftaneslaug. Báðar eru opnar til kl. 22 virka daga, en um helgar loka þær kl. 18:00. Í bæjarráði þann 12. maí sl. var samþykkt að hafa sundlaugar opnar til 22:00 á sunnudagskvöldum á Álftanesi og í Ásgarði í tilraunaskyni frá 1. júní 2026 til og með 30. september 2026. Um er að ræða frábært framtak sem Viðreisn í Garðabæ mun tala fyrir að verði ekki eingöngu tilraun heldur raun til framtíðar allt árið um kring. Fyrir uppteknar fjölskyldur þar sem er nóg að gera fram eftir degi um helgar þýðir þetta að möguleikinn á að fara saman í sund eða hreinlega hreyfa sig, hverfur. Það er einfaldlega ekki í takt við nútímann að loka sundlaugum klukkan sex á laugardegi. Guðlaugur Kristmundsson, oddviti Viðreinsar bókaði á bæjarráðsfundi þann 12. maí sl. að Viðreisn í Garðabæ vilji að fyrirhuguð tilraun, að lengja opnunartíma sundlauga í Garðabæ á sunnudagskvöldum sumarið 2026, nái einnig til sundlaugarinnar í Urriðaholti þegar hún hefur hafið rekstur. Þriðji áfangi Urriðaholtsskóla opnar í dag, 13. maí 2026, þar sem áhugasömum er boðið að skoða íþróttasal, innisundlaug, potta og búningsaðstöðu frá kl. 16:00 til 18:00. Lengri opnunartími myndi skila sér margfalt til baka Ef sundlaugar væru opnar fram á kvöld um helgar gætu fjölskyldur valið sundferð fram yfir skjá. Sundlaugar eru náttúrulegur vettvangur fyrir börn til að hitta vini og æfa samskipti og myndi að skila sér í betri félagsfærni barna. Unglingar sem eru á æfingum fram eftir degi hefðu loksins tækifæri til að fara í sund á kvöldin. Hreyfing, félagsleg þátttaka og samvera eru áhrifaríkustu forvarnir sem til eru gegn kvíða, einmanaleika og félagslegri einangrun barna. Garðabær hefur alla burði til að vera fyrirmynd í heilsueflingu með lengingu á opnunartímum sundlauga til frambúðar. Þetta er lítið skref fyrir bæinn en stórt skref fyrir börnin Að lengja opnunartíma sundlauga er ekki flókið, ekki dýrt og ekki umdeilt. Þetta er einfalt samfélagslegt val: Viljum við að börnin okkar eyði helgunum í símanum eða í samfélaginu? Garðabær hefur tækifæri til að taka skref sem skilar sér margfalt til baka. Það er kominn tími til að opna laugarnar – og opna dyr að betra, heilbrigðara og félagslegra lífi barna og ungmenna. Þegar kostnaðurinn er lagður á borðið blasir einföld mynd við: Hvort sem um er að ræða 2, 3 eða 4 klukkustundir er heildarkostnaðurinn lítil í samhengi við þann samfélagslega ávinning sem skapast. Meiri hreyfing, minni skjátími, betri félagsfærni og öruggara rými fyrir ungmenni eru ekki óljósar hugmyndir heldur raunveruleg áhrif sem bæjarfélög um allt land eru að fjárfesta í. Garðabær hefur þegar frábæra aðstöðu; það sem vantar er aðgengi sem endurspeglar þarfir nútímafjölskyldna. Ef markmiðið er að byggja upp heilbrigðara, félagslegra og barnvænna samfélag, þá er þetta eitt af þeim verkefnum sem skila sér margfalt til baka. Þetta er ekki kostnaður. Þetta er framtíðarfjárfesting. Höfundur er lögfræðingur og í 6. sæti á lista Viðreisnar í Garðabæ. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Hvers vegna ég skipti um skoðun á aðild Íslands að Evrópusambandinu Gunnar Ármannsson Skoðun Meitlað í stein eða kannski, hugsanlega, ef til vill Sigurður Egilsson Skoðun Sjö algengar ranghugmyndir um hvali og hvalveiðar Eyþór Eðvarðsson Skoðun Aðildarviðræður eru ekki upplýsingaleit heldur undirbúningur að aðild Gunnar Ármannsson Skoðun Um líf og dauða, fullveldi og ESB II Bjarni Már Magnússon Skoðun Almyrkvi á sólu 12.ágúst 2026: Gagnlegar upplýsingar Runólfur Þórhallsson Skoðun Að hafa rétt eftir Ingólfur Sverrisson Skoðun Um líf og dauða, fullveldi og ESB Bjarni Már Magnússon Skoðun Af hverju „Nei“ 29. ágúst? Alfreð Sturla Böðvarsson Skoðun Ný greining: Hvað myndu húsnæðisvextir lækka með ESB og evru? Dagur B. Eggertsson Skoðun Skoðun Skoðun Stafrænt fullveldi er ekki frönsk sérviska Þorsteinn Siglaugsson skrifar Skoðun Gervigreind á ekki að hugsa fyrir okkur Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Hvers vegna ég skipti um skoðun á aðild Íslands að Evrópusambandinu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Mannréttindi eru ekki skrifstofa heldur framkvæmd Auður Axelsdóttir skrifar Skoðun Af hverju „Nei“ 29. ágúst? Alfreð Sturla Böðvarsson skrifar Skoðun Að hafa rétt eftir Ingólfur Sverrisson skrifar Skoðun Hvaða áhættu tekur Ísland ef við breytum engu? – Framtíðarsýn til ársins 2050 Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Almyrkvi á sólu 12.ágúst 2026: Gagnlegar upplýsingar Runólfur Þórhallsson skrifar Skoðun Um líf og dauða, fullveldi og ESB II Bjarni Már Magnússon skrifar Skoðun Meitlað í stein eða kannski, hugsanlega, ef til vill Sigurður Egilsson skrifar Skoðun Krónuhagkerfið og kostnaður heimilanna Sigurður Kristinn Pálsson skrifar Skoðun Litir, form og staðarandi Þórður Már Sigfússon skrifar Skoðun Brexit ekki orsök efnahagsáskorana Breta Kristinn Sv. Helgason skrifar Skoðun Jörðin er dómkirkjan okkar. Geimurinn er verkstæðið okkar. Árni Sigurðsson skrifar Skoðun Stækkun bílaborgarinnar er ekki sjálfgefin - Ný byggð til norðurs kallar á öflugri almenningssamgöngur Stefán Agnar Finnsson skrifar Skoðun Hvenær hættir maður að vera útlendingur? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Viðvörunarljós um farsæld barna má ekki hunsa Steinunn Bergmann skrifar Skoðun Sjö algengar ranghugmyndir um hvali og hvalveiðar Eyþór Eðvarðsson skrifar Skoðun Aðildarviðræður eru ekki upplýsingaleit heldur undirbúningur að aðild Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Um líf og dauða, fullveldi og ESB Bjarni Már Magnússon skrifar Skoðun Ný greining: Hvað myndu húsnæðisvextir lækka með ESB og evru? Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Hvað er í pakkanum? Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Nýsköpunin sem hverfur inn í skýið Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Þegar kaffið rennur upp á við í Undralandi íslenskrar orðræðu Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Þeir seldu áhættuna sem tækifæri — og sendu þjóðinni reikninginn Baldur Pétursson skrifar Skoðun Traust á lögmönnum er ekki einkamál lögmanna Vilbert Gústafsson skrifar Skoðun Upplýsingar eru ekki ógn, þær eru forsenda Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Heimilislæknar og reglugerðardrög Alma D. Möller skrifar Skoðun Einstaklingurinn og fullveldið Signý Sigurðardóttir skrifar Skoðun Skilvirk núna en ekki ef við göngum í ESB Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Sjá meira
Skoðun Hvers vegna ég skipti um skoðun á aðild Íslands að Evrópusambandinu Gunnar Ármannsson skrifar
Skoðun Hvaða áhættu tekur Ísland ef við breytum engu? – Framtíðarsýn til ársins 2050 Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Stækkun bílaborgarinnar er ekki sjálfgefin - Ný byggð til norðurs kallar á öflugri almenningssamgöngur Stefán Agnar Finnsson skrifar
Skoðun Aðildarviðræður eru ekki upplýsingaleit heldur undirbúningur að aðild Gunnar Ármannsson skrifar