Velmegun einstaklingsins - opinber auðlegð - markmið jafnaðarmanna Hörður Filippusson skrifar 13. maí 2026 10:17 Hver er framtíðarsýn stjórnmálaflokkanna sem bjóða fram til borgarstjórnar 2026? Þar er sumt ljóst en margt dulið. Það var bandaríski hagfræðingurinn John Kenneth Galbraith sem á sjötta áratug síðustu aldar færði í orð hugmyndina "einkaauðlegð, opinber örbirgð" (private affluence, public squalor) til að draga athyglinni að vaxandi auðsöfnun sumra meðan opinber þjónusta og innviðir væru sveltir og vanfjármagnaðir. Einni öld fyrr og við aðrar aðstæður var svipuð hugsun færð í orð á Íslandi af hagyrðingi: Það er dauði og djöfuls nauð er dyggðasnauðir fantar safna auð með augun rauð þá aðra brauðið vantar. Í Bandaríkjunum hefur lítið þokast í átt til jöfnuðar ef marka má bók sem kom út 2023: Private Affluence and Public Squalor. Social Injustice and Economic Misery in America, eftir Paul L Nevins. Það er ekki glæsilegt ef þörf er á að ræða félagslegt óréttlæti og efnahagslega örbirgð hjá einni auðugustu þjóð heims. En þarf ekki að koma á óvart þegar litið er til þeirrar stjórnmálastefnu sem þar í landi hefur ráðið ríkjum. Stefnu sem hægri flokkarnir hér á landi leynt og ljóst vilja framkvæma. En vilja síður nefna réttu nafni. Þessir hlutir koma upp í hugann þegar litið er til stefnumála hinna ýmsu framboða til borgarstjórnar í Reykjavík, ekki síst þeirra sem mest hafa fylgið því þar takast á andstæður í hugmyndaafræði, annars vegar jafnaðarstefna Samfylkingarinnar og hins vegar nýfrjálshyggja sem gengur ljósum logum í málflutningi hægri flokkanna. Munurinn liggur í annars vegar einkaauðlegð þar sem auðsöfnun einstaklinga eru lítil takmörk sett meðan hið opinbera situr á hakanum. Hins vegar í velmegun einstaklingsins ásamt sameiginlegri auðlegð. Einfalt dæmi skýrir hvað sameiginleg auðlegð merkir: Annars vegar eiga sumir einkasundlaug meðan almenningur kemst ekki í sund. Hins vegar eiga flestir enga sundlaug en saman eigum við fjölda sundlauga sem eru opnar öllum. Hin sameiginlega auðlegð birtist okkur í mörgum myndum. Hún birtist í góðu heilbrigðiskerfi með umönnun ungra og aldinna, í góðum leikskólum og öðrum skólum. Hún birtist í húsnæði fyrir alla, vegakerfi, gatnakerfi, borgarskipulagi, almenningssamgöngum, meðal annars borgarlínu. Og góðum sundlaugum. Jafnaðarmenn leggja áherslu á að efla hina sameiginlegu auðlegð, öllum til hagsbóta. Velmegun einstaklingsins er líka markmið jafnaðarmanna. Hún er meðal annars afleiðing öflugra launþegahreyfinga og vinnulöggjafar ásamt opinberum stuðningskerfum. Nýjasta útspil hægrisins er að losna þurfi við launþegahreyfingar svo launagreiðendur hafi frítt spil til að ráðskast með kjör launþega. Andstæðan birtist í stefnumálum hægri flokkanna, einkum Sjálfstæðisflokks, sem stefna leynt og ljóst að einkavæðingu leikskóla, heilsugæslustöðva, Félagsbústaða og annarrar opinberrar þjónustu borgarinnar, auk þess að stefna að sölu fyrirtækja borgarinnar eins og Orkuveitu og ljósleiðarakerfis. Kannski líka vatnsveitunnar eða holræsakerfis? Sumum er ekkert heilagt þegar arður er í augsýn. Því markmiðið er að einkafyrirtæki gerist sníkjudýr á velferðarkerfinu og hirði hluta af skattfé borgaranna í formi arðs. Þeir sem aðhyllast opibera auðlegð geta ekki treyst hægri flokkunum fyrir rekstri borgarinnar. Samfylkingin stefnir að velferð einstaklingsins og opiberri auðlegð. Kjósum hana. Höfundur er jafnaðarmaður. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar