Og þeir skoðra og þeir skoða og skora og skora á ný Dagmar Valsdóttir skrifar 13. maí 2026 08:12 Þvílíkur sigur hjá Grindavík á útivelli gegn Tindastól í gærkvöldi. Nú er einn leikur eftir (vonandi) og verður hann í íþróttahúsinu okkar í Grindavík. Þegar við vinnum þann leik þá verðum við Íslandsmeistarar. Það segir svo mikið um okkur Grindvíkinga. Við gefumst ekki upp. Sama hvað hefur gengið á þá stöndum við saman og höldum áfram. Við ætlum að byggja Grindavík upp aftur. Við ætlum að vera með skóla í bænum næsta haust. Við ætlum að halda áfram að taka vel á móti fólki, opna fyrirtæki, skapa atvinnu og líf. Við hjónin ætlum að fara á fullt í sumar, við verðum nýkomin með hjólaleigu og taka á móti gestum eins og Grindvíkingar hafa alltaf gert. Við erum að fara að opna kaffihús á Borgarhrauni 2 og skapa notalegan stað þar sem fólk getur komið saman yfir góðu kaffi í Grindavík. Það er svo margt að gerast. Ný fyrirtæki eru að rísa, fólk er farið að horfa aftur heim og það er von í loftinu. En við þurfum líka að fá að halda áfram. Við Grindvíkingar erum búin að bíða mánuði eftir mánuði eftir svörum og ákvörðunum Þórkötlu og ríkisstjórnarinnar. Alltaf á að bíða aðeins lengur. Á meðan bíður fólk eftir því að fá að lifa aftur eðlilegu lífi. Það sem við skiljum ekki er þetta: Af hverju má fólk ekki fá að leigja gömlu húsin sín og halda þeim við? Af hverju á að leyfa heimilum að grotna niður þegar gömlu eigendurnir vilja hugsa um þau og laga? Við eigum þessi hús. Ríkið keypti þau en við erum líka ríkið, allir Íslendingar. Þetta voru ekki venjuleg fasteignaviðskipti. Fólk þurfti að yfirgefa heimilin sín með mjög skömmum fyrirvara, bjarga börnunum sínum og finna skjól í mikilli óvissu. Ef einhver veit hvernig á að meta aðstæður í Grindavík og bregðast við hættum þá eru það Grindvíkingar. Treystið okkur fyrir okkar eigin lífi. Treystið okkur fyrir börnunum okkar. Treystið okkur til að byggja upp bæinn okkar á ný. Við erum nú þegar byrjuð á því. Það hafa verið byggðir varnargarðar og lögð gríðarleg vinna í að verja samfélagið. Af hverju á þá ekki líka að leyfa fólkinu sjálfu að taka þátt í uppbyggingunni og koma heim? Við erum ekki að biðja um vorkunn. Við erum að biðja um að fá að lifa, fá að halda áfram og fá að snúa til baka. Og nú bið ég alla þá sem standa með okkur Grindvíkingum að sýna það. Sýnið samstöðu. Standið með okkur. Notið myllumerkið #viðErumGrindavík og sýnið að þið treystið okkur til að taka ákvarðanir um okkar eigið líf og okkar eigið samfélag með því að klæðast gulu. Mér finnst við öll ættum að vera í gulu fram að næsta leik, alla daga. Þetta snýst ekki bara um Grindavík. Ef ríkið ætlar að halda áfram að ákveða fyrir fólk hvar það má búa og hvort það megi snúa heim, hvað er þá næst? Hvar stoppar þetta? Við Íslendingar höfum alltaf búið með náttúruöflunum. Fólk býr á snjóflóðasvæðum, við sjávarsíðuna og víða þar sem náttúran getur verið hættuleg. Þegar hætta skapast hefur íslenskt samfélag alltaf treyst fólki til að bregðast við og rýma þegar þess þarf. Grindvíkingar kunna það best. Við vitum hvernig á að bregðast við og hvernig á að verja fjölskyldurnar okkar og gestina okkar. Við hjónin og strákarnir okkar ætlum að búa í Grindavík. Við höfum nú þegar skráð strákana í grunnskólann í haust og við látum ekki ríkisstjórnina eða Þórkötlu leggja pressu á okkur að hætta við. Við eigum ekki að þurfa að lifa við það að einhver annar ákveði hvort við fáum að fara heim til okkar eða ekki. Ef það er ekki hægt að koma með lausn sem leyfir fólki að leigja húsin sín, búa í þeim og senda börnin í skóla í Grindavík, þá er eitthvað verulega rangt við kerfið. Það er ekki eðlilegt að eina lausnin sé alltaf að banna meira, stoppa meira og bíða meira. Fólki var loksins farið að treysta sér til að koma aftur, gista í húsunum sínum, laga þau og halda samfélaginu lifandi. Þá kemur aftur nei. Nei, það má ekki. Nei, við ætlum að stoppa þetta. Nei, við treystum ykkur ekki. En við spyrjum: Af hverju voru þá byggðir varnargarðar? Af hverju var farið í allar þessar framkvæmdir ef markmiðið er ekki að samfélagið fái að lifa áfram? Hvað var ríkisstjórnin að meina þegar hún sagði Grindavík blómlega á ný? Við vitum að það getur komið annað eldgos. Það hafa allir alltaf vitað, þó landris hafi stöðvast og ekkert bendi sérstaklega til annars akkúrat núna. En við vitum líka hvernig á að bregðast við. Við höfum sýnt það aftur og aftur. Þegar rýming þarf að eiga sér stað þá gerist hún hratt og faglega. Það eina sem við biðjum um er að fólk kynni sér málin áður en það dæmir. Ekki bara út frá clickbait eða neikvæðum umræðum á samfélagsmiðlum. Hlustið á vísindamennina sem vinna á svæðinu, fólkið sem hefur margra ára nám að baki og veit hvað það er að tala um. Eina sem ég bið um er að þið hlustið á allar hliðar málsins. Við erum tilbúin.Treystið okkur.Standið með okkur. P.S. Grindvíkingar, öll þið sem hafið kosningarétt í Grindavík, munið að kjósa á laugardaginn. Það skiptir gríðarlega miklu máli að nýta þennan rétt. Við verðum að standa saman og taka ákvarðanir sem eru bestar fyrir Grindavík og framtíð bæjarins okkar. Við gerum þetta saman. Áfram Grindavík.#viðErumGrindavík Höfundur er íbúi í Grindavík. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Hvers vegna ég skipti um skoðun á aðild Íslands að Evrópusambandinu Gunnar Ármannsson Skoðun Aðildarviðræður eru ekki upplýsingaleit heldur undirbúningur að aðild Gunnar Ármannsson Skoðun Meitlað í stein eða kannski, hugsanlega, ef til vill Sigurður Egilsson Skoðun Sjö algengar ranghugmyndir um hvali og hvalveiðar Eyþór Eðvarðsson Skoðun Um líf og dauða, fullveldi og ESB II Bjarni Már Magnússon Skoðun Almyrkvi á sólu 12.ágúst 2026: Gagnlegar upplýsingar Runólfur Þórhallsson Skoðun Að hafa rétt eftir Ingólfur Sverrisson Skoðun Gervigreind á ekki að hugsa fyrir okkur Helgi S. Karlsson Skoðun Um líf og dauða, fullveldi og ESB Bjarni Már Magnússon Skoðun Af hverju „Nei“ 29. ágúst? Alfreð Sturla Böðvarsson Skoðun Skoðun Skoðun Stafrænt fullveldi er ekki frönsk sérviska Þorsteinn Siglaugsson skrifar Skoðun Gervigreind á ekki að hugsa fyrir okkur Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Hvers vegna ég skipti um skoðun á aðild Íslands að Evrópusambandinu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Mannréttindi eru ekki skrifstofa heldur framkvæmd Auður Axelsdóttir skrifar Skoðun Af hverju „Nei“ 29. ágúst? Alfreð Sturla Böðvarsson skrifar Skoðun Að hafa rétt eftir Ingólfur Sverrisson skrifar Skoðun Hvaða áhættu tekur Ísland ef við breytum engu? – Framtíðarsýn til ársins 2050 Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Almyrkvi á sólu 12.ágúst 2026: Gagnlegar upplýsingar Runólfur Þórhallsson skrifar Skoðun Um líf og dauða, fullveldi og ESB II Bjarni Már Magnússon skrifar Skoðun Meitlað í stein eða kannski, hugsanlega, ef til vill Sigurður Egilsson skrifar Skoðun Krónuhagkerfið og kostnaður heimilanna Sigurður Kristinn Pálsson skrifar Skoðun Litir, form og staðarandi Þórður Már Sigfússon skrifar Skoðun Brexit ekki orsök efnahagsáskorana Breta Kristinn Sv. Helgason skrifar Skoðun Jörðin er dómkirkjan okkar. Geimurinn er verkstæðið okkar. Árni Sigurðsson skrifar Skoðun Stækkun bílaborgarinnar er ekki sjálfgefin - Ný byggð til norðurs kallar á öflugri almenningssamgöngur Stefán Agnar Finnsson skrifar Skoðun Hvenær hættir maður að vera útlendingur? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Viðvörunarljós um farsæld barna má ekki hunsa Steinunn Bergmann skrifar Skoðun Sjö algengar ranghugmyndir um hvali og hvalveiðar Eyþór Eðvarðsson skrifar Skoðun Aðildarviðræður eru ekki upplýsingaleit heldur undirbúningur að aðild Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Um líf og dauða, fullveldi og ESB Bjarni Már Magnússon skrifar Skoðun Ný greining: Hvað myndu húsnæðisvextir lækka með ESB og evru? Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Hvað er í pakkanum? Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Nýsköpunin sem hverfur inn í skýið Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Þegar kaffið rennur upp á við í Undralandi íslenskrar orðræðu Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Þeir seldu áhættuna sem tækifæri — og sendu þjóðinni reikninginn Baldur Pétursson skrifar Skoðun Traust á lögmönnum er ekki einkamál lögmanna Vilbert Gústafsson skrifar Skoðun Upplýsingar eru ekki ógn, þær eru forsenda Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Heimilislæknar og reglugerðardrög Alma D. Möller skrifar Skoðun Einstaklingurinn og fullveldið Signý Sigurðardóttir skrifar Skoðun Skilvirk núna en ekki ef við göngum í ESB Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Sjá meira
Skoðun Hvers vegna ég skipti um skoðun á aðild Íslands að Evrópusambandinu Gunnar Ármannsson skrifar
Skoðun Hvaða áhættu tekur Ísland ef við breytum engu? – Framtíðarsýn til ársins 2050 Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Stækkun bílaborgarinnar er ekki sjálfgefin - Ný byggð til norðurs kallar á öflugri almenningssamgöngur Stefán Agnar Finnsson skrifar
Skoðun Aðildarviðræður eru ekki upplýsingaleit heldur undirbúningur að aðild Gunnar Ármannsson skrifar